- What: Icelandair's stock price increased due to oil price drops
- Impact: Investors and shareholders are affected by the stock movement
Hlutabréfaverð Icelandair hækkaði um 5% í yfir 150 milljóna króna veltu á aðalmarkaði Kauphallarinnar í dag og stendur nú í 0,80 krónum á hlut. Hlutabréfaverð flugfélagsins hefur nú hækkað um 20% frá því að það náði sínu lægsta dagslokagengi í 0,66 krónum á hlut þann 4. júní síðastliðinn. Gera má ráð fyrir að hækkunin á gengi hlutabréfa Icelandair skýrist af mikilli lækkun á heimsmarkaðsverði olíu í kjölfar þess að Bandaríkin og Íran náðu saman um friðarsamkomulag. Verð á framvirkum samningum með Brent-hráolíu hefur lækkað um meira en 20% í mánuðinum og nemur nú 77,4 dölum á tunnu. Þá tilkynntu Icelandair og Félag íslenskra atvinnuflugmanna (FÍA) eftir lokun markaða á þriðjudaginn um að félögin hefðu ákveðið að samþykkja tillögu ríkissáttasemjara að verkstýrðri verkáætlun undir friðarskyldu í kjarasamningsviðræðum flugmanna. Stefnt er að því að ljúka viðræðum fyrir 15. september nk. Úrvalsvísitalan stóð nánast í stað í 2 milljarða króna veltu á aðalmarkaði Kauphallarinnar í dag. Langmesta veltan, eða yfir 600 milljónir króna, var með hlutabréf Íslandsbanka sem lækkuðu um 0,4% og stendur gengi bankans nú í 143,2 krónum á hlut. Alvotech lækkaði mest af félögum aðalmarkaðarins eða um 2,4% í 72 milljóna króna veltu. Gengi líftæknifyrirtækisins stendur nú í 485 krónum á hlut og er um 3,6% hærra en 468 króna útgáfuverðið í nýloknum hlutafjárútboðum félagsins þar sem það sótti samtals 20,6 milljarða króna. Sjá einnig Sækja allt að 20,6 milljarða á genginu 468 krónur