- What: The Icelandic Prime Minister's office and its subordinate institutions spent approximately 180 million króna on 24 severance agreements between 2018 and 2025.
- Impact: The Central Bank of Iceland accounted for the largest portion of the cost, totaling over 161 million króna during the period.
Innlent | mbl | 17.2.2026 | 11:57 180 milljónir króna í starfslokasamninga Kostnaður vegna starfslokasamninga hefur verið töluverður hjá forsætisráðuneytinu á síðustu árum. mbl.is/Anton Brink Samtals voru gerðir 24 starfslokasamningar hjá forsætisráðuneytinu og undirstofnunum á árunum 2018 til 2025 og var kostnaður við þá alls tæplega 180 milljónir króna. Langmestur kostnaður var vegna starfslokasamninga hjá Seðlabanka Íslands eða samtals rúmlega 161 milljón á tímabilinu. Flestir starfslokasamninganna voru gerðir árið 2020, eða sjö talsins, en það má rekja til sameiningar Seðlabanka Íslands og Fjármálaeftirlitsins það sama ár. Kostnaður við þá samninga var tæplega 80 milljónir króna. Þetta kemur fram í svari forsætisráðherra við fyrirspurn Karls Gauta Hjaltasonar, þingmanns Miðflokksins , en hann spurði um fjölda starfslokasamninga forsætisráðuneytisins og undirstofnana á tímabilinu og kostnað vegna þeirra. Karl Gauti Hjaltason, þingmaður Miðflokksins. mbl.is/Eggert Jóhannesson Frétt af mbl.is 84 milljónir króna í starfslokasamninga Þrír samningar hjá ráðuneytinu Um er að ræða starfslokasamninga sem fela í sér réttindi umfram það sem kveðið er á um í lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins. Hjá forsætisráðuneytinu voru gerðir þrír starfslokasamningar á tímabilinu og var áfallinn kostnaður við þá samtals um tíu milljónir króna umfram uppsagnarfrest. Einn samningur var gerður árið 2023 og tveir árið 2025. Þá voru gerðir tveir starfslokasamningar hjá Hagstofu Íslands, annar árið 2022 og hinn árið 2025. Kostnaður við hvorn þeirra var tæpar fjórar milljónir króna. Mestur hefur kostnaðurinn verið vegna starfslokasamninga hjá Seðlabanka Íslands. mbl.is/Ómar Frétt af mbl.is 400 milljónir í starfslokasamninga Tilfærslur í starfi Karl Gauti spurði einnig út í fjölda embættismanna sem hefðu verið fluttir til í starfi á árunum 2018 til 2025. Tveir starfsmenn forsætisráðuneytisins voru fluttir til í starfi á tímabilinu. Annars vegar var skrifstofustjóri á skrifstofu löggjafarmála í forsætisráðuneytinu fluttur í embætti skrifstofustjóra á skrifstofu stjórnskipunar, vegna breytinga á skipulagi ráðuneytisins árið 2022, sem fólu m.a. í sér að skrifstofum var fækkað. Hins vegar var ráðuneytisstjóri forsætisráðuneytisins fluttur í embætti ráðuneytisstjóra matvælaráðuneytisins árið 2025. Hjá Seðlabanka Íslands voru tveir embættismenn fluttir til í starfi í tengslum við sameiningu Seðlabankans og Fjármálaeftirlitsins árið 2020. Annars vegar var aðstoðarseðlabankastjóri fluttur í nýtt embætti varaseðlabankastjóra þegar fyrra embættið var lagt niður. Hins vegar var forstjóri Fjármálaeftirlitsins fluttur í nýtt embætti varaseðlabankastjóra. Með breytingunum urðu til þrjú embætti varaseðlabankastjóra. Þá var hagstofustjóri fluttur til fjármála- og efnahagsráðuneytisins árið 2022. Ásgeir: „Það eru ekki til neinar patentlausnir“ Stór nöfn snúa aftur í enska landsliðið fyrir Íslandsleikinn „Það verður bara að koma í ljós“ Þriðjungur enn með Windows 10 Convicted for protesting aboard whaling ships Brugðist við breyttum heimi Fer Evrópusambandið þá með rangt mál? Fleira áhugavert Hvassviðri og snjókoma fyrir sunnan Hvetja íslensk stjórnvöld til dáða Ásgeir: „Það eru ekki til neinar patentlausnir“ Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna Verðið allt að 67% hærra hér Vonast til að geta fundið Lúðvík Lögreglumaður ákærður: Varðar allt að 3 ára fangelsi Þekktur staður og of mikið um árekstra Hvassviðri og snjókoma fyrir sunnan Kostar ríkið hátt í 300 milljónir Grunaður dópsali gripinn eftir símtal undir stýri Fólk farið að meðtaka veruleikann Ingu „gjörsamlega misboðið“ Dregur framboð sitt til baka Höfðu varað við að fara með Íslendinga til Kúbu Hættir sem forstjóri eftir að staðan var auglýst Enginn klofningur í Samfylkingu og þó Alma auglýsir tvær forstjórastöður Sótti fólk í vanda en festist sjálfur Þyrla Gæslunnar lenti á bílastæðinu Allt að 18 stiga frost í dag Ingu „gjörsamlega misboðið“ Tveir fluttir með sjúkrabíl eftir árekstur Íslendingar hvattir til að huga að heimför Yfirtökuhætta hjá Icelandair? Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar Beint: Framsókn kýs nýja forystu Var að máta föt á Tene þegar hann frétti af vinningnum Fær rúmar 45 milljónir í vasann Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna Dregur framboð sitt til baka 50 komnir með stöðu sakbornings og von á fleirum Ásgeir: „Það eru ekki til neinar patentlausnir“ Stór nöfn snúa aftur í enska landsliðið fyrir Íslandsleikinn „Það verður bara að koma í ljós“ Þriðjungur enn með Windows 10 Convicted for protesting aboard whaling ships Brugðist við breyttum heimi Fer Evrópusambandið þá með rangt mál? Fleira áhugavert Vonast til að geta fundið Lúðvík Framlagið hækkað Besti árangur Íslendings í 20 ár Legurýmin gætu nýst von bráðar Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna Verðið allt að 67% hærra hér Vonast til að geta fundið Lúðvík Lögreglumaður ákærður: Varðar allt að 3 ára fangelsi Þekktur staður og of mikið um árekstra Hvassviðri og snjókoma fyrir sunnan Kostar ríkið hátt í 300 milljónir Grunaður dópsali gripinn eftir símtal undir stýri Fólk farið að meðtaka veruleikann Ingu „gjörsamlega misboðið“ Dregur framboð sitt til baka Höfðu varað við að fara með Íslendinga til Kúbu Hættir sem forstjóri eftir að staðan var auglýst Enginn klofningur í Samfylkingu og þó Alma auglýsir tvær forstjórastöður Sótti fólk í vanda en festist sjálfur Þyrla Gæslunnar lenti á bílastæðinu Allt að 18 stiga frost í dag Ingu „gjörsamlega misboðið“ Tveir fluttir með sjúkrabíl eftir árekstur Íslendingar hvattir til að huga að heimför Yfirtökuhætta hjá Icelandair? Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar Beint: Framsókn kýs nýja forystu Var að máta föt á Tene þegar hann frétti af vinningnum Fær rúmar 45 milljónir í vasann Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna Dregur framboð sitt til baka 50 komnir með stöðu sakbornings og von á fleirum