Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Inga snúin aftur úr veikindaleyfi: „Nú er skvísan á leiðinni á ríkisstjórnarfund“

Read Full Article →

Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra og formaður Flokks fólksins, er snúin aftur úr 18 daga veikindaleyfi. Inga tilkynnti endurkomu sína í beinu streymi á Facebook-reikningi sínum í dag, þar sem hún var á leiðinni á ríkisstjórnarfund. Þar kvaðst ráðherrann hafa glímt við skæða flensu. „Nú er skvísan á leiðinni á ríkisstjórnarfund. Ég er búin að ná mér eftir þessa leiðindaflensu sem ég er búin að vera að glíma við eins og svo margir landsmenn,“ segir Inga og bendir á að kjörnir fulltrúar hljóti engar undantekningar þegar komi að veikindum. „Við erum ekki róbottar.“ Eftir ríkisstjórnarfund séu atkvæðagreiðslur á þinginu fram undan og kvaðst Inga spennt að snúa aftur til starfa.

Share this article