Innlent | mbl | 19.6.2026 | 11:15 Flugvirkjar gefa grænt ljós á verkfallsaðgerðir Flugvirkjar hafa samþykkt að farið verði í verkfallsaðgerðir. mbl.is/Árni Sæberg Viðar Guðjónsson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Sviptivindar í flugrekstri Náðu góðri lendingu eftir ókyrrðina Stefna á að semja fyrir 15. september Vongóður um að viðræður þokist áfram Fundi lokið: „Þungt og erfitt samtal“ Þremur flugferðum aflýst: Boða til nýs fundar » Fleiri tengdar fréttir Niðurstaða könnunar sem gerð var meðal flugvirkja Icelandair á dögunum 15.–17. júní bar með sér að um 70% flugvirkja eru hlynntir því að fara í verkfallsaðgerðir. Þátttaka í könnuninni var tæp 75% og fór hún fram með „óformlegum hætti“ en inni á lokuðu svæði í appi sem einungis flugvirkjar hafa aðgang að. Flugvirkjar hafa verið án samnings í um sjö mánuði og nokkuð kurr hefur verið meðal starfsmanna sem neitað hafa að taka að sér aukavinnu til þess að sinna viðhaldsverkefnum flugvéla hjá Icelandair. Fyrir vikið eru viðhaldsverkefni sögð hrannast upp hjá vélum fyrirtækisins. Frétt af mbl.is Harðnar enn í deilum hjá Icelandair Ekkert ákveðið Samninganefnd flugvirkja er ekki bundin af niðurstöðunni en hefur hana þó í farteskinu við framhald viðræðna hjá ríkissáttasemjara. Óskar Einarsson, formaður Flugvirkjafélags Íslands, staðfestir að könnunin hafi verið gerð. Hann segir að ekki hafi verið gert neitt plan um aðgerðir að svo stöddu. „Þarna var verið að kanna hug manna ef til þess kæmi að menn færu í aðgerðir. Það er ekkert óeðlilegt eftir sjö mánaða viðræður,“ segir Óskar. Hann segir að menn þurfi að gefa fyrirvara hjá ríkissáttasemjara áður en farið er í aðgerðir og að það hafi ekki verið gert. Frétt af mbl.is Flugvirkjar skora á Icelandair Boðnar almennar hækkanir Flugvirkjar lögðu fram kröfugerð við upphaf viðræðna en að sögn Óskars hefur lítið gengið við samningaborðið. Spurður hvort eitthvað tilboð hafi verið gert segir Óskar að það hafi verið í takti við aðra samninga á vinnumarkaði. Almennt snúa þeir að 3,5% launahækkun á ári. Samkvæmt heimildum mbl.is telja flugvirkjar sig hins vegar eiga inni kjaraaukningu sökum þess að þeir hafi setið eftir kjörum flugmanna hjá Icelandair. Er þá óátalin sú hækkun sem þeir vilja fá umfram þá „leiðréttingu.“ „Það eru sex ár síðan skrifað var undir samning síðast og það er ýmislegt sem við viljum sjá og breyta og fyrirtækið er einnig með sínar kröfur, eðlilega,“ segir Óskar. Hann segir stöðuna ekki góða. „Hún er orðin frekar þröng og súr.“ Óskar Einarsson er formaður Flugvirkjafélags Íslands. Ljósmynd/FFÍ Tímasetningin engin tilviljun Mál manna í flugbransanum er að það sé engin tilviljun að Flugvirkjafélagið kanni hug félagsmanna á þessum tímapunkti. Þannig hefur Alþingi samið um starfslok í dag og því sé þessi tímapunktur valinn. Frétt af mbl.is Lög sett á verkfall flugvirkja Alþingi setti lög á verkfall flugvirkja hjá Icelandair árið 2014. Í því tilviki var Alþingi kallað saman að sumri til eftir að flugvirkjar höfðu boðað ótímabundið verkfall frá og með 19. júní. Höfðu þeir þá þegar farið í verkfall í einn dag, þann 16. júní. Mál manna er að verkfallsaðgerðir núna myndu að líkindum vera í formi svokallaðra skæruverkfalla eða styttri aðgerða sem hafa tímabundin áhrif á starfsemina. Tengdar fréttir Sviptivindar í flugrekstri Náðu góðri lendingu eftir ókyrrðina Stefna á að semja fyrir 15. september Vongóður um að viðræður þokist áfram Fundi lokið: „Þungt og erfitt samtal“ Þremur flugferðum aflýst: Boða til nýs fundar » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Ýmir og Þorsteinn stofna nýtt fyrirtæki Engar kærur borist vegna uppátækis Hólmsteins Flugvirkjar gefa grænt ljós á verkfallsaðgerðir Hver verður Plata ársins? Hræðilegt fótbrot í Vancouver Umræðan Svona styrkjum við Ísland Raunávöxtun og raunskattlagning Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Tveir fluttir á slysadeild eftir eld í Breiðholti „Vona að menn fari kátir út í sumarið“ Segir nær uppselt: Þingmenn taka lagið Stóðu frammi fyrir einstakri áskorun Mest lesið Í gær Í vikunni Andlát: Þráinn Eggertsson Af hverju er fólk að selja miðana sína? Stóðu frammi fyrir einstakri áskorun „Mun skila verulegum ávinningi fyrir samfélagið“ Málningin flagnar enn í Vesturbæjarlaug Tveir fluttir á slysadeild eftir eld í Breiðholti 25 vildu verða sveitarstjóri Þingvöllum lokað klukkan 15 á laugardaginn Mildasta veðrið sunnan- og vestanlands Hættir sem aðstoðarmaður Ölmu Af hverju er fólk að selja miðana sína? Lögreglan um framúraksturinn: „Hvorki staður né stund“ Margrét Helga Jóhannsdóttir látin Myndskeið: Glannalegur framúrakstur Hundraða þúsunda kostnaður á íbúa Dóttirin reyndi sennilega að losa sig Búinn að koma sér fyrir í hvalveiðiskipi 25 vildu verða sveitarstjóri Segir nær uppselt: Þingmenn taka lagið Hættir sem aðstoðarmaður Ölmu Myndskeið: Glannalegur framúrakstur Af hverju er fólk að selja miðana sína? Matarkarfan 40% ódýrari á Íslandi Aflýstu 17. júní vegna veðurs Afritaði skilaboð og dreifði til starfsmanna Fátíður en sláandi atburður Stungu af með kranabíl Meirapróf til að aka strumpastrætó Höfðu afskipti af ágengum sölumönnum í Eyjum „Ef ég fer til Úkraínu kem ég ekki til baka“ Nýjast á mbl.is » Ýmir og Þorsteinn stofna nýtt fyrirtæki Engar kærur borist vegna uppátækis Hólmsteins Flugvirkjar gefa grænt ljós á verkfallsaðgerðir Hver verður Plata ársins? Hræðilegt fótbrot í Vancouver Umræðan Svona styrkjum við Ísland Raunávöxtun og raunskattlagning Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Sátt við breytingar frumvarpsins Var háð foreldrum sínum og vildi ekki flytja út Fjórir ísraelskir hermenn drepnir Málningin flagnar enn í Vesturbæjarlaug Mest lesið Í gær Í vikunni Andlát: Þráinn Eggertsson Af hverju er fólk að selja miðana sína? Stóðu frammi fyrir einstakri áskorun „Mun skila verulegum ávinningi fyrir samfélagið“ Málningin flagnar enn í Vesturbæjarlaug Tveir fluttir á slysadeild eftir eld í Breiðholti 25 vildu verða sveitarstjóri Þingvöllum lokað klukkan 15 á laugardaginn Mildasta veðrið sunnan- og vestanlands Hættir sem aðstoðarmaður Ölmu Af hverju er fólk að selja miðana sína? Lögreglan um framúraksturinn: „Hvorki staður né stund“ Margrét Helga Jóhannsdóttir látin Myndskeið: Glannalegur framúrakstur Hundraða þúsunda kostnaður á íbúa Dóttirin reyndi sennilega að losa sig Búinn að koma sér fyrir í hvalveiðiskipi 25 vildu verða sveitarstjóri Segir nær uppselt: Þingmenn taka lagið Hættir sem aðstoðarmaður Ölmu Myndskeið: Glannalegur framúrakstur Af hverju er fólk að selja miðana sína? Matarkarfan 40% ódýrari á Íslandi Aflýstu 17. júní vegna veðurs Afritaði skilaboð og dreifði til starfsmanna Fátíður en sláandi atburður Stungu af með kranabíl Meirapróf til að aka strumpastrætó Höfðu afskipti af ágengum sölumönnum í Eyjum „Ef ég fer til Úkraínu kem ég ekki til baka“