Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

ESB: Mest and­staða meðal kjó­senda Mið­flokksins

Read Full Article →

Andstaðan við inngöngu Íslands í Evrópusambandið er mest hjá kjósendum Miðflokksins en 86% þeirra segjast andvígir inngöngu samkvæmt könnun sem Gallup gerði fyrir Viðskiptablaðið. Alls segjast 80% kjósenda Sjálfstæðisflokksins andvíg inngöngu og þar á eftir koma kjósendur Framsóknarflokksins en 60% þeirra eru andsnúnir aðild að ESB. Athygli vekur að í könnuninni í byrjun apríl sögðu 85% kjósenda Framsóknarflokksins andvíg inngöngu í ESB og 6% sögðust hvorki hlynnt né andvíg inngöngu. Eins og áður sagði þá segjast nú 60% kjósenda flokksins andvíg en hlutfall þeirra sem svara hvorki né er komið í 26%. Af þessum þremur flokkum eru flestir kjósenda Framsóknar hlynntir eða 14%, þetta hlutfall er 11% hjá kjósendum Sjálfstæðisflokksins og 5% hjá kjósendum Miðflokksins. Áhugaverð þróun hjá kjósendum stjórnarflokkanna Það kemur ekki á óvart að kjósendur Samfylkingarinnar og Viðreisnar séu hlynntastir inngöngu í Evrópusambandið. Alls eru 72% kjósenda beggja þessara flokka hlynntir inngöngu. Þetta er nokkuð lægra hlutfall en í byrjun apríl því þá sögðust 83% kjósenda Samfylkingarinnar hlynntir inngöngu og 78% kjósenda Viðreisnar. Hlutfall kjósenda flokkanna sem segjast andvígir inngöngu hefur lítið breyst síðan í byrjun apríl. Aftur á móti hefur þeim fjölgað nokkuð sem segjast hvorki hlynnt né andvíg. Hjá Samfylkinginni er þetta hlutfall 19% núna en var 11% í apríl. Hjá Viðreisn er hlutfallið nú 26% en var 19% í apríl. Líkt og hjá hinum stjórnarflokkunum þá eru færri kjósendur Flokks fólksins hlynntir inngöngu nú en í apríl. Alls segjast 44% hlynnt inngöngu en fyrir tveimur mánuðum var þetta hlutfall 49%. Alls segjast 22% kjósenda Flokks fólksins hvorki hlynnt né andvíg og 34% segjast andvíg aðild að ESB. Samþykkt á þingi Þingsályktunartillaga ríkisstjórnarflokkanna um þjóðaratkvæðagreiðslu þar sem spurt verður „Á Ísland að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið?“ var samþykkt á Alþingi þann 28. maí. Atkvæðagreiðslan í þinginu fór þannig að 34 sögðu já, 14 sátu hjá og 8 sögðu nei. Forsagan er sú að þann 6. mars lagði Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra fram þingsályktunartillögu um áframhald aðildarviðræðna við ESB. Þann sama dag boðaði ríkisstjórnin til blaðamannafundar þar sem fram kom að efnt yrði til þjóðaratkvæðagreiðslu um málið 29. ágúst næstkomandi. Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar hafði komið fram að þjóðaratkvæðagreiðsla um áframhaldandi viðræður myndi fara fram „eigi síðar“ en árið 2027. Sjá einnig Aldrei fleiri al­farið and­vígir ESB-aðild Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu . Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér .

Share this article