Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Fjallaði um Evrópuumræðu og leiðtogafund

Read Full Article →

Innlent | mbl | 17.6.2026 | 12:14 Fjallaði um Evrópuumræðu og leiðtogafund Halla Tómasdóttir við hátíðahöldin í dag. mbl.is/Anton Brink Setja bókamerki Tengdar fréttir 17. júní „Þetta er alltaf stór dagur á Jómfrúnni“ Eva Laufey: Ómótstæðilegar vöfflur á 17. júní Perutertan er ómissandi á 17. júní Fullkominn forréttur til að deila Þjóðleg pönnukökukaka í tilefni dagsins » Fleiri tengdar fréttir Nú þegar fram undan eru mikilvægar ákvarðanir um framtíð Íslands og samskipti okkar við aðrar þjóðir veltur farsæld samfélagsins á því að við lítum á hvert annað sem samferðafólk fremur en andstæðinga. Þetta var á meðal þess sem Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, sagði í hátíðarræðu sinni á Austurvelli í dag. Meðal þess sem Halla kom inn á í ræðu sinni var að í ár væru 40 ár liðin frá leiðtogafundi Ronalds Reagans og Mikhail Gorbatsjof í Höfða árið 1986. Halla hefur nú gegnt embætti forseta í tæp tvö ár. mbl.is/Anton Brink Fjallabræður hreyfðu við forsetanum Forsetinn hóf ræðu sína á því að segja að flest ættum við stað sem við köllum „heima“ og að fyrir okkur sem þjóð væri Ísland slík heimahöfn. Minntist hún þess að á undan nýársávarpi hennar í janúar hefðu Fjallabræður flutt lagið Heimahöfn. Hún sagði texta lagsins hafa hreyft við sér. „Heimahöfn er staður þar sem við njótum öryggis, þar sem okkur líður vel og við finnum til samkenndar. Hún er staðurinn sem við leggjum upp frá til að kanna ókunna stigu. Hún er staðurinn sem tekur á móti okkur með opnum örmum, hvernig sem við erum. Kannski er eitt mikilvægasta verkefni hverrar manneskju - og hverrar þjóðar - að styrkja sína heimahöfn,“ sagði Halla. Halla var klædd í þjóðbúning. mbl.is/Anton Brink Samtíminn reyni á samtakamáttinn Sagði Halla tímana sem við lifum á reyna á samtakamáttinn. Ófriður væri að vaxa víða um heim og traust milli manna og þjóða væri að veikjast. „Fram undan eru mikilvægar ákvarðanir um framtíð Íslands og samskipti okkar við aðrar þjóðir. Skoðanir eru skiptar. Það er eðlilegt. Skoðanaskipti eru kjarni lýðræðisins. En lýðræði byggir ekki aðeins á skoðanafrelsi - á rétti okkar til að vera ósammála. Það byggir ekki síður á hæfni okkar til að hlusta, skilja sjónarmið annarra og leita sameiginlegra lausna. Farsæld samfélagsins veltur á því að við lítum hvert á annað sem samferðafólk fremur en andstæðinga,“ sagði Halla sem vísaði þar augljóslega til umræðunnar um mögulega aðild Íslands að Evrópusambandinu. Frá hátíðahöldunum. mbl.is/Anton Brink Áminning um áhrifamátt samtalsins Eins og áður segir minntist Halla þess að 40 ár væru liðin frá leiðtogafundinum í Höfða. Í hvítu húsi við hafið hafi verið stigið mikilvægt skref til að byggja upp traust milli stórveldanna, skref í átt til friðar. Sagði hún fundinn vera heiminum öllum áminningu um áhrifamátt samtalsins. Fundurinn vekti vonir um að jafnvel á tímum djúpstæðs ágreinings sé hægt að brúa bil, sætta ólík sjónarmið og leita sameiginlegra lausna. Sagði Halla að á þessum tímamótum verði þjóðin að staldra við og spyrja hvernig við styrkjum okkar heimahöfn. Hún segir fjölbreyttan hóp einstaklinga nú vinna að því að halda fund í október þar sem fólk um allt land komi saman og eigi samtal um framtíð Íslands. „Lögð verður rík áhersla á að ungt fólk verði þar í veigamiklu hlutverki. Það er ekki aðeins brýnt að við, sem eldri erum, hlustum á næstu kynslóð heldur þurfum við að skapa henni raunverulegt rými til að móta framtíðina með okkur.“ Tengdar fréttir 17. júní „Þetta er alltaf stór dagur á Jómfrúnni“ Eva Laufey: Ómótstæðilegar vöfflur á 17. júní Perutertan er ómissandi á 17. júní Fullkominn forréttur til að deila Þjóðleg pönnukökukaka í tilefni dagsins » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Fjallaði um Evrópuumræðu og leiðtogafund Búlgaría eða Írland ef Vestri vinnur Elín Sif er fjallkonan Gerir lítið úr skotum Rússa Trump hótar Íran að „varpa sprengjum á höfuð þeirra“ Umræðan Megi Ísland ráða sínum málum Sjálfstæði er verkefni hverrar kynslóðar Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ráðherra sagður stefna að innleiðingu Norðmenn fjölga sprengjuathvörfum „Þeir sem stöðva svona skilja ekki tæknina“ Spilin stokkuð upp á nýtt í Grindavik Mest lesið Í gær Í vikunni Valdimar lætur af störfum Evrópusambandið bar mútur á íslenska ríkið Fría gosið farið úr Ameríkufluginu Ráðherra sagður stefna að innleiðingu „Þeir sem stöðva svona skilja ekki tæknina“ Sérsveitin kölluð til eftir að maður ógnaði með hnífi Krumma bjargað sem sat fastur upp í tré Fánar dregnir að húni um allan bæ Varað við snörpum vindhviðum Engin ástæða til að gráta fjársjóðinn Stungu af með kranabíl Lögreglumaður: Ming varð fyrir miklum vonbrigðum Þorgerður svarar Diljá Mist Þrír fluttir með þyrlu eftir alvarlegt umferðarslys Myndir: Burðarverk Fossvogsbrúar skagar upp úr sæ Mikill meirihluti gesta Íslendingar Þrír áfrýja til Hæstaréttar Kastaðist úr golfbíl eftir árekstur Lofaði konunni sinni að taka pásu Fría gosið farið úr Ameríkufluginu Stefnir í hlýjasta dag sumarsins Matarkarfan 40% ódýrari á Íslandi Réðst á dreng í sundi Flugstjórar með tæpar þrjár milljónir Afritaði skilaboð og dreifði til starfsmanna Fátíður en sláandi atburður Óttast er að hundruð missi vinnuna Stungu af með kranabíl Meirapróf til að aka strumpastrætó Höfðu afskipti af ágengum sölumönnum í Eyjum Nýjast á mbl.is » Fjallaði um Evrópuumræðu og leiðtogafund Búlgaría eða Írland ef Vestri vinnur Elín Sif er fjallkonan Gerir lítið úr skotum Rússa Trump hótar Íran að „varpa sprengjum á höfuð þeirra“ Umræðan Megi Ísland ráða sínum málum Sjálfstæði er verkefni hverrar kynslóðar Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ekkert sem bendir til geðræns vanda „Það myndast þarna smá vonarglæta“ Tveir í gæsluvarðhald vegna árásar í Reykjanesbæ Lögreglumaður: Ming varð fyrir miklum vonbrigðum Mest lesið Í gær Í vikunni Valdimar lætur af störfum Evrópusambandið bar mútur á íslenska ríkið Fría gosið farið úr Ameríkufluginu Ráðherra sagður stefna að innleiðingu „Þeir sem stöðva svona skilja ekki tæknina“ Sérsveitin kölluð til eftir að maður ógnaði með hnífi Krumma bjargað sem sat fastur upp í tré Fánar dregnir að húni um allan bæ Varað við snörpum vindhviðum Engin ástæða til að gráta fjársjóðinn Stungu af með kranabíl Lögreglumaður: Ming varð fyrir miklum vonbrigðum Þorgerður svarar Diljá Mist Þrír fluttir með þyrlu eftir alvarlegt umferðarslys Myndir: Burðarverk Fossvogsbrúar skagar upp úr sæ Mikill meirihluti gesta Íslendingar Þrír áfrýja til Hæstaréttar Kastaðist úr golfbíl eftir árekstur Lofaði konunni sinni að taka pásu Fría gosið farið úr Ameríkufluginu Stefnir í hlýjasta dag sumarsins Matarkarfan 40% ódýrari á Íslandi Réðst á dreng í sundi Flugstjórar með tæpar þrjár milljónir Afritaði skilaboð og dreifði til starfsmanna Fátíður en sláandi atburður Óttast er að hundruð missi vinnuna Stungu af með kranabíl Meirapróf til að aka strumpastrætó Höfðu afskipti af ágengum sölumönnum í Eyjum

Share this article