Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Aukning í loðnu vegi mögulega upp niðurskurð

Read Full Article →

Hafrannsóknastofnun leggur til 81 prósents aukningu á aflamarki í loðnu fyrir komandi vetrarvertíð. Í hlut íslenskra útgerða kæmu þá um 272 þúsund tonn í stað um 150 þúsund tonna á síðustu vertíð. Meðal annarra tíðinda úr ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar er 20 prósenta lækkun í ýsu og lækkun í þorski um eitt prósent. Loðnan skilar kannski tuttugu milljarða viðbót „Þetta er náttúrlega gríðarleg uppsveifla í loðnunniog við erum kannski að sjá tuttugu milljarða aukningu í henni,“ segir Gunnþór Ingvason, framkvæmdastjóri Síldarvinnslunnar og formaður Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi. Vonbrigði í síldinni „En við erum líka að sjá mikla niðursveiflu í bolfiski, sérstaklega í ýsunni. Og uppsjávarmegin erum við náttúrlega að sjá vonbrigði í síldinni sem maður er svolítið hissa á og ósáttur við. En ef maður skoðar aukninguna í norsk-íslensku síldinni má kannski segja að hún vegi upp niðurskurðinn í íslensku og að síldarmagnið í umferð verði svipað.“ Var búinn undir meiri niðurskurð í þorski Þannig að þótt þessi upphafsráðgjöf Hafrannsóknastofnunar varðandi loðnuna sé gríðarlega jákvæð segir Gunnþór það á sama tíma vera gífurleg vonbrigði að fara ekki að sjá einhvern vöxt í þorskstofninum. „En að sama skapi var búið að byggja upp væntingar um að við mættum búast við meiri niðurskurði þar. Það er ekki jákvætt að sjá þorskinn í mínus, að sjá ekki einhvern vöxt, en við vorum að búa okkur að mörgu leyti undir verri tölu þar,“ segir Gunnþór. Mikið högg í ýsu og ufsa Niðurskurð í ýsunni segir Gunnþór mikið högg. Það sama eigi við um ufsa þótt það komi síður á óvart. „Það hefur náttúrlega gengið illa að veiða ufsann og við höfum ekki verið að ná öllum kvótanum.“ Fá ekki sama verð fyrir alla loðnuna Í lok janúar á þessu ári áætlaði Gunnþór að loðnuvertíðin þá myndi skila um 35 til 40 milljörðum króna. Hann segir ekki rétt að einfaldlega umreikna þær tölur miðað við fyrrgreinda 81 prósents aukningu kvótans. Afli umfram 200 til 250 þúsund tonn í mjöl- og lýsisvinnslu „Menn verða að nota lægri tölur á þessi viðbótartonn í loðnunni,“ segir Gunnþór. „Það er búin að vera mikil pressa á loðnuverð út af mikilli framleiðslu og það verður ekkert auðveldlega unnið meira magn inn á markaðinn en var í vetur nema verð lækki. Þegar komið er umfram 200-250 þúsund tonn er verið að tala um tonn sem fara í mjöl- og lýsisvinnslu og í ódýrari afurðir.“ Færu átján til tuttugu milljarða niður án loðnunnar Heilt yfir segist Gunnþór telja að með aukningunni loðnunni fari aflaverðmæti í heild mögulega í plús eða verði á núlli. „Loðnan vegur upp á móti niðurskurði í öðrum tegundum. Án loðnunnar væri þetta niðurskurður upp á kannski 18 til 20 milljarða.“

Share this article