Félag í eigu Guðmundar Kristjánssonar, forstjóra og stærsta hluthafa Brims, hefur fest kaup á útgerðar- og fiskvinnslufyrirtækinu Þórsnesi í Stykkishólmi. Eggert Halldórsson, framkvæmdastjóri Þórsness, staðfestir þetta við mbl.is . Þórsnes er í 85% eigu Gunnlaugs Karls Hreinssonar hjá GPG fiskverkun á Húsavík sem keypti útgerðina í Stykkishólmi árið 2004. Eggert Halldórsson, framkvæmdastjóri Þórsnes, á auk þess 15% hlut í félaginu. „Það er stefnt að óbreyttri starfsemi í félaginu,“ segir Eggert í samtali við mbl.is. Hann mun áfram gegna stöðu framkvæmdastjóra. Sjá einnig 662 milljóna króna hagnaður Um 50 til 60 manns starfa hjá Þórsnesi á ársgrundvelli. Félagið velti tæplega 4,9 milljörðum króna árið og hagnaðist um rúmar 660 milljónir árið 2024, samkvæmt síðasta birta ársreikningi félagsins. Eignir Þórsness námu 8,6 milljörðum króna í árslok 2024 og eigið fé var um 2,5 milljarðar króna. Starfsfólki Þórsness var tilkynnt um kaupin á föstudaginn. Eggert kveðst ánægður með viðskiptin og bjartsýnn á framtíðina.