Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Jón Björn ráðinn sveitarstjóri Eyjafjarðarsveitar

Read Full Article →

Jón Björn Hákonarson hefur verið ráðinn sveitarstjóri Eyjafjarðarsveitar. Frá þessu segir í tilkynningu á vef sveitarfélagsins. Jón Björn hefur unnið að sveitarstjórnarmálum frá 1994. Hann var meðal annars í bæjarstjórn Fjarðabyggðar og forseti bæjarstjórnar á árunum 2010 til 2020 og bæjarstjóri frá 2020 til 2023. Þá hefur Jón Björn sinnt margvíslegum trúnaðarstörfum og er í dag formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga. Í tilkynningunni segir að sveitarstjórn bindi vonir við að „reynsla Jóns Björns, víðtækt tengslanet og skýr sýn á þróun sveitarfélaga muni nýtast vel í áframhaldandi uppbyggingu Eyjafjarðarsveitar og í þjónustu við íbúa samfélagsins“. 25 sóttu um starfið, en 10 drógu umsögnina til baka. Auður Thorberg Bragi Þór Thoroddsen Einar Kristján Jónsson Elísabet Friðriksdóttir Gísli Ólafsson Hallur Guðmundsson Hermann Jóhannesson Jóhannes Valgeirsson Jón Björn Hákonarson Jón Hrói Finnsson Jónas Egilsson Katrín Dóra Þorsteinsdóttir Kári Gautason Ketill Sigurður Jóelsson Kristján Óli Níels Sigmundsson Lilja Birgisdóttir Magena Marinósdóttir Magnús Ingi Jónsson Maríanna H. Helgadóttir Nanna Lind Stefánsdóttir Ragna Berg Gunnarsdóttir Sigríður Bjarnadóttir Stefanía Guðrún Kristinsdóttir Sævar Freyr Sigurðsson Þorsteinn Þorsteinsson

Share this article