Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Brotlegir gætu verið sendir til þriðja lands

  • What: Iceland is considering sending foreign nationals who have committed serious crimes to third countries if they cannot be safely returned to their home country.
  • Impact: Changes to immigration law now allow authorities to revoke international protection for individuals who commit serious or repeated offenses or pose a threat to national security.
Read Full Article →

Óvíst er hvernig hægt verður að afturkalla vernd útlendings sem hefur brotið alvarlega af sér, séu aðstæður ekki tryggar í heimalandi hans. Dómsmálaráðherra segir endursendingar til þriðja ríkis til umræðu. Breytingar á útlendingalögum voru samþykktar á Alþingi í gær og nú hafa stjórnvöld heimild til að afturkalla alþjóðlega vernd ef útlendingur fremur alvarleg eða ítrekuð brot eða telst ógn við öryggi ríkisins. Samkvæmt alþjóðalögum má ekki senda fólk til landa þar sem öryggi þess er ógnað. „Það, sem er til umræðu í Evrópu allri og mikið innan Evrópusambandsins er hvað við gerum í þeim tilvikum þar sem manneskjan kemur frá þannig landi að það er ekki talið öruggt,“ segir Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra. Nýverið samþykkti Evrópuþingið heimild ESB-ríkja til að senda útlendinga, sem hafa gerst sekir um alvarleg brot, til annarra landa en heimalanda sinna - séu þau ekki örugg og hún tekur gildi í júní. Norðurlandaráðherrar halda fund „Ég funda seinna í vikunni með ráðherrum hinna Norðurlandanna þar sem við erum að ræða þetta: endursendingar til þriðju ríkja. Hvort það sé leið sem við getum farið í sameiningu en við erum á fyrstu punktum þessa samtals,“ segir Þorbjörg Sigríður. Hún segir að þessi leið hafi verið rædd innan ríkisstjórnarinnar, en einstök lönd hafi ekki verið rædd í þessu samhengi. „Við höfum rætt þetta óformlega, ég hef ekki farið með neinar tillögur inn í ríkisstjórn, enda vorum við bara fyrst í gær að ná fram þessu frumvarpi.“ En hvað annað kemur til greina ef vernd hefur verið afturkölluð og aðstæður í heimalandi viðkomandi eru ekki tryggar? „Hin löndin hafa farið þá leið að þá eru menn í úrræðum innanlands.“ Langtímavistun í brottfararstöð væri neyðarúrræði Ráðherra segir að það væri neyðarúrræði að vista fólk til langtíma í brottfararstöð - sem til stendur að koma upp á Suðurnesjum - en hún er ætluð til skammtímadvalar. „En auðvitað væri hægt að nýta húsið í þeim tilgangi.“ Ríkisstjórnin hefur rætt þann möguleika að senda brotlega útlendinga til svokallaðs þriðja lands ef aðstæður í heimalandi þeirra teljast ekki öruggar. Dómsmálaráðherrar Norðurlandanna ræða endursendingar á fundi í vikunni.

Share this article