Kanadíska veislan byrjaði á 16. mínútu með marki Cyle Larin. Jonathan David bætti öðru marki við á 29. mínútu. Útlitið varð þó fyrst svart fyrir Katar þegar Homam El Amin fékk reisupassann á 33. mínútu. David bætti öðru marki við á 45. mínútu og staðan 3-0 í hálfleik. Katar hafði þó bjargað á línu skömmu áður. Í seinni hálfleik fékk Assim Madibo rautt spjald fyrir brot á Kone sem fótbrotnaði illa. Saliba skoraði mark á 63. mínútu og fagnaði með treyju Kone. Katar gerði sjálfsmark á 78. mínútu. Jonathan David fullkomnaði þrennu sína í uppbótartíma. Kanada er nú í efsta sæti riðilsins ásamt Sviss, Bosníu og Hersegóvínu og Katar. Sviss vann 4-1 sigur gegn Bosníumönnum og eru Kanada og Sviss í ágætis málum.