- What: Opening of a new crêpes food truck in Reykjavik
- Impact: No security relevance
Við Bakarabrekku í miðborg Reykjavíkur opnuðu frændsystkinin Katrín Líf Jeansdóttir Raoul og Alexander Sævar Guðbjörnsson nýlega matarvagninn Krepjavík en um er að ræða vagn sem býður upp á franskar crêpes-pönnukökur. Krepjavík hefur verið draumur í bígerð hjá Katrínu en hún byrjaði fyrst að selja crêpes árið 2023 þegar hún var að safna fyrir körfuboltaferð til Serbíu. Katrín er hálffrönsk en faðir hennar kemur frá Brittaníu-skaganum, sem er jafnframt fæðingarstaður hinna frægu pönnukaka. Frænka hennar vann einnig hjá fyrirtækinu sem framleiðir pönnurnar sem notaðar eru til að steikja crêpes. Frændi Katrínar, Alexander, sá mikinn metnað hjá frænku sinni og ákvað að hjálpa henni við að koma rekstrinum af stað. Þau keyptu því hinn umrædda matarvagn af Arnfríði Helgadóttur, sem hafði áður boðið upp á heitt kakó yfir jólin undir heiti Hátíðarvagnsins. Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaði vikunnar . Áskrifendur geta nálgast umfjöllunina í heild sinni hér .