Mikið forskot Samfylkingarinnar á Sjálfstæðisflokkinn í könnunum Gallup hefur horfið á innan við ári. Ríkisstjórnin hefur tapað 8-11 þingmönnum eftir því hvort horft er til könnunar Gallup allan maí eða aðeins til síðustu viku mánaðarins. Gæta verður að vikmörkum í könnunum og ekki síst þegar horft er til aðeins einnar viku. Í ágúst í fyrra mældist Samfylkingin með 34,6% fylgi en Sjálfstæðisflokkurinn með 19,7%. Munurinn á flokkunum var því 14,9 prósentustig. Í lok maí mældist Sjálfstæðisflokkurinn hins vegar með 24,8% fylgi en Samfylkingin með 24,6%. Samfylkingin hefur misst fylgi nær viðstöðulaust frá ágúst og mældist með 28,4% í maí. Fylgi Sjálfstæðisflokksins hefur aukist stöðugt frá nóvember. Flokkurinn mældist með 17,1% í desember en 23,5% í maí. Skýrasta breytingin sést þó þegar horft er til vikulegra mælinga Gallup í maí. Í maímánuði lækkaði Samfylkingin aðeins um 0,1 prósentustig frá apríl. Þegar horft er til tveggja síðustu vikna mánaðarins var fylgi flokksins hins vegar mun lægra, eða í kringum 25%. Í síðustu viku maí mældist fylgi Samfylkingarinnar 24,6%. Sjálfstæðisflokkurinn mældist hins vegar með 24,8% fylgi í lok maímánaðar. Þessi þróun vekur spurningar um hvort sveitarstjórnarkosningarnar hafi markað þáttaskil í fylgi flokkanna. Lækkun Samfylkingarinnar í lok maí er í takt við niðurstöður sveitarstjórnarkosninganna, þar sem staða flokksins reyndist veikari en mánaðartölur Gallup höfðu gefið til kynna. Ríkisstjórnin fallin samkvæmt Gallup Samkvæmt mánaðarlegum þjóðarpúlsi Gallup í maí nutu ríkisstjórnarflokkarnir þrír samtals stuðnings 43% kjósenda og fengju 28 þingmenn ef kosið hefði verið þá. Ríkisstjórnin væri þar með fallin, enda þarf 32 þingmenn til að halda meirihluta á Alþingi. Flokkur Fólksins missir alla 10 þingmennina sem þeir fengu í síðustu kosningu og Viðreisn missir fjóra. Fylgisaukning Samfylkingarinnar lagar stöðuna nokkuð og fjölgar þingmönnum flokksins um 6 frá kosningum. Vikulegu mælingarnar í lok maí benda hins til enn veikari stöðu stjórnarflokkanna. Miðað við þá stöðu myndi Samfylkingin missa fjóra menn frá því sem mánaðarlegur þjóðarpúls Gallup gaf til kynna, Viðreisn myndi bæta við sig einum og þingmenn ríkisstjórnarflokkanna yrðu 25. Það væri því ellefu þingmönnum færra en ríkisstjórnarflokkarnir höfðu við upphaf kjörtímabilsins. Sjá einnig Sjálfstæðisflokkur stærri en Samfylkingin í lok maí