Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Leigubílastöðin komin á leiðarenda

Read Full Article →

Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 10 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Akureyrarbær Leigu­bíla­stöð­in komin á leið­ar­enda Elín Hrönn Jónsdóttir Húsnæði Bifreiðastöðvar Oddeyrar var flutt í lögreglufylgd frá Strandgötu á Akureyri yfir í Jólagarðinn í Eyjafjarðarsveit í kvöld. Stöðva þurfti umferð á meðan flutningnum stóð vegna breiddar hússins. Leigubílastöðin var auglýst gefins gegn því að vera sótt, eftir að bærinn hafði betur í langdreginni deilu um lóðina við Hofsbót. Húsnæði Bifreiðastöðvar Oddeyrar flutt í jólagarðinn. Rúv-Kristófer Óli Birkisson Rúv-Kristófer Óli Birkisson Fyrir 8 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Garðabær Klaustr­ið í Garða­bæ í nið­ur­níðslu og býður upp á slysa­hættu Klaustrið í Garðabæ liggur undir skemmdum og býður upp á töluverða slysahættu. Rúður hafa verið brotnar og dæmi um að fólk fari þangað inn í leyfisleysi. Fyrir 42 mínútumÍÞRÓTTIR Fótbolti FH-ingar náðu sínum fyrsta sigri í sumar FH vann 1-2 sigur en er enn í fallsæti. Þetta fyrsti sigur liðsins í ár í tíu tilraunum. Þá fór ÍBV upp úr fallsæti og sendi Þórsara í það með 1-4 sigri á Akureyri. Fyrir 56 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Tólf létust í flug­slysi í Mis­souri í Banda­ríkj­un­um Tólf létust í flugslysi í Missouri í Bandaríkjunum í dag. Einkaflugvélin, sem flutti ellefu fallhlífastökkvara og einn flugmann, sneri við af ókunnum ástæðum skömmu eftir flugtak og hrapaði nálægt þjóðvegi. Líklegt er að um slys sé að ræða. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Akureyrarbær Leigu­bíla­stöð­in flutt í kvöld Til stendur að flytja leigubílastöð BSO frá Strandgötu á Akureyri yfir í Jólagarðinn í Eyjafjarðarsveit í kvöld eða nótt. Stöðva þarf umferð meðan á flutningum stendur. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Um­deild­ir bar­dag­ar í Hvíta húsinu í kvöld Í kvöld fara fram umdeildir UFC-bardagar í Hvíta húsinu í Washington í tilefni af 250 ára afmæli Bandaríkjanna og 80 ára afmæli forsetans. Gagnrýnendum finnst viðburðurinn ekki við hæfi þessa sögufræga staðar. Fyrir 1 tímaÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 Þýska­land valt­aði yfir fá­menn­ustu þjóð sög­unn­ar á HM Þjóðverjar unnu afar öruggan 7-1 sigur. Þýskaland komst yfir snemma leiks en Curacao menn náðu að jafna metin. Curacao menn eiga hrós skilið fyrir að reyna að spila fótbolta allan leikinn en Þjóðverjar voru hreinlega allt of sterkir. Fyrir 1 tímaÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 Allt það helsta: Þýska­land - Curacao Þýskaland fór illa með Curacao og vann 7-1 sigur í E-riðli HM karla í fótbolta. Hér má sjá öll mörkin. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Veður Svæðið „lifnar allt við“ í góða veðr­inu Landsmenn streymdu í golf í veðurblíðunni í dag, að sögn skrifstofustjóra Golfklúbbsins Odds. „Það eru mjög margir sem myndu vilja koma hérna í viðbót, það er ekki spurning.“ Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sund „Ég hafði áhuga á að athuga hvort þetta væri hægt” Sjósundskappinn Sigurgeir Svanbergsson stingur sér til sólarhringssunds í Lagarfljóti annað kvöld. Hann ætlar að synda niður fljótið fyrstur manna sem vitað er af til styrktar Píeta samtökunum. Fyrir 2 tímumÍÞRÓTTIR Handbolti Viktor Gísli vann Meist­ara­deild Evrópu með Barc­el­ona Viktor Gísli Hallgrímsson, markvörður íslenska handboltalandsliðsins, vann Meistaradeild Evrópu með liði sínu Barcelona í dag. Liðið vann 37-34 sigur gegn Füchse Berlin. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Landsbyggðin Ósam­mála um íbúða­þörf á Langa­nesi Húsnæðis- og mannvirkjastofnun og sveitarstjórnina í Langanesbyggð greinir á um þörf fyrir leiguíbúðir. Langnesingar vilja halda áfram uppbyggingu og koma hreyfingu á húsnæðismarkaðinn. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Um­ferð­ar­slys í Mý­vatns­sveit Malín Marta Eyfjörð Ægisdóttir Þrír hlutu minniháttar meiðsl þegar tveggja bíla árekstur varð á Þjóðvegi 1 við Vindbelgjarfjall í Mývatnssveit. Annar bílanna hafnaði utan vegar og valt á hlið, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Norðurlandi eystra. Tveir slökkviliðsbílar fóru á vettvang vegna þess að margir vettvangsliðar eru í slökkviliðinu, segir fulltrúi lögreglu. Lögregla stöðvaði umferð í skamma stund á meðan bílarnir voru dregnir af vettvangi. Þeir voru báðir óökuhæfir eftir slysið. RÚV / Bjarni Rúnarsson Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Trump: „Klúðr­um þessu ekki!“ Donald Trump er gagnrýninn á árásir Ísraels á Beirút í morgun. Þær setji friðarviðræður í uppnám. Hann biðlar til allra sem koma að málinu að halda að sér höndum og klúðra ekki tækifærinu á friði. Fyrir 5 tímumÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 HM-vaktin: Það sé fjör - bragð­dauf­ur leikir sprakk til lífs Það er jafnt í upphafi seinni hálfleiks í leik Japan og Hollands, 1-1. Fyrri hálfleikur var afar bragðdaufur en nú er komið líf í leikinn. Mikið er undir þar sem liðin eru talin þau sterkustu í F-riðli. Svíþjóð og Túnis mætast klukkan 02:00 í nótt. Þjóðverjar unnu afar öruggan 7-1 sigur gegn Curacao. Í E-riðli mætast svo Fílabeinsströndin og Ekvador klukkan 23:00. Curacao sló met Íslands sem fámennasta þjóð í sögu HM og þjálfari liðsins, Dick Advocaat, varð í dag sá elsti í sögu HM. Hér fylgjumst við með gangi mála í lifandi leikdagsvakt. Við birtum helstu atvik eins fljótt og auðið er. FRÉTTAVAKT Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Eig­andi Exit segir lok­un­ina ólög­mæta Eigandi skemmtistaðarins Exit sem lögregla lokaði um helgina segir aðgerðir lögreglu ólögmætar. Lögmaður félagsins fari yfir málið auk þess sem aðkomu SVEIT hafi verið óskað. Fyrir 6 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Sig­ur­gleð­in fór úr bönd­un­um Stuðningsmenn New York Knicks slepptu fram af sér beislinu í fagnaðarlátum eftir að liðið vann sinn fyrsta meistaratitil í áratugi. Nokkrir fóru þó yfir strikið. Táningur særðist í skothríð og skemmdir voru unnar á bílum. Fyrir 6 tímumÍÞRÓTTIR Formúla 1 Sá sig­ur­sæl­asti náði í sinn fyrsta sigur með þeim sig­ur­sæl­ustu Lewis Hamilton, sigursælasti ökuþór sögunnar í Formúlu 1, vann í dag sinn fyrsta sigur fyrir Ferrari. Þetta var tilfinningaþrungin stund fyrir hinn 41 árs gamla Hamilton, en þetta er hans fyrsti sigur í keppni í tæp tvö ár. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Árekst­ur við Hafn­ar­braut í Kópa­vogi Ragnhildur Helgadóttir Árekstur varð á Hafnarbraut á Kársnesi í Kópavogi fyrir skemmstu. Dælubíll og tveir sjúkrabílar voru sendir á vettvang samkvæmt varðstjóra hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu. Talið er að tveir séu með minniháttar áverka. Annað farartækið er strætisvagn að sögn varðstjóra en enginn farþegi var um borð. Aðsend Fyrir 7 tímumÍÞRÓTTIR Golf Hulda Clara önnur ís­lenska konan til að vinna at­vinnu­mót Hulda Clara Gestsdóttir vann í dag Czech Ladies Challenge mótið á LET Access mótaröðinni. Þar með er hún önnur íslenska konan til að vinna atvinnumót í golfi. Hulda lék alla þrjá hringina á pari. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Akureyrarbær Greiða leigu þrátt fyrir mikið rask á starf­semi vegna myglu Ríkisstofnanir á Akureyri hafa verið á hrakhólum síðan mygla greindist í starfsstöðvum þeirra að Borgum vorið 2024. Starfsfólk hefur ýmist unnið heima eða í öðru húsnæði. Þrátt fyrir rask hefur leiga verið greidd að fullu. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Leit og björgun Laus af strand­stað við Akurey Farþegabáturinn Skúlaskeið strandaði við Akurey í morgun með sextán um borð. Báturinn losnaði þegar flæddi að síðdegis. Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarfélagið Árborg Árborg heldur aftur af gjald­skrár­hækk­un­um til að vinna gegn verð­bólgu Sveitarfélagið Árborg hefur ákveðið að hækka ekki gjaldskrár sínar í fjárhagsáætlun umfram 2,5% vegna ársins 2027. Bæjarstjórinn hvetur önnur sveitarfélög og ríkið til að gera slíkt hið sama til að draga úr verðbólgu. Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Stjórnmál Stefnu­breyt­ing án umræðu mögu­leg upp­spretta ólgu innan Sam­fylk­ing­ar­inn­ar Stjórnmálafræðingur telur undirliggjandi ólgu í Samfylkingunni benda til þess að óánægja sé með fleira en bara útlendingamál innan flokksins. Stefnu flokksins hafi verið breytt mikið án umræðu eða formlegra ferla. Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Jarðhræringar Bárð­ar­bunga eins og glas sem er orðið hálf­fullt Öflug jarðskjálftahrina varð í Bárðarbungu í gær og í nótt. Jarðeðlisfræðingur líkir öskju Bárðarbungu við glas sem er orðið hálffullt, og því sé ólíklegt að fari að gjósa þar í bráð. Náttúran eigi það þó til að koma á óvart. Fyrir 8 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Sjónvarp Sex sjóð­heit­ir þættir til að horfa á í sól­inni Ekki er hægt að treysta á íslensku sumarsólina en í spilara RÚV má alltaf finna eitthvað fyrir alla, hvort sem það er dularfullt ástarævintýri, áratugagamlar ráðgátur, sameiginleg ást á kvikmyndum eða breskir grínarar sem villa á sér heimildum. Fyrir 8 tímumERLENDAR FRÉTTIR Kína Kín­verj­ar segja sjáv­ar­dýr notuð til njósna Þjóðaröryggisráðuneyti Kína heldur því fram að erlend ríki noti njósnaskjaldbökur og njósnafiska til að safna viðkvæmum gögnum um sjávarumhverfi á kínversku hafsvæði. Fyrir 9 tímumERLENDAR FRÉTTIR Sviss Sviss­lend­ing­ar hafna 10 millj­óna til­lög­unni í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu Útgönguspár í Sviss gefa til kynna að landsmenn hafi hafnað í þjóðaratkvæðagreiðslu tillögu um að takmörk yrðu sett á íbúafjölda landsins, þannig að ekki mættu fleiri búa þar en tíu milljónir. 14. júní 2026 kl. 11:12INNLENDAR FRÉTTIR Fjarskipti „Svar­aði enginn“ þegar hann reyndi að hringja á sjúkra­bíl Maður sem þurfti að kalla til sjúkrabíl á Skagaströnd á föstudagsmorgun segir að hann hafi ekki náð sambandi við 112 þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir. Framkvæmdastjóri Neyðarlínunnar telur þetta mögulega skýrast af lokun 3G-farsímakerfisins. 14. júní 2026 kl. 10:58MENNING OG DÆGURMÁL Heilsa Í nammi­bind­indi í 14 ár Ólöf Rún Tryggvadóttir fór ekki hefðbundna leið að því að gerast frumkvöðull og fyrirtækjaeigandi. Hún hætti ung í skóla og stofnaði fjölskyldu en söðlaði síðar um og fór í háskóla fertug því hún þráði að stofna fyrirtæki og ráða sér sjálf. 14. júní 2026 kl. 9:53INNLENDAR FRÉTTIR Jarðhræringar Stærsti skjálft­inn mæld­ist 4,8 – enginn gos­órói Skjálftav

Share this article