Innlent | mbl | 16.6.2026 | 11:14 Þrír áfrýja til Hæstaréttar Stefán, Lúkas og kona sem var ákærð hafa lagt inn áfrýjunarbeiðni til Hæstaréttar. Samsett mynd/mbl.is/Eyþór Birta Hannesdóttir [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Gufunesmálið Litið til þess að þeir hefðu sýnt iðrun Gufunesmálið: Átti von á mildari dómi „Auðvitað ákveðin vonbrigði“ Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Stefán, Lúkas Geir og Matthías mættu í Landsrétt » Fleiri tengdar fréttir Þrír sakborningar í Gufunesmálinu svokallaða hafa lagt inn áfrýjunarbeiðni til Hæstaréttar. Þetta staðfesta verjendur þeirra í samtali við mbl.is. Þeir sakborningar sem hafa áfrýjað dómi Landsréttar eru Stefán Blackburn, Lúkas Geir Ingvarsson og kona sem var ákærð í málinu. Stefán, Lúkas og Matthías Björn Erlingsson voru ákærðir fyrir manndráp, frelsissviptingu og rán með því að hafa 11. mars á síðasta ári svipt Hjörleif Hauk Guðmundsson lífi. Matthías, sem hlaut tólf ára dóm í Landsrétti, hefur ákveðið að áfrýja ekki dómnum. Sævar Þór Jónsson, lögmaður Matthíasar, segir að farið hafi verið yfir niðurstöðu Landréttar með tilliti til hagsmuna Matthíasar. „Þegar litið er til allra aðstæðna er það mat hans að niðurstaðan í Landsrétti hafi verið ásættanleg. Matthías mun una þeirri niðurstöðu og verður því ekki óskað eftir áfrýjunarleyfi til Hæstaréttar. Málinu er þar með lokið hvað hans þátt varðar,“ segir í svari Sævars. Frétt af mbl.is Landsréttur mildar og þyngir dóma í Gufunesmálinu Málið reynst þungbært Dómur yfir Matthíasi var mildaður í Landsrétti en hann hafði verið dæmdur í fjórtán ára fangelsi í héraði. Í svari Sævars segir að málið hafi reynst Matthíasi og aðstandendum hans erfitt og nú muni hann einbeita sér að því að byggja upp líf sitt. Vilja láta endurskoða viðsnúning Landsréttur mildaði og þyngdi dóma Héraðsdóms Suðurlands í málinu 13. maí. Stefán Blackburn og Lúkas Geir Ingvarsson fengu báðir sautján ára dóm í héraði. Landsréttur mildaði dóma þeirra lítillega og dæmdi þá í 16 ára fangelsi. Kona sem var ákærð í málinu var sú eina sem fékk þyngri dóm í Landsrétti. Hún var ákærð fyrir hlutdeild í frelsissviptingu og ráni. Landsréttur sakfelldi hana fyrir hlutdeild í frelsissviptingu en hún var sýknuð af hlutdeild í ráni. Hlaut hún sex mánaða skilorðsbundið fangelsi í Landsrétti. „Það er nauðsynlegt að þessi viðsnúningur Landsréttar sæti endurskoðun. Manni sýnist dómurinn ekki standast rökfræðilega athugun,“ segir Jón Bjarni Kristjánsson, lögmaður konunnar, í samtali við mbl.is. Fjórði maðurinn sem var ákærður í málinu fékk tveggja ára skilorðsbundinn dóm í héraði en var sýknaður í Landsrétti. Hæstiréttur hefur ekki tekið afstöðu til áfrýjunarbeiðni sakborninganna og því er óljóst hvort æðsta dómstig landsins taki málið fyrir. Tengdar fréttir Gufunesmálið Litið til þess að þeir hefðu sýnt iðrun Gufunesmálið: Átti von á mildari dómi „Auðvitað ákveðin vonbrigði“ Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Stefán, Lúkas Geir og Matthías mættu í Landsrétt » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Þrír áfrýja til Hæstaréttar Gylfi skrifar undir nýjan samning Útboð SpaceX stærra en áætlað var Nýtt nafn á lista Manchester United Dæmdir fyrir að höggva hönd af manni Umræðan Hjólað inn í framtíðina Hagsmunagæsla utanríkisráðherra gagnvart Bandaríkjunum Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Það myndast þarna smá vonarglæta“ Úr sauðburðinum í stálið Seðlabanki gagnrýndi gjaldmiðlaskýrslu Aðgerðaáætlun vegna heilabilunar Mest lesið Í gær Í vikunni Stungu af með kranabíl Þorgerður svarar Diljá Mist Myndir: Burðarverk Fossvogsbrúar skagar upp úr sæ Mikill meirihluti gesta Íslendingar „Það myndast þarna smá vonarglæta“ Kostnaður af evru gæti numið hundruðum milljarða Spilin stokkuð upp á nýtt í Grindavik „Svo réð ég hvort ég hlustaði“ Eiga von á yfir 100 skemmtiferðaskipum í sumar Sigurgeir farinn af stað Fátíður en sláandi atburður Árásin í húsi fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd Tugmilljarða áhrif á bankana fjóra Erlendir ferðamenn lentu í árekstrinum Svar ráðherra „jaðri við rugl“ Fundi lokið: „Þungt og erfitt samtal“ Biðla til fólks að athuga með símtæki sín Einn stunginn með hnífi og þrír handteknir Formaðurinn veikur heima í atkvæðagreiðslu Ráðherra setur reglur um síma Stefnir í hlýjasta dag sumarsins Matarkarfan 40% ódýrari á Íslandi Réðst á dreng í sundi Flugstjórar með tæpar þrjár milljónir Afritaði skilaboð og dreifði til starfsmanna Pottinum fargað: „Okkur finnst þetta sóun“ Óttast er að hundruð missi vinnuna Fátíður en sláandi atburður Meirapróf til að aka strumpastrætó Höfðu afskipti af ágengum sölumönnum í Eyjum Nýjast á mbl.is » Þrír áfrýja til Hæstaréttar Gylfi skrifar undir nýjan samning Útboð SpaceX stærra en áætlað var Nýtt nafn á lista Manchester United Dæmdir fyrir að höggva hönd af manni Umræðan Hjólað inn í framtíðina Hagsmunagæsla utanríkisráðherra gagnvart Bandaríkjunum Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Seðlabanki gagnrýndi gjaldmiðlaskýrslu Fundi lokið: „Þungt og erfitt samtal“ Árásin í húsi fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd „Það myndast þarna smá vonarglæta“ Mest lesið Í gær Í vikunni Stungu af með kranabíl Þorgerður svarar Diljá Mist Myndir: Burðarverk Fossvogsbrúar skagar upp úr sæ Mikill meirihluti gesta Íslendingar „Það myndast þarna smá vonarglæta“ Kostnaður af evru gæti numið hundruðum milljarða Spilin stokkuð upp á nýtt í Grindavik „Svo réð ég hvort ég hlustaði“ Eiga von á yfir 100 skemmtiferðaskipum í sumar Sigurgeir farinn af stað Fátíður en sláandi atburður Árásin í húsi fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd Tugmilljarða áhrif á bankana fjóra Erlendir ferðamenn lentu í árekstrinum Svar ráðherra „jaðri við rugl“ Fundi lokið: „Þungt og erfitt samtal“ Biðla til fólks að athuga með símtæki sín Einn stunginn með hnífi og þrír handteknir Formaðurinn veikur heima í atkvæðagreiðslu Ráðherra setur reglur um síma Stefnir í hlýjasta dag sumarsins Matarkarfan 40% ódýrari á Íslandi Réðst á dreng í sundi Flugstjórar með tæpar þrjár milljónir Afritaði skilaboð og dreifði til starfsmanna Pottinum fargað: „Okkur finnst þetta sóun“ Óttast er að hundruð missi vinnuna Fátíður en sláandi atburður Meirapróf til að aka strumpastrætó Höfðu afskipti af ágengum sölumönnum í Eyjum