Innlent | Morgunblaðið | 15.6.2026 | 10:55 Hrinan í Bárðarbungu ódæmigerð Bárðarbunga. Myndin er tekin á flugi yfir þessu næsthæsta fjalli landsins skömmu áður en gos hófst í Holuhrauni. mbl.is/Þórður Kjartan Leifur Sigurðsson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Bárðarbunga Full ástæða til þess að vera á varðbergi 400 skjálftar hafa mælst Skjálftahrinan í rénun: Áfram á gulum kóða Færa kóða á gult: Hrinan líklega sú kröftugasta Annar öflugur skjálfti í Bárðarbungu » Fleiri tengdar fréttir Skjálftahrina, sem hófst í Bárðarbungu á laugardagskvöld og stóð yfir þangað til í gærmorgun, var óvenjuleg fyrir þetta svæði sökum þess hve lengi hún stóð yfir. Þetta segir Magnús Tumi Guðmundsson, prófessor í jarðeðlisfræði, en jörð skalf svo sannarlega við þetta næsthæsta fjall landsins um helgina. Skjálftarnir urðu rúmlega 400 talsins og var sá stærsti 4,8 að stærð. „Það er töluverð skjálftavirkni þarna en það er vanalega smáskjálftavirkni þangað til það kemur stór skjálfti og þá slaknar á öllu. Þetta sem við sjáum núna er öðruvísi, þetta eru nokkrir klukkutímar af öflugri skjálftavirkni. Þó að orkan í þessu sé ekki meiri heldur en í einum skjálfta af stærðinni 5,5 þá er þetta ekki dæmigert,“ segir Magnús í samtali við Morgunblaðið. Segir Magnús hrinuna þó eiga sér skýringar. „Bárðarbunga er askja og hún seig þarna á árunum 2014 til 2015 samhliða gosinu, það fóru rúmir tveir kílómetrar af kviku út undan Bárðarbungu og askjan seig um 65 metra. Síðan þá hefur hún verið að tjakkast upp aftur og skjálftarnir sem við sjáum núna tengjast því að miklu leyti,“ segir Magnús sem segir öskjuna hafa risið um um það bil 30 metra frá gosinu. Önnur skjálftahrina varð í Bárðarbungu í byrjun árs í fyrra og var sú hrina einnig nokkuð ódæmigerð að mati Magnúsar. Hann segir þó ómögulegt að segja til um það hvort eldgos kunni að vera í vændum. Seinast varð eldgos í námunda við Bárðarbungu árið 2014. Það varð í Holuhrauni og stóð yfir í um sex mánuði. Magnús segir að ekki sé vitað til þess að gos hafi orðið í sjálfri Bárðarbungu á síðastliðnum 1.200 árum en þess í stað sendir Bárðarbunga iðulega kviku út til hliðanna sem leiðir til eldgosa á borð við gosið í Holuhrauni árið 2013 og gosið í Gjálp árið 1996. Segir Magnús að ekki sé hægt að fullyrða um það hvort gos sé yfirvofandi í nánd við Bárðarbungu, það sé þó sannarlega ekki líklegasta sviðsmyndin. „Ef hún hegðar sér svipað og hún hefur gert hingað til þá er líklegt að hún þurfi að lyftast meira til að það gjósi, þannig það er líklegasta sviðsmyndin en það er ekki hægt að vera viss um neitt í þessu. Þess vegna verður að fylgjast mjög vel með Bárðarbungu, með mælingum af ýmsu tagi, til þess að sjá hvernig hún er að þróast. Veðurstofan hefur hækkað fluglitakóða fyrir Bárðarbungu upp í gulan. Magnús segist sammála þeirri ákvörðun, þótt það þýði ekki að gos sé yfirvofandi. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Tengdar fréttir Bárðarbunga Full ástæða til þess að vera á varðbergi 400 skjálftar hafa mælst Skjálftahrinan í rénun: Áfram á gulum kóða Færa kóða á gult: Hrinan líklega sú kröftugasta Annar öflugur skjálfti í Bárðarbungu » Fleiri tengdar fréttir Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Malbikað í Ártúnsbrekku í vikunni Hrinan í Bárðarbungu ódæmigerð Amorim verður næsti stjóri stórveldisins Einn stunginn með hnífi og þrír handteknir Norðaustanáttin sækir á um land allt Umræðan Fatlað fólk í samgönguáætlun Sum ríki greiða til ESB, önnur þiggja Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Einn stunginn með hnífi og þrír handteknir Meirapróf til að aka strumpastrætó Vilja stöðva íslenskar sérlausnir Læknir og dýralæknir rífa í stálið í Litáen Mest lesið Í gær Í vikunni Tugmilljarða áhrif á bankana fjóra Ríkið sakað um að brjóta samkomulag Ráðherra setur reglur um síma Myndskeið: Kötturinn Rambó elskar að fara í sturtu Fleiri andvígir en fylgjandi Degi sem varaformanni Besta veðrið norðaustan- og austanlands Landhelgisgæslan aðstoðaði við leit Komst í kynni við blóðsugur og köngulær Vilja stöðva íslenskar sérlausnir Fjölmennasta útskrift í sögu skólans Afritaði skilaboð og dreifði til starfsmanna Færa kóða á gult: Hrinan líklega sú kröftugasta Strætó illa farinn eftir árekstur Vilja stöðva íslenskar sérlausnir Full ástæða til þess að vera á varðbergi „Þetta verður svona algjört lífsgæðasvæði“ „Ég var í nýjum skóm í barnastærð“ Landhelgisgæslan aðstoðaði við leit Þrír slösuðust í árekstri á Norðurlandi Óku á göngugötu í miðbænum Stefnir í hlýjasta dag sumarsins Matarkarfan 40% ódýrari á Íslandi Réðst á dreng í sundi Flugstjórar með tæpar þrjár milljónir Afritaði skilaboð og dreifði til starfsmanna Pottinum fargað: „Okkur finnst þetta sóun“ Óttast er að hundruð missi vinnuna Gjaldtaka aukin með innviðafélagi Meirapróf til að aka strumpastrætó Höfðu afskipti af ágengum sölumönnum í Eyjum Nýjast á mbl.is » Malbikað í Ártúnsbrekku í vikunni Hrinan í Bárðarbungu ódæmigerð Amorim verður næsti stjóri stórveldisins Einn stunginn með hnífi og þrír handteknir Norðaustanáttin sækir á um land allt Umræðan Fatlað fólk í samgönguáætlun Sum ríki greiða til ESB, önnur þiggja Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Tugmilljarða áhrif á bankana fjóra Ætlar að verða sá fyrsti sem syndir Lagarfljót Þinglok nálgast nú óðfluga Nafnvextir einir segja lítið um húsnæðiskostnað Mest lesið Í gær Í vikunni Tugmilljarða áhrif á bankana fjóra Ríkið sakað um að brjóta samkomulag Ráðherra setur reglur um síma Myndskeið: Kötturinn Rambó elskar að fara í sturtu Fleiri andvígir en fylgjandi Degi sem varaformanni Besta veðrið norðaustan- og austanlands Landhelgisgæslan aðstoðaði við leit Komst í kynni við blóðsugur og köngulær Vilja stöðva íslenskar sérlausnir Fjölmennasta útskrift í sögu skólans Afritaði skilaboð og dreifði til starfsmanna Færa kóða á gult: Hrinan líklega sú kröftugasta Strætó illa farinn eftir árekstur Vilja stöðva íslenskar sérlausnir Full ástæða til þess að vera á varðbergi „Þetta verður svona algjört lífsgæðasvæði“ „Ég var í nýjum skóm í barnastærð“ Landhelgisgæslan aðstoðaði við leit Þrír slösuðust í árekstri á Norðurlandi Óku á göngugötu í miðbænum Stefnir í hlýjasta dag sumarsins Matarkarfan 40% ódýrari á Íslandi Réðst á dreng í sundi Flugstjórar með tæpar þrjár milljónir Afritaði skilaboð og dreifði til starfsmanna Pottinum fargað: „Okkur finnst þetta sóun“ Óttast er að hundruð missi vinnuna Gjaldtaka aukin með innviðafélagi Meirapróf til að aka strumpastrætó Höfðu afskipti af ágengum sölumönnum í Eyjum