Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Vilja friða 4,3% af efnahagslögsögunni

Read Full Article →

200 mílur | Morgunblaðið | 18.6.2026 | 10:42 Vilja friða 4,3% af efnahagslögsögunni Bláriddari gægist undan postulínskóral í Háfadjúpi sunnan við Vestmannaeyjar. Ljósmynd/Hafrannsóknastofnun Fjóla K. Guðmundsdóttir [email protected] Setja bókamerki Hafrannsóknastofnun hefur lagt til að stórt svæði sunnan við landið verði friðlýst en það yrði umfangsmesta friðlýsing hafsvæðis við Ísland til þessa. Fyrir eru friðlýst svæði við landið um það bil 1,6% af 200 mílna efnahagslögsögu Íslands en nýtt svæði er töluvert stærra, eða 4,3%. Svæðið sem um ræðir nær frá landgrunnshlíðum Suðurlands, frá Háfadjúpi í vestri til Papagrunns í austri og niður fyrir gil og hryggi sem ganga inn í landgrunnskantinn. Friðlýsingin nær til alls þess sem gæti haft áhrif á botninn en ein helsta ástæða þess að friðlýsing er talin mikilvæg er vegna viðkvæmra kórala. Þorri kóralrifa sem áður uxu á landgrunnsbrúninni er horfinn vegna botnveiða. Steinunn Hilma Ólafsdóttir er sjávarlíffræðingur hjá Hafrannsóknastofnun. Þegar slegið var á þráðinn til hennar var hún lögð af stað í tveggja vikna leiðangur með rannsóknaskipinu Þórunni Þórðardóttur til að kortleggja búsvæði úti fyrir Austurlandi og Norðurlandi. Ástand svæða er metið út frá ýmsum þáttum og í sumum tilfellum er það metið sem svo að svæðið þarfnist friðunar. Kort/mbl.is/Hafrannsóknastofnun Hugsað út í fleira en veiðar „Í kantinum og landgrunnshlíðinni eru lifandi kóralrif enn þá. Dýpra eru svo aðrar kóraltegundir, ekki endilega rifmyndandi, en aðrar tegundir,“ segir Steinunn og útskýrir að gljúfrakerfið hafi verið skoðað í heild. „Það skapast ákveðnar aðstæður á hafsbotninum þegar þú ert með svona hryggi og gljúfur og rásir, þannig að umhverfið er mjög fjölbreytt.“ Svæðið sem um ræðir er að mestu fyrir utan hefðbundnar togslóðir og spurningin er því hvers vegna haft sé fyrir því að friðlýsa svæðið sérstaklega. „Þó að lítið sé verið að veiða þarna núna þá hefur það gerið gert í gegnum tíðina,“ segir hún og á einna helst við landgrunnskantinn sem er á jaðri svæðisins. „Þarna erum við bara búin að taka frá svæði sem hefur ákveðið gildi varðandi líffræðilega fjölbreytni og vistkerfið.“ Steinunn H. Ólafsdóttir sjávarlíffræðingur við rannsóknir á kalkþörungum vestan við landið. Ljósmynd/Laure de Montety Steinunn segir jafnframt að þótt veiðar séu vissulega mesti áhrifavaldurinn á lífríki sjávarbotnsins hér við land, þá sé það ekki eina ástæðan til að stofna til friðunar ákveðinna svæða. Friðlýsing myndi einnig ná til athafna sem gætu átt sér stað í framtíðinni. Til að mynda hefur námugröftur á hafsbotni undanfarið færst í vöxt víða um heim. Ef til framkvæmda kæmi væri þá búið að tilgreina svæði sem sérstaklega þarf að gæta að. 30% vernd fyrir 2030 Íslensk stjórnvöld hafa einsett sér að ná alþjóðlegum markmiðum Sameinuðu þjóðanna um verndun land- og hafsvæða fyrir árið 2030. Skammur tími er til stefnu en Steinunn segir mikla undirbúningsvinnu í gangi. „Við erum að setja meiri kraft í þetta. Við erum að reyna að þróa aðferðafræðina við að meta svæðin og skilja hvað er innan þeirra og hvað það sé þá sem er verndarvert,“ segir hún. „Síðan þurfum við að átta okkur á því fyrir hverju þarf að vernda og hvernig vernduninni skuli háttað.“ Verkefnið um 30% vernd svæða er á borði umhverfisráðuneytisins en Hafrannsóknastofnun starfar undir hatti atvinnuvegaráðuneytisins. „Hefðin hefur verið að vernd í hafi hefur meira verið undir reglugerðarfriðunum fiskveiðilöggjafarinnar,“ bendir Steinunn á. Ljóst er að verkefnið kallar á uppbrettingu erma og virka samvinnu á milli ráðuneyta ef markmið eiga að nást fyrir árið 2030. Frétt af mbl.is Segir ræðu ráðherra stefnumarkandi Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Mest lesið Í gær Í vikunni Rofin olíuleiðsla leiddi til eldsprengingar Guðmundur kaupir útgerð í Stykkishólmi Elísa Dögg nýr framkvæmdastjóri hjá Eimskipi Steypireyðar snúa aftur til Skjálfandaflóa Loðnuráðgjöf hækkar um 81% Strandveiðimenn bíða í óvissu Hrikaleg vonbrigði með ýsuna Vilja stöðva íslenskar sérlausnir Hvalveiðibátarnir gerðir klárir fyrir komandi vertíð Brim segir upp 20 starfsmönnum Steypireyðar snúa aftur til Skjálfandaflóa Rofin olíuleiðsla leiddi til eldsprengingar Guðmundur kaupir útgerð í Stykkishólmi Elísa Dögg nýr framkvæmdastjóri hjá Eimskipi Vilja stöðva íslenskar sérlausnir Hvalveiðibátarnir gerðir klárir fyrir komandi vertíð Loðnuráðgjöf hækkar um 81% Strandveiðimenn bíða í óvissu Hrikaleg vonbrigði með ýsuna Brim segir upp 20 starfsmönnum Vilja stöðva íslenskar sérlausnir Guðmundur kaupir útgerð í Stykkishólmi Rofin olíuleiðsla leiddi til eldsprengingar Hrikaleg vonbrigði með ýsuna Elísa Dögg nýr framkvæmdastjóri hjá Eimskipi Skerða um 1% í þorski og 20% í ýsu Steypireyðar snúa aftur til Skjálfandaflóa Strandveiðimenn bíða í óvissu Loðnuráðgjöf hækkar um 81% 66°Norður litu til upprunans Fleira áhugavert Engin ástæða til að gráta fjársjóðinn Aflýstu 17. júní vegna veðurs Ríkisstjórnin „secreti“ sig í gegnum fjármálaáætlunina Samkeppnishæfni Íslands minnkar Afurðaverð » Afurð Dags. Meðalverð Þorskur, óslægður 16.6.26 588,95 kr/kg Þorskur, slægður 16.6.26 736,67 kr/kg Ýsa, óslægð 16.6.26 642,18 kr/kg Ýsa, slægð 16.6.26 499,51 kr/kg Ufsi, óslægður 16.6.26 224,52 kr/kg Ufsi, slægður 16.6.26 391,12 kr/kg Djúpkarfi 4.5.26 160,00 kr/kg Gullkarfi 16.6.26 272,97 kr/kg Litli karfi 1.6.26 25,00 kr/kg Blálanga, óslægð 4.6.26 388,23 kr/kg Fleiri tegundir » Nýjustu landanir » 18.6.26 Von BA 192 Handfæri Þorskur 162 kg Samtals 162 kg 18.6.26 Jón Pétur RE 411 Grásleppunet Grásleppa 842 kg Þorskur 23 kg Samtals 865 kg 18.6.26 Drangavík VE 80 Botnvarpa Steinbítur 1.060 kg Samtals 1.060 kg 18.6.26 Þinganes SF 25 Botnvarpa Þorskur 3.104 kg Samtals 3.104 kg 18.6.26 Njörður ÞH 444 Handfæri Þorskur 216 kg Ufsi 70 kg Samtals 286 kg Skoða allar landanir » Mest lesið Í gær Í vikunni Rofin olíuleiðsla leiddi til eldsprengingar Guðmundur kaupir útgerð í Stykkishólmi Elísa Dögg nýr framkvæmdastjóri hjá Eimskipi Steypireyðar snúa aftur til Skjálfandaflóa Loðnuráðgjöf hækkar um 81% Strandveiðimenn bíða í óvissu Hrikaleg vonbrigði með ýsuna Vilja stöðva íslenskar sérlausnir Hvalveiðibátarnir gerðir klárir fyrir komandi vertíð Brim segir upp 20 starfsmönnum Steypireyðar snúa aftur til Skjálfandaflóa Rofin olíuleiðsla leiddi til eldsprengingar Guðmundur kaupir útgerð í Stykkishólmi Elísa Dögg nýr framkvæmdastjóri hjá Eimskipi Vilja stöðva íslenskar sérlausnir Hvalveiðibátarnir gerðir klárir fyrir komandi vertíð Loðnuráðgjöf hækkar um 81% Strandveiðimenn bíða í óvissu Hrikaleg vonbrigði með ýsuna Brim segir upp 20 starfsmönnum Vilja stöðva íslenskar sérlausnir Guðmundur kaupir útgerð í Stykkishólmi Rofin olíuleiðsla leiddi til eldsprengingar Hrikaleg vonbrigði með ýsuna Elísa Dögg nýr framkvæmdastjóri hjá Eimskipi Skerða um 1% í þorski og 20% í ýsu Steypireyðar snúa aftur til Skjálfandaflóa Strandveiðimenn bíða í óvissu Loðnuráðgjöf hækkar um 81% 66°Norður litu til upprunans Fleira áhugavert Dagur fagnar höllinni: „Loksins, loksins!“ Ríkisstjórnin „secreti“ sig í gegnum fjármálaáætlunina Norðmenn fjölga sprengjuathvörfum Íslenski rabarbarinn varla notaður á Íslandi Afurðaverð » Afurð Dags. Meðalverð Þorskur, óslægður 16.6.26 588,95 kr/kg Þorskur, slægður 16.6.26 736,67 kr/kg Ýsa, óslægð 16.6.26 642,18 kr/kg Ýsa, slægð 16.6.26 499,51 kr/kg Ufsi, óslægður 16.6.26 224,52 kr/kg Ufsi, slægður 16.6.26 391,12 kr/kg Djúpkarfi 4.5.26 160,00 kr/kg Gullkarfi 16.6.26 272,97 kr/kg Litli karfi 1.6.26 25,00 kr/kg Blálanga, óslægð 4.6.26 388,23 kr/kg Fleiri tegundir » Nýjustu landanir » 18.6.26 Von BA 192 Handfæri Þorskur 162 kg Samtals 162 kg 18.6.26 Jón Pétur RE 411 Grásleppunet Grásleppa 842 kg Þorskur 23 kg Samtals 865 kg 18.6.26 Drangavík VE 80 Botnvarpa Steinbítur 1.060 kg Samtals 1.060 kg 18.6.26 Þinganes SF 25 Botnvarpa Þorskur 3.104 kg Samtals 3.104 kg 18.6.26 Njörður ÞH 444 Handfæri Þorskur 216 kg Ufsi 70 kg Samtals 286 kg Skoða allar landanir »

Share this article