- What: Increased interest in training with AI tools like Claude
- Impact: More people are learning to use AI for work and productivity
Viðskipti | Morgunblaðið | 19.6.2026 | 10:56 Margir vilja læra á Claude Þórdís kennir m.a. hvernig hægt er að láta gervigreind vinna með manni á skipulagðan og skilvirkan hátt. mbl.is/Karítas Þóroddur Bjarnason [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Gervigreind Spáir aukinni þörf fyrir starfsfólk „Þeir sem stöðva svona skilja ekki tæknina“ Funda eftir að Hvíta húsið stöðvaði uppfærslu Gervigreindin geti gengið frá kaupum Verður Musk billjónamæringur í dag? » Fleiri tengdar fréttir Vaxandi áhugi á notkun gervigreindar endurspeglast vel í mikilli eftirspurn eftir námskeiðum í hagnýtingu tækninnar. Sem dæmi þá er Þórdís Jóna Ingigerðardóttir, tölvunarfræðingur og einn stofnandi sprotafyrirtækisins Revera, á góðri leið með að fylla þriðja námskeið sitt um praktíska notkun gervigreindartólsins Claude. Í samtali við Morgunblaðið segir Þórdís að hún kenni fólki meðal annars hvernig hægt sé að láta gervigreind vinna með manni á skipulagðan og skilvirkan hátt í stað þess að nota hana eingöngu eins og leitarvél, eins og margir virðist gera. Stofnað af frumkvöðlum Áður en við ræðum meira um námskeiðið upplýsir Þórdís blaðamann um að Revera hafi verið stofnað í janúar 2025 af nokkrum frumkvöðlum. „Við bæði vinnum fyrir utanaðkomandi viðskiptavini og þróum okkar eigin hugmyndir,“ segir Þórdís. Meðal verkefna eru vefsíður sem fyrirtækið vinnur í samstarfi við vaxtarstofuna Digido. „Við sérhæfum okkur í lausnum sem skapa virði fyrir samfélagið. Við einblínum gjarnan á að vefsíðan sé ekki bara falleg heldur að hún geti aukið tekjur fyrirtækjanna.“ Í viðskiptavinahópnum eru t.d. hótel og önnur ferðaþjónustufyrirtæki ásamt Orku náttúrunnar. Þórdís nýtir sér gervigreindina í daglegum störfum. Meðal eigin verkefna Revera er lestrarleikurinn LESA sem væntanlegur er í haust. Hann er unninn í samstarfi við Miðeind, 14islands og Miðstöð menntunar og skólaþjónustu að sögn Þórdísar. „Hugmyndin er að gera það sama og tungumálaforritið vinsæla Dualingo er að gera, nema fyrir lestur. Forritið er ætlað yngstu börnunum. Það skiptir svo miklu máli fyrir framtíðina að ná tökum á lestri sem fyrst.“ Áhugasöm um skilvirkni Þórdís segist lengi hafa verið mjög áhugasöm um skilvirkni og bestu leiðirnar til að gera hluti. „Þess vegna fór ég snemma að nota gervigreindina. Ég nota mest Claude Cowork.“ Cowork er eins og Þórdís útskýrir ein af fjórum aðferðum til að nota Claude. „Forritið getur gert lífið skemmtilegra, losað mann við handavinnu og leiðinleg endurtekningasöm verkefni.“ Spurð að dæmum um hvernig Claude getur hjálpað nefnir Þórdís ráðningu nýs starfsmanns. „Það þarf að bæta honum inn í fullt af tólum innan mismunandi deilda og gervigreindin getur séð um það. Þá getur Claude séð um að halda til haga upplýsingum í verkefnum sem eru farin að dragast á langinn. Forritið fer yfir öll þau forrit sem þú ert að vinna í og gerir samantekt, raðar öllu upp, flokkar eftir mikilvægi og gerir tillögu að dagskrá. Claude verður þinn einkaþjónn.“ Þórdís segir að forritið nýtist bæði heima og í vinnu. „Gervigreindin er eitt merkilegasta tól sem menn hafa fengið í hendurnar í mjög langan tíma. Það getur verið nákvæmlega það sem þú vilt að það sé, haldið utan um fjármálin, afmælin, dagbókina og innkaupin sem dæmi.“ Þórdís segir að Claude geti aukið starfsánægju. „Ánægðir starfsmenn smita út frá sér og eru góðir fyrir vinnustaðinn,“ segir Þórdís að lokum. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Tengdar fréttir Gervigreind Spáir aukinni þörf fyrir starfsfólk „Þeir sem stöðva svona skilja ekki tæknina“ Funda eftir að Hvíta húsið stöðvaði uppfærslu Gervigreindin geti gengið frá kaupum Verður Musk billjónamæringur í dag? » Fleiri tengdar fréttir Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Pistlar » Sigurður Már Jónsson Sjálfstæðir Skotar heimsóttir Sigurður Már Jónsson Sjálfstæðir Skotar heimsóttir Fleira áhugavert 16 drepnir í loftárásum á Líbanon „Vona að menn fari kátir út í sumarið“ Sýknaðir í annað sinn af hryðjuverkaákæru Segir nær uppselt: Þingmenn taka lagið Myntbreyta » ISK USD EUR GBP CAD DKK NOK SEK Mest lesið Í gær Í vikunni LS Retail kaupir tvö alþjóðleg ráðgjafafyrirtæki Ósar kaupa Röntgen Domus Elísa Dögg nýr framkvæmdastjóri hjá Eimskipi Um 4,6 milljarða halli á rekstri borgarinnar Bláa lónið og Arctic Adventures vilja sameinast Nýtt endurskoðunar- og ráðgjafarfyrirtæki HM-treyjurnar seldust upp Icelandair gerir samstarfssamninga við tvö ný flugfélög Hopp og Orkureiturinn í samstarf Útboð SpaceX stærra en áætlað var Um 4,6 milljarða halli á rekstri borgarinnar Ósar kaupa Röntgen Domus Elísa Dögg nýr framkvæmdastjóri hjá Eimskipi Nýtt endurskoðunar- og ráðgjafarfyrirtæki Bláa lónið og Arctic Adventures vilja sameinast HM-treyjurnar seldust upp Útboð SpaceX stærra en áætlað var Hopp og Orkureiturinn í samstarf Dýpkar tengsl milli landanna 15 milljarða hlutafjárútboð hjá Alvotech Bláa lónið og Arctic Adventures vilja sameinast Elísa Dögg nýr framkvæmdastjóri hjá Eimskipi HM-treyjurnar seldust upp Hildur Soffía nýr markaðsstjóri Nathan Landsbankinn og Monerium í samstarf Verður Musk billjónamæringur í dag? Arctic Adventures og Kynnisferðir falla frá samruna Ósar kaupa Röntgen Domus Nýtt endurskoðunar- og ráðgjafarfyrirtæki Útboð SpaceX stærra en áætlað var Pistlar » Sigurður Már Jónsson Sjálfstæðir Skotar heimsóttir Sigurður Már Jónsson Sjálfstæðir Skotar heimsóttir Fleira áhugavert Stóðu frammi fyrir einstakri áskorun „Stórt verkefni að snúa við svona olíuskipi“ Dagur fagnar höllinni: „Loksins, loksins!“ Hættir sem aðstoðarmaður Ölmu Myntbreyta » ISK USD EUR GBP CAD DKK NOK SEK Mest lesið Í gær Í vikunni LS Retail kaupir tvö alþjóðleg ráðgjafafyrirtæki Ósar kaupa Röntgen Domus Elísa Dögg nýr framkvæmdastjóri hjá Eimskipi Um 4,6 milljarða halli á rekstri borgarinnar Bláa lónið og Arctic Adventures vilja sameinast Nýtt endurskoðunar- og ráðgjafarfyrirtæki HM-treyjurnar seldust upp Icelandair gerir samstarfssamninga við tvö ný flugfélög Hopp og Orkureiturinn í samstarf Útboð SpaceX stærra en áætlað var Um 4,6 milljarða halli á rekstri borgarinnar Ósar kaupa Röntgen Domus Elísa Dögg nýr framkvæmdastjóri hjá Eimskipi Nýtt endurskoðunar- og ráðgjafarfyrirtæki Bláa lónið og Arctic Adventures vilja sameinast HM-treyjurnar seldust upp Útboð SpaceX stærra en áætlað var Hopp og Orkureiturinn í samstarf Dýpkar tengsl milli landanna 15 milljarða hlutafjárútboð hjá Alvotech Bláa lónið og Arctic Adventures vilja sameinast Elísa Dögg nýr framkvæmdastjóri hjá Eimskipi HM-treyjurnar seldust upp Hildur Soffía nýr markaðsstjóri Nathan Landsbankinn og Monerium í samstarf Verður Musk billjónamæringur í dag? Arctic Adventures og Kynnisferðir falla frá samruna Ósar kaupa Röntgen Domus Nýtt endurskoðunar- og ráðgjafarfyrirtæki Útboð SpaceX stærra en áætlað var