Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Framkvæmdastjóri Framsóknarflokksins segir upp starfi sínu

Read Full Article →

Helgi Héðinsson, framkvæmdastjóri Framsóknarflokksins, hefur látið af störfum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Helga á Facebook . Hann segir ákvörðunina ekki hafa verið léttvæga en að hann hafi tilkynnt báðum formannsframbjóðendum ákvörðun sína á sunnudaginn. Ingibjörg Isaksen og Lilja Alfreðsdóttir tókust á um forystusætið um helgina og hlaut Lilja kosningu sem nýr formaður. Helgi segir að hann hafi tilkynnt ákvörðun sína fyrir kosningu til þess að hafið væri yfir allan vafa að ákvörðun hans væri með engum hætti tengd því hvor þeirra bæri sigur úr bítum. „Umhverfi stjórnmálanna er áhugavert en það er ákaflega krefjandi. Það sem vegur þyngst í þessari ákvörðun er þörfin fyrir aukið svigrúm og rými fyrir fjölskylduna mína. Þau sem starfað hafa á þessum vettvangi þekkja að þetta getur enginn gert einn og óstuddur og til þess að vinna þetta starf af þeim metnaði sem það krefst verður að færa fórnir,“ segir Helgi í tilkynningu sinni. Hann óskar Lilju og nýrri forystu flokksins til hamingju og þakkar þá einnig Sigurði Inga Jóhannssyni, fráfarandi formanni, fyrir samstarfið. Helgi hefur starfað sem framkvæmdastjóri Framsóknarflokksins síðan 2023 og tók þá við af Teiti Erlingssyni.

Share this article