Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Biðla til fólks að athuga með símtæki sín

  • What: A report discusses potential issues with emergency call connectivity due to network shutdowns
  • Impact: 1% of mobile devices may lose emergency call capability
Read Full Article →

Innlent | mbl | 15.6.2026 | 17:06 Biðla til fólks að athuga með símtæki sín Hægt er að hringja í númerið 1280 til þess að ganga úr skugga um hvort að í lagi sé með símtæki. mbl.is/Eggert Jóhannesson Setja bókamerki Neyðarlínan, Fjarskiptastofa og fjarskiptafélögin vinna nú saman að því að komast að því hvers vegna íbúi á Skagaströnd náði ekki sambandi við Neyðarlínuna þegar hann þurfti þess fyrr í vikunni. Hrafnkell V. Gíslason forstjóri Fjarskiptastofu og Jón Svanberg Hjartarson framkvæmdastjóri Neyðarlínunnar segjast sammála þeirri kenningu að líklega hafi sambandsleysið tengst lokun á rafmagnskerfum hér á landi. Tekið er skýrt fram að um sé að ræða kenningu sem ekki er enn búið að sannreyna. 1% tækja á landsvísu geti ekki haft samband „2g-kerfum var lokað um áramótin og 3g-kerfunum núna 1. júní,“ segir Hrafnkell. Segir hann að eftir lokun kerfanna séu um 1% símtækja á landsvísu þannig gerð að ekki er hægt að hafa samband við neyðarlínu með þeim. Mikil vinna hefur verið sett í að vekja athygli á þessu og hefur fjöldi slíkra tækja lækkað frá um 30.000 í byrjun árs, niður í 6.000. Hann bendir einnig á að jafnvel ákveðin 4G-tæki geti átt í erfiðleikum með að hafa samband við neyðarlínu vegna ferlis sem á ensku er kallað circuit switch fallback. „Á sínum tíma voru 3G og 2G-kerfin mun útbreiddari en 4G-kerfin sem voru að koma inn. Þá datt einhverjum í hug að láta 4G-símana fara niður í 3G-tæknina þegar hringt er í neyðarlínu því þá voru meiri líkur á að hann næði sambandi,“ segir Hrafnkell. „Þannig getur fínasti 4G-sími virkað fullkomlega nema þegar þú hringir í 112.“ Hrafnkell V. Gíslason, forstjóri Fjarskiptastofu. Hringja í 1280 til þess að athuga Hrafnkell segir að unnið hafi verið að því að hafa samband við tæki sem geti lent í erfiðleikum með að ná sambandi við neyðarlínuna, jafnvel hafi í einhverjum tilvikum verið hringt í fólk. Einfaldasta leiðin til að ganga úr skugga um hvort að það sé í lagi með símtæki er þó að hringja í númerið 1280. Ef ekki næst samband við það númer skal hafa samband við fjarskiptafélagið sitt og fá aðstoð. Alvarlegt samfélagsmál Jón Svanberg segir það vera hagsmuni almennings sem liggi fyrir í þessu alvarlega máli. „Fólk á að geta náð sambandi við neyðarnúmer þegar það þarf, en til þess að það sé hægt þarf ýmislegt að spila saman,“ segir Jón og bætir við að það sé löng og flókin lína frá því að einhver hringi úr símanum sínum þangað til hann fái samband. „Fyrst þarf að vera fjarskiptasamband þar sem þú ert, síminn þarf að vera í lagi og studdur af þeim kerfum sem eru í notkun, síðan þarf tæknibúnaðurinn sem kemur þessu til skila til okkar að vera í lagi.“ Jón Svanberg Hjartarson, framkvæmdastjóri Neyðarlínunnar. mbl.is/Karítas Ísland þó í mjög góðum málum Miðað við önnur lönd segir Jón að Ísland sé eins vel sett og það gæti verið, það sé þó óásættanlegt að 6.000 tæki myndu ekki ná sambandi við 112 á neyðarstundu. Hann skorar á fólk að láta athuga með símtæki sín og skorar einnig á aðstandendur eldra fólks að kanna þetta fyrir fólkið sitt. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Seðlabanki gagnrýndi gjaldmiðlaskýrslu Biðla til fólks að athuga með símtæki sín Næstur á leið til Real Madrid? Spánn – Grænhöfðaeyjar, staðan er 0:0 Lést í teygjustökki því hún var ekki fest Umræðan Fatlað fólk í samgönguáætlun Sum ríki greiða til ESB, önnur þiggja Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Einn stunginn með hnífi og þrír handteknir Fleiri andvígir en fylgjandi Degi sem varaformanni Fleiri leiðir inn á húsnæðismarkað Tugmilljarða áhrif á bankana fjóra Mest lesið Í gær Í vikunni Árásin í húsi fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd Tugmilljarða áhrif á bankana fjóra Svar ráðherra „jaðri við rugl“ Erlendir ferðamenn lentu í árekstrinum Einn stunginn með hnífi og þrír handteknir Formaðurinn veikur heima í atkvæðagreiðslu Ráðherra setur reglur um síma Ríkið sakað um að brjóta samkomulag Myndskeið: Svona mun ný Þjóðarhöll líta út Vill fá íbúðir fyrir ofan Dönsku krána Afritaði skilaboð og dreifði til starfsmanna Færa kóða á gult: Hrinan líklega sú kröftugasta Strætó illa farinn eftir árekstur Vilja stöðva íslenskar sérlausnir Full ástæða til þess að vera á varðbergi „Þetta verður svona algjört lífsgæðasvæði“ „Ég var í nýjum skóm í barnastærð“ Landhelgisgæslan aðstoðaði við leit Þrír slösuðust í árekstri á Norðurlandi Óku á göngugötu í miðbænum Stefnir í hlýjasta dag sumarsins Matarkarfan 40% ódýrari á Íslandi Réðst á dreng í sundi Flugstjórar með tæpar þrjár milljónir Afritaði skilaboð og dreifði til starfsmanna Pottinum fargað: „Okkur finnst þetta sóun“ Óttast er að hundruð missi vinnuna Meirapróf til að aka strumpastrætó Gjaldtaka aukin með innviðafélagi Höfðu afskipti af ágengum sölumönnum í Eyjum Nýjast á mbl.is » Seðlabanki gagnrýndi gjaldmiðlaskýrslu Biðla til fólks að athuga með símtæki sín Næstur á leið til Real Madrid? Spánn – Grænhöfðaeyjar, staðan er 0:0 Lést í teygjustökki því hún var ekki fest Umræðan Fatlað fólk í samgönguáætlun Sum ríki greiða til ESB, önnur þiggja Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Fjármálaáætlun samþykkt Þinglok nálgast nú óðfluga Fundi lokið: „Þungt og erfitt samtal“ Svar ráðherra „jaðri við rugl“ Mest lesið Í gær Í vikunni Árásin í húsi fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd Tugmilljarða áhrif á bankana fjóra Svar ráðherra „jaðri við rugl“ Erlendir ferðamenn lentu í árekstrinum Einn stunginn með hnífi og þrír handteknir Formaðurinn veikur heima í atkvæðagreiðslu Ráðherra setur reglur um síma Ríkið sakað um að brjóta samkomulag Myndskeið: Svona mun ný Þjóðarhöll líta út Vill fá íbúðir fyrir ofan Dönsku krána Afritaði skilaboð og dreifði til starfsmanna Færa kóða á gult: Hrinan líklega sú kröftugasta Strætó illa farinn eftir árekstur Vilja stöðva íslenskar sérlausnir Full ástæða til þess að vera á varðbergi „Þetta verður svona algjört lífsgæðasvæði“ „Ég var í nýjum skóm í barnastærð“ Landhelgisgæslan aðstoðaði við leit Þrír slösuðust í árekstri á Norðurlandi Óku á göngugötu í miðbænum Stefnir í hlýjasta dag sumarsins Matarkarfan 40% ódýrari á Íslandi Réðst á dreng í sundi Flugstjórar með tæpar þrjár milljónir Afritaði skilaboð og dreifði til starfsmanna Pottinum fargað: „Okkur finnst þetta sóun“ Óttast er að hundruð missi vinnuna Meirapróf til að aka strumpastrætó Gjaldtaka aukin með innviðafélagi Höfðu afskipti af ágengum sölumönnum í Eyjum

Share this article