- What: Stricter conditions for foreign students' residency permits
- Impact: Foreign students may need to meet new requirements
Alþingi samþykkti í dag að herða skilyrði fyrir dvalarleyfi erlendra nema með breytingum á lögum um útlendinga og lögum um atvinnuréttindi útlendinga. Með breytingunni ber erlendum nemum að sýna reglulega fram á námsárangur, fjölskyldusameining þeirra takmarkast við maka og börn og dvalarleyfi vegna atvinnuleitar að námi loknu styttist í úr þremur árum í 18 mánuði. Í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins segir að með breytingunni verði framkvæmdin færð nær því sem tíðkast annars staðar á Norðurlöndunum. Tölur hafi sýnt óeðlilega ásókn í dvalarleyfi námsmanna á stuttum tíma og niðurstöður starfshóps leitt í ljós að íslenskt regluverk var rýmra en annars staðar á Norðurlöndunum. „Hér erum við að herða skilyrði til að stemma stigu við misnotkun á dvalarleyfiskerfinu í gegnum námsmannaleyfi. Erlendir ríkisborgarar eru svo sannarlega áfram velkomnir til Íslands til þess að mennta sig. Það er kýrskýrt. Í haust mun ég svo leggja fram heildarendurskoðun á dvalarleyfiskafla útlendingalaga,“ er haft eftir Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur dómsmálaráðherra. Í frumvarpinu er einnig kveðið á um tilfærslu á afgreiðslu og útgáfu atvinnu- og dvalarleyfa til Útlendingastofnunar til einföldunar fyrir umsækjendur.