Security News

Cybersecurity news aggregator

MEDIUM Attacks RÚV

Lúkasjenkó biður Zelensky afsökunar og segist ekki ætla að beina spjótum hersins að Úkraínu

  • What: Belarusian leader denies military attacks against Ukraine
  • Impact: Political tensions and military posturing in the region
Read Full Article →

Alexander Lúkasjenkó, leiðtogi Belarús, segir enga hernaðarógn stafa frá landinu í garð Úkraínumanna. Alexander Lúkasjenkó forseti Belarús.Belta / EPA-EFE „Úkraína þarf ekki að óttast hernaðaraðgerðir af hálfu Belarús og enn síður af minni hálfu,“ sagði Lúkasjenkó í viðtali á sjónvarpsstöðinni Al Arabiya. Hann viðurkenndi að með þessari yfirlýsingu vildi hann bregðast við yfirlýsingum Úkraínuhers um að hann hefði um fimm hundruð skotmörk í Belarús í sigtinu. Lúkasjenkó bað jafnframt Volodymyr Zelensky Úkraínuforseta afsökunar á öllum harðneskjulegum orðum sem hann hefði látið falla í hans garð.

Share this article