Innlent | mbl | 18.6.2026 | 14:29 Lækkunin skili sér ekki til neytenda Verð hér á landi hafi lítið breyst að undanförnu. mbl.is/Karítas Setja bókamerki „ Það hafa verið miklar sveiflur á alþjóðlegum olíumörkuðum undanfarið. Aukin bjartsýni um frið í Íran og yfirlýsingar um undirritun friðarsamnings næsta föstudag hafa skilað lægra heimsmarkaðsverði á olíu. Þessi lækkun virðist ekki vera að skila sér til íslenskra neytenda.“ Á þessum orðum hefst tilkynning á vef Félags íslenskra bifreiðaeigenda (FÍB) sem var birt 16. júní, en þar er fjallað um að verðlag eldsneytis hér á landi hafi lítið breyst að undanförnu. Er vísað til þeirra aðgerða ríkisstjórnarinnar frá því í vor að lækka virðisaukaskatt á eldsneyti úr 24% í 11%. Breytingin tók gildi 1. maí. Frétt af mbl.is Lækkun á dælu og vöktun á verðlagningu Samanburður á verði í mars og júní athyglisverður Í fréttinni segir að áhugavert sé að bera saman verð fyrir tæpum þremur mánuðum og svo aftur núna. Þá hafi heimsmarkaðsverð á olíu og gengi Bandaríkjadals verið á svipuðu róli og núna. „ Tíu daga samanburður á bensínverði frá 16. til 24. mars sl. við tíu síðustu dagana í júní er athyglisverður, “ segir í fréttinni. Þá hafi meðalverð á bensínlítra á heimsmarkaði umreiknað í íslenskar krónur fyrir mars tímabilið verið 100,60 krónur. Vegið meðallítraverð til neytenda frá dælu á íslenska markaðnum þá var 216,20 krónur en þá með 24% virðisaukaskatti. Sé verðið umreiknað miðað við 11% virðisaukaskatt eins og er í gildi tímabundið, þá fer lítraverðið til neytenda í 193,50 krónur. „ Meðalheimsmarkaðasverð á lítra síðustu 10 daga er 100,40 krónur og vegið meðalútsöluverð frá dælu 215,90 krónur. Verðið núna er því ríflega 22 krónum hærra síðustu dagana samanborið við útsöluverðið í mars. “ Tímabundin lækkun virðisaukaskatts skili sér ekki til neytenda Bensínverðið um þessar mundir sé því nánast það sama og fyrir tæpum þremur mánuðum þegar virðisaukaskatturinn á hvern lítra var 24% en ekki 11%. „Tímabundin lækkun virðisaukaskatts virðist ekki vera að skila sér til neytenda og það væri áhugavert að fá skýringar á þessum mikla verðmun. “ Frétt af mbl.is Lækkun eldsneytisgjalda skili sér beint til neytenda Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Hefja sölu á GTA 6 í næstu viku Skóflustunga nýrrar legudeildar Margrét Helga Jóhannsdóttir látin Úr Hafnarfirði í Breiðholtið Lækkunin skili sér ekki til neytenda Umræðan Vextir, verð og húsnæðisvandinn Aðgerðaleysi eykur líkur á að kjarasamningum verði sagt upp Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Samningur Bandaríkjanna við Íran birtur Dóttirin reyndi sennilega að losa sig Myndskeið: Glannalegur framúrakstur Minni skortur en í ESB Mest lesið Í gær Í vikunni Lögreglan um framúraksturinn: „Hvorki staður né stund“ Myndskeið: Glannalegur framúrakstur Hundraða þúsunda kostnaður á íbúa Ráðuneytið auglýsti loks stöðuna Dóttirin reyndi sennilega að losa sig Aflýstu 17. júní vegna veðurs Jón Björn ráðinn sveitarstjóri Auglýsingatími lengist og aukin aðsókn í óverðtryggð lán Íslenski rabarbarinn varla notaður á Íslandi Minni skortur en í ESB Myndskeið: Glannalegur framúrakstur Aflýstu 17. júní vegna veðurs Slagsmál brutust út á milli ökumanna Valdimar lætur af störfum Fjórtán sæmdir íslensku fálkaorðunni Evrópusambandið bar mútur á íslenska ríkið Einn fær 20 milljónir Óskar Íslandi til hamingju með daginn Ráðherra sagður stefna að innleiðingu Íslenski rabarbarinn varla notaður á Íslandi Myndskeið: Glannalegur framúrakstur Matarkarfan 40% ódýrari á Íslandi Réðst á dreng í sundi Flugstjórar með tæpar þrjár milljónir Aflýstu 17. júní vegna veðurs Afritaði skilaboð og dreifði til starfsmanna Fátíður en sláandi atburður Óttast er að hundruð missi vinnuna Stungu af með kranabíl Meirapróf til að aka strumpastrætó Nýjast á mbl.is » Hefja sölu á GTA 6 í næstu viku Skóflustunga nýrrar legudeildar Margrét Helga Jóhannsdóttir látin Úr Hafnarfirði í Breiðholtið Lækkunin skili sér ekki til neytenda Umræðan Vextir, verð og húsnæðisvandinn Aðgerðaleysi eykur líkur á að kjarasamningum verði sagt upp Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ráðherra sagður stefna að innleiðingu Dóttirin reyndi sennilega að losa sig Myndskeið: Glannalegur framúrakstur Var háð foreldrum sínum og vildi ekki flytja út Mest lesið Í gær Í vikunni Lögreglan um framúraksturinn: „Hvorki staður né stund“ Myndskeið: Glannalegur framúrakstur Hundraða þúsunda kostnaður á íbúa Ráðuneytið auglýsti loks stöðuna Dóttirin reyndi sennilega að losa sig Aflýstu 17. júní vegna veðurs Jón Björn ráðinn sveitarstjóri Auglýsingatími lengist og aukin aðsókn í óverðtryggð lán Íslenski rabarbarinn varla notaður á Íslandi Minni skortur en í ESB Myndskeið: Glannalegur framúrakstur Aflýstu 17. júní vegna veðurs Slagsmál brutust út á milli ökumanna Valdimar lætur af störfum Fjórtán sæmdir íslensku fálkaorðunni Evrópusambandið bar mútur á íslenska ríkið Einn fær 20 milljónir Óskar Íslandi til hamingju með daginn Ráðherra sagður stefna að innleiðingu Íslenski rabarbarinn varla notaður á Íslandi Myndskeið: Glannalegur framúrakstur Matarkarfan 40% ódýrari á Íslandi Réðst á dreng í sundi Flugstjórar með tæpar þrjár milljónir Aflýstu 17. júní vegna veðurs Afritaði skilaboð og dreifði til starfsmanna Fátíður en sláandi atburður Óttast er að hundruð missi vinnuna Stungu af með kranabíl Meirapróf til að aka strumpastrætó