Vegagerðin hefur óskað eftir því að Breiðafjarðarferjan Baldur verði lengur í Vestmannaeyjum en upphaflega stóð til. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Ferjuleiðum ehf. sem birt var á Facebook í gærkvöld. Baldur mun sinna áætlunarferðum milli Landeyjahafnar og Vestmannaeyja þar til viðgerð á Herjólfi er lokið um miðjan júlí. Ferjan Baldur er í eigu Vegagerðarinnar og því getur Vegagerðin ráðstafað skipinu til siglinga til og frá Vestmannaeyjum, líkt og fram kemur í tilkynningu Ferjuleiða. Farþegabáturinn Særún siglir áfram til og frá Flatey. Upplýsingar um siglingaáætlun Særúnar má finna hjá Ferjuleiðum á Facebook og á ferja.is .