- What: Gallup reports 65% of Icelanders use AI
- Impact: AI adoption is growing rapidly across Iceland
Þróun gervigreindar hefur verið hröð undanfarin ár og sérstaklega síðustu misseri og fáar atvinnugreinar hafa farið varhluta af henni. Frá því að OpenAI kynnti GPT-4 vorið 2023 hefur hver kynslóðin tekið við af annarri. GPT-5.1 leit dagsins ljós síðasta haust, Anthropic hefur sent frá sér Claude Opus 4.7 og Google hefur kynnt Gemini 3.5 Flash. Stóru líkönin hafa færst úr því að vera spjallmenni yfir í svokallaða umboðsgervigreind (e. agentic AI) sem getur unnið sjálfstætt að flóknum verkefnum, skrifað kóða, greint gögn og keyrt vafra. Microsoft, Google, Amazon og Meta hafa varið hundruðum milljarða dollara í gagnaver og sérhæfða grafíska örgjörva (GPU) á undanförnum árum og samkeppnin er ekki lengur bundin við bandarísk fyrirtæki. Kínverska fyrirtækið DeepSeek vakti heimsathygli í byrjun árs 2025 með opnu líkani sem skilaði svipuðum árangri og þekkt líkön fyrir brot af kostnaðinum. Hefur þetta þrýst niður verði á gervigreindarþjónustu. Samkvæmt OpenAI nota yfir 92% Fortune 500-fyrirtækja vörur fyrirtækisins í einhverri mynd. Ný könnun Gallup Gervigreindartæknin er smám saman að verða hluti af daglegu lífi fólks. Samkvæmt könnun, sem Gallup gerði fyrir Frjálsa verslun, nýta 65% landsmanna sér gervigreind með einhverjum hætti. Til samanburðar mældist hlutfallið innan við þriðjungur í sambærilegri könnun fyrirtækisins fyrir tveimur árum. Konur ívið virkari en karlar Þegar svörin eru greind nánar kemur í ljós að 37% segjast nýta gervigreind bæði persónulega og í vinnu, 23% eingöngu persónulega og 5% eingöngu vegna vinnu. Tæp 35% segjast ekki nýta sér gervigreind. Lítill munur er á kynjunum. Konur eru ívið virkari notendur en karlar, eða 67% á móti 64%. Í afstöðu eftir aldri er munurinn hins vegar verulegur. Notkunin er mest hjá fólki á aldrinum 30–39 ára, þar sem 79% segjast nota gervigreind og fellur svo eftir því sem ofar dregur. Aðeins 31% þeirra sem eru 70 ára eða eldri segjast nota tæknina. Í könnun Gallup eru ennfremur áhugarverðar niðurstöður um notkun gervigreindar eftir stjórnmálaskoðunum. Einnig var fólk spurt að því hvort það telji að gervigreind muni fækka eða fjölga störfum. Nánar er fjallað um málið í veglegu tímriti Frjálsrar verslunar, sem kemur út á morgun. Hægt er að kaupa ritið hér .