- What: Icelandic police are seeking information about a man for an unspecified investigation.
- Impact: The public is asked to contact the police with any information.
Maðurinn sem lögregla vill ræða við.Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu vill ná tali af manni eða upplýsingar um hvar hann er að finna. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni sem biður manninn og þá sem þekkja til hans að hafa samband í síma 444 1000 eða senda tölvupóst á netfangið abending@lrh.is. Ekki kemur fram í tilkynningu lögreglu hvers vegna hún vill ná tali af manninum. Einu upplýsingarnar eru myndin hér til hliðar. Hún er óskýr en lögregla vonar að hún gefi vísbendingar um hver maðurinn er.