Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

13 þúsund fermetra nýbygging við SAk verður risin 2030

Read Full Article →

Helstu bakhjarlar verkefnisins tóku fyrstu skóflustungurnar og grófu sjö myndarlegar holur með tilþrifum. Sunnan Sjúkrahússins á Akureyri á að rísa yfir þrettán þúsund fermetra bygging, sem stórbætir aðstöðu lyflækninga-, skurð- og geðdeilda. Áætlað er að framkvæmdum ljúki að mestu eftir fjögur ár, 2030 og byggingin verði tekin í notkun árið eftir. Heilbrigðisráðherra sagði við athöfnina í dag að bygging sjúkrahúss væri engin geimvísindi – heldur talsvert flóknara. Jarðvinna fyrir nýja byggingu sunnan við Sjúkrahúsið á Akureyri er fram undan. Byrjað var að ræða bygginguna fyrir meira en tuttugu árum. Hvað stendur til að byggja? Legudeildarbyggingin verður 13.600 m². Í nýbyggingunni, sem tengist núverandi húsnæði, verður komið upp aðstöðu fyrir skurðlækningadeild með 36 stofur, lyflækningadeild, einnig með 36 stofur, og geðdeild með 12 sjúkrastofur og tvær öryggiseiningar fyrir geðgjörgæslu ásamt stoðrýmum og dag- og göngudeild geðdeildar. Nýbyggingin verður sunnan við núverandi byggingar á lóð sjúkrahússins og tengd við þær. Minniháttar breytingar verða gerðar vegna tengingarinnar og breytinga á vörumóttöku. Nýbyggingin verður þar sem nú eru bílastæði og þau verða færð til og þeim fjölgað til samræmis við stærri byggingar. „Auðvitað geta alltaf orðið einhverjar tafir, en það er samt komin heilmikil reynsla hjá Nýjum Landspítala ohf. sem fer með þetta verk í að byggja,“ segir Alma, spurð hvort raunhæft sé að byggingin verði risin eftir fimm ár. Það eru ekki nema 18 dagar síðan nýr forstjóri sjúkrahússins stimplaði sig inn á sína fyrstu vakt. Á þeim tíma hefur komið í ljós að gamli Kristnesspítali er ónothæfur vegna myglu- og rakaskemmda. Þar hefur SAk rekið endurhæfingar- og öldrunardeild. Viðbúið að það þurfi að skerða þjónustu vegna lokunar Kristness Enn er verið leita lausna en stefnt á að leigja 800 fermetra húsnæði frá 1. september. „Þegar við þurfum að gera svona miklar breytingar á því þá er viðbúið að það verði einhver þjónustuskerðing, en við erum að gera allt sem í okkar valdi stendur til þess að að tryggja að þjónustan verði eins góð og kostur er“, segir Guðjón Hauksson, forstjóri SAk. Tækifæri til að byggja meira þegar fram líða stundir Og það segir aðeins hluta sögunnar því víðar hefur verið húsnæðisvandi og í um 20 ár hefur þörf fyrir nýja byggingu við sjúkrahúsið legið fyrir. Alma segir því ekki úr vegi að fara að huga að frekari stækkun. „Það er rými hérna í kring, þannig að það er alveg tækifæri til að byggja enn meira þegar fram líða stundir“, segir Alma Möller, heilbrigðisráðherra.

Share this article