Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Viðrar vel til hátíðarhalda í borginni

Read Full Article →

Á höfuðborgarsvæðinu nær vindur sér varla á strik í dag og hiti verður um 10 til 15 stig. Hins vegar má búast við hvössum vindstrengjum við suðausturströndina sem gætu myndað varasamar aðstæður fyrir ökutæki sem taka á sig mikinn vind. Lægð suður af landinu veldur stífri norðaustanátt í dag, víða 8 til 15 metrar á sekúndu. Rigning og svalt veður fylgir norðaustanáttinni á austanverðu landinu. Vestanlands verður að mestu þurrt og fremur milt. Einhverjir dropar gætu þó fallið á Suðurlandsundirlendinu. Hiti verður á bilinu 6 til 15 stig, hlýjast á Suðvesturlandi. Á Akureyri má búast við dálítilli rigningu og 7 til 11 stiga hita. Litlar breytingar eiga að verða á morgun og á föstudag en þó á að draga úr vindi á Suðausturlandi.

Share this article