Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Þrír handteknir eftir að maður var stunginn með hnífi

  • What: Three people injured in stabbing incident
  • Impact: Local community affected
Read Full Article →

Einn hlaut stungusár og annar var með sár á hendi eftir að til áfloga kom við Valhallarbraut í Reykjanesbraut á þriðja tímanum í nótt. Þrír voru handteknir og hyggst lögregla fara fram á gæsluvarðhald síðar í dag. Lögreglu var tilkynnt um slagsmál utandyra við Valhallarbraut um 20 mínútur í þrjú í nótt. Þar var fjöldi fólks saman kominn þegar lögreglu bar að. Einn maður var þá með stungusár og annar með sár á hendi. Sá sem var stunginn var fluttur á spítala. Hann er enn þar en er ekki í lífshættu. Sérsveit ríkislögreglustjóra var kölluð út til aðstoðar lögreglunni á Suðurnesjum. Hún hjálpaði til við leit að þeim sem eru grunaðir um árásina. Þrír voru handteknir og bíða þeir þess að vera yfirheyrðir. Lögreglan á Suðurnesjum greinir frá því á heimasíðu sinni að hún ætli að fara fram á gæsluvarðhald síðar í dag. Það er á grundvelli rannsóknarhagsmuna. Rannsóknin er á frumstigi.

Share this article