Framkvæmdasýslan - Ríkiseignir hefur tilkynnt Reitum að tilboði félagsins í útboði um uppbyggingu hjúkrunarheimilis á Akureyri hafi verið valið og metið hagstæðast samkvæmt valforsendum útboðslýsingar, að því er kemur fram í tilkynningu til Kauphallarinnar. Hjúkrunarheimilið mun rísa við Þursaholt 6, það verður um 9.100 fermetrar að stærð og mun hýsa 140 hjúkrunarrými. Leigutilboð Reita nemur 5.800 krónum á fermetra sem samsvarar 633 milljónum króna á ári og er rekstrarávöxtun af framkvæmdinni áætluð um 6% af framkvæmdakostnaði sem gert er ráð fyrir að verði um 8.900 milljónir króna. Að framkvæmdum loknum tekur við verðtryggður leigusamningur milli Reita og Ríkiseigna til 25 ára um hjúkrunarheimilið þar sem Reitir annast rekstur húsnæðisins en Ríkiseignir fela öðrum rekstur hjúkrunarheimilisins. Með nýrri vaxtarstefnu sem Reitir kynntu árið 2024 byrjaði fasteignafélagið að horfa til fleiri eignaflokka, þar á meðal hjúkrunarheimila. Guðni Aðalsteinsson, forstjóri Reita, sagði í viðtali við Viðskiptablaðið árið 2024 að félagið horfi ekki aðeins til þess að byggja hjúkrunarheimili heldur að þróa svæðin í kringum heimilin sem „lífsgæðakjarna“. Reitir gengu í fyrra til samninga við Ríkiseignir um leigu á Nauthólsvegi 50 í Reykjavík, sem hýsti áður höfuðstöðvar Icelandair, undir rekstur hjúkrunarheimilis til næstu 20 ára. Sjá einnig Gömlu höfuðstöðvar Icelandair verða hjúkrunarheimili