Innlent | Morgunblaðið | 13.6.2026 | 20:32 Einn allra stærsti viðburðurinn Daði Freyr er einn þeirra listamanna sem koma fram á hátíðinni. mbl.is/Eggert Jóhannesson Höskuldur Daði Magnússon [email protected] Setja bókamerki Mikil spenna er fyrir Iceland Eclipse, fjögurra daga alþjóðlegri menningar- og tónlistarhátíð sem fer fram á Hellissandi í kringum almyrkva á sólu síðar í sumar. Undirbúningur gengur afar vel að sögn Mitch Morales sem er einn skipuleggjenda. Morales er enginn nýgræðingur á þessu sviði. Hann hefur um langt árabil skipulagt stóra viðburði, þar á meðal í tengslum við sólmyrkva. Á einum slíkum árið 2017 kynntist hann Sævari Helga Bragasyni, Stjörnu-Sævari, og þau sambönd leiddu hann að umræddu hátíðahaldi hér á landi. Hefur haldið stórar hátíðir „Ég er meðstofnandi og framkvæmdastjóri Iceland Eclipse og vinn ásamt reyndu teymi Secret Solstice, sem hefur yfir áratugar reynslu af framleiðslu stórviðburða á Íslandi. Ég hef varið meira en 20 árum í að byggja upp hátíðir og upplifanir sem snúast um mannleg tengsl, allt frá Euphoria, Electric Forest og Shambhala, til Texas Eclipse árið 2024, þar sem við tókum á móti tæplega 40.000 gestum. Það sem ég hef lært er að vel heppnaðir viðburðir snúast ekki bara um stærðargráðu, heldur um að skapa þroskandi upplifun í nánu samstarfi við nærsamfélögin,“ segir Morales. Hann fæst ekki til að giska á hversu margir ferðamenn komi til Íslands í tengslum við almyrkvann. „Hátíðin okkar er vísvitandi takmörkuð við um 3.333 miðahafa og er næstum uppseld, en sólmyrkvinn mun laða að marga fleiri ferðamenn sem koma á eigin vegum til Íslands. Sólmyrkvar hafa í gegnum tíðina laðað að sér vísindamenn, ljósmyndara, fjölskyldur, áhugafólk um stjörnufræði og ferðamenn sem leita að einu sjaldgæfasta fyrirbæri náttúrunnar. Eftir því sem ég kemst næst er þetta einn stærsti einstaki ferðaþjónustuviðburður í sögu Íslands.“ Morales er því næst spurður um samanburð á undirbúningi hér við aðra staði sem hann hefur skipulagt viðburði í tengslum við sólmyrkva á. „Þar sem við mennirnir fáum ekki að velja bestu staðina til að sjá almyrkva eiga þeir sér oft stað á afskekktari stöðum, sama og á Snæfellsnesi í ár. Þess vegna er helsta áskorunin samgöngur og innviðir, svo við vinnum yfirleitt með yfirvöldum á staðnum að því að búa til áætlanir sem styðja við tímabundinn fjölda fólks.“ Gott samstarfsfólk á Íslandi Hann lýkur lofsorði á samstarfsmenn sína við undirbúning Iceland Eclipse. „Ég er mjög hrifinn af þeirri reynslu og fagmennsku sem við höfum fundið hér á Íslandi. Allt frá viðburðafélaga okkar Jóni Bjarna sem hjálpar okkur að hafa samband við stjórnvöld og almannaöryggi, til Sævars sem hjálpar til við að koma boðskapnum um sólmyrkvann til íslenskra áhorfenda, til Kidda sem styður okkur á staðnum í Snæfellsbæ, þá hefur verið unun að vinna með öllum sem við höfum hitt!“ segir hann og vísar þar til Jóns Bjarna Steinssonar, eins skipuleggjenda hátíðarinnar, Stjörnu-Sævars og Kristins Jónassonar, bæjarstjóra í Snæfellsbæ. Góðar viðtökur ytra „Svo lengi sem fólk skipuleggur sig fram í tímann held ég að allt muni ganga nokkuð snurðulaust fyrir sig. Við biðjum alla sem vilja sjá sólmyrkvann á Vesturlandi að koma eigi síðar en 11. ágúst. Viðburðurinn okkar mun standa yfir um helgina og við verðum með frábæra hátíð með tónlist og listum auk fyrirlestra og vinnustofa frá geimförum til vísindamanna til leiðtoga á sviði heilsu og vellíðunar. Við bjóðum upp á skutlur til og frá bæði Keflavík og miðbæ Reykjavíkur til að draga úr heildarumferð á svæðinu og halda eins mörgum bílum og mögulegt er frá Snæfellsnesi.“ Hvernig gengur undirbúningur hátíðarinnar? „Framleiðslan er á undan áætlun og margir af alþjóðlegum liðsmönnum okkar munu koma í júlí til að vinna með íslenskum samstarfsaðilum okkar. Við erum ekki einfaldlega að búa til tónlistarhátíð eða sólmyrkvaáhorf, við erum að leiða saman hátíð þess besta í mannkyninu með íslenskri náttúru og menningu í kringum sameiginlega stund kosmískrar samstöðu í almyrkvanum. Viðbrögð utan úr heimi hafa verið ótrúleg og þekktir þátttakendur úr geim-, vísinda- og tækniiðnaðinum taka þátt með okkur frá yfir 70 löndum.“ Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Einn allra stærsti viðburðurinn Fólk leiti huggunar í fortíðinni Bæjarstjóri skotinn til bana Elvari sópað í sumarfrí Brött lækkun í aflamarki ýsu Umræðan „Gekk, fekk vargr at drekka“ Þessu fer að ljúka í bili Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Ég átti rosalega erfitt í skóla“ „Elskuð, virt og dáð af fólki um allt konungsríkið“ Klórar sér í hausnum yfir ummælum ráðherra „Við vildum yfirgefa þennan heim öll saman“ Mest lesið Í gær Í vikunni Matarkarfan 40% ódýrari á Íslandi „Ef ég fer til Úkraínu kem ég ekki til baka“ Andlát: Þórdís Kristmundsdóttir Meirapróf til að aka strumpastrætó Höfðu afskipti af ágengum sölumönnum í Eyjum Þremur skemmtistöðum lokað í aðgerðum lögreglu Jafn mikil verðmæti aldrei sokkið við Ísland Skemmtistaðnum Exit lokað í nótt Styður ekki hjólhýsabyggð í borginni Leynd yfir samskiptum aflétt með úrskurði Íhuguðu að kasta sér fram af brú Samningnum sagt upp: „Eins og við séum ekki fólk“ Subway auglýsir verð í evrum Létu lífið tæpum sólarhring áður en lögreglan kom Sex flugferðum aflýst í dag Harðnar enn í deilum hjá Icelandair Réðst á dreng í sundi Eldurinn kviknaði út frá hleðslutæki Styður ekki hjólhýsabyggð í borginni Málið dagaði uppi hjá starfsmanni Bubbi sleit liðband Stefnir í hlýjasta dag sumarsins Réðst á dreng í sundi Flugstjórar með tæpar þrjár milljónir Matarkarfan 40% ódýrari á Íslandi Ástæða til að hafa áhyggjur Myndir: Sjötugur Bubbi sló í gegn Pottinum fargað: „Okkur finnst þetta sóun“ Tilbúnir að slást í sundklefunum Óttast er að hundruð missi vinnuna Nýjast á mbl.is » Einn allra stærsti viðburðurinn Fólk leiti huggunar í fortíðinni Bæjarstjóri skotinn til bana Elvari sópað í sumarfrí Brött lækkun í aflamarki ýsu Umræðan „Gekk, fekk vargr at drekka“ Þessu fer að ljúka í bili Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Við vildum yfirgefa þennan heim öll saman“ Íhuguðu að kasta sér fram af brú Sex flugferðum aflýst í dag Íbúðaverð hækkaði um 103% á tíu árum Mest lesið Í gær Í vikunni Matarkarfan 40% ódýrari á Íslandi „Ef ég fer til Úkraínu kem ég ekki til baka“ Andlát: Þórdís Kristmundsdóttir Meirapróf til að aka strumpastrætó Höfðu afskipti af ágengum sölumönnum í Eyjum Þremur skemmtistöðum lokað í aðgerðum lögreglu Jafn mikil verðmæti aldrei sokkið við Ísland Skemmtistaðnum Exit lokað í nótt Styður ekki hjólhýsabyggð í borginni Leynd yfir samskiptum aflétt með úrskurði Íhuguðu að kasta sér fram af brú Samningnum sagt upp: „Eins og við séum ekki fólk“ Subway auglýsir verð í evrum Létu lífið tæpum sólarhring áður en lögreglan kom Sex flugferðum aflýst í dag Harðnar enn í deilum hjá Icelandair Réðst á dreng í sundi Eldurinn kviknaði út frá hleðslutæki Styður ekki hjólhýsabyggð í borginni Málið dagaði uppi hjá starfsmanni Bubbi sleit liðband Stefnir í hlýjasta dag sumarsins Réðst á dreng í sundi Flugstjórar með tæpar þrjár milljónir Matarkarfan 40% ódýrari á Íslandi Ástæða til að hafa áhyggjur Myndir: Sjötugur Bubbi sló í gegn Pottinum fargað: „Okkur finnst þetta sóun“ Tilbúnir að slást í sundklefunum Óttast er að hundruð missi vinnuna