Security News

Cybersecurity news aggregator

LOW News RÚV

Vildu ekki senda sjúkrabíl þegar Neyðarlínan svaraði ekki

  • What: A man struggled to get an ambulance after his brother fell ill
  • Impact: Highlights issues with emergency response systems
Read Full Article →

Rúnar Jósefsson, íbúi á Skagaströnd, reyndi fimm sinnum að hringja í Neyðarlínuna á föstudagsmorgun þegar bróðir hans var hætt kominn vegna sýkingar í heila en alltaf hringdi út. Í millitíðinni náði hann sambandi í gegnum síma við bróðurdóttur sína sem býr í Fossvogi í Reykjavík, sem og Heilbrigðisstofnun Norðurlands, svo ljóst er að samband var á síma hans. Bróðurdóttir hans reyndi einnig tvívegis að hringja í 112 en fékk ekki svar. Hún náði sambandi í þriðju tilraun. Neyðarlínan vildi þá ekki senda sjúkrabíl af stað, án þess að ræða við einhvern á staðnum. Rúnar hringdi að lokum í Heilbrigðisstofnun Norðurlands á Blönduósi, sem vildi heldur ekki senda sjúkrabílinn nema boðin kæmu frá Neyðarlínunni. Loks tókst Rúnari að fá bíl sendan á staðinn og hann keyrði á móti og mætti bílnum á miðri leið frá Blönduósi. Fljótlega eftir það var bróðir hans kominn í öndunarvél. Forstjóri Heilbrigðisstofnunar Norðurlands, Jón Helgi Björnsson, segir að verkferlum hafi verið fylgt. Almennt sé ekki hægt að hringja í heilbrigðisstofnun og óska eftir neyðarflutningi. Undantekningarnar, eins og þessar, þurfi að skoða. Neyðarsímtöl náðu ekki í gegn þegar maður á Skagaströnd og kona í Fossvogi reyndu ítrekað að kalla eftir aðstoð síðasta föstudag. Þá vildi Heilbrigðisstofnun Norðurlands ekki senda sjúkrabíl af stað, þar sem beiðnin kom ekki frá Neyðarlínunni.

Share this article