Íþyngjandi samkeppnisreglur Evrópusambandsins virðast til þess fallnar að hindra samþjöppun á markaði, ef marka má yfirlýsinga evrópskra flugrisa. Forstjóri IAG, sagði að samþjöppun innan fluggeirans í Evrópu sé beinlínis nauðsynleg, ef tryggja eigi skilvirkni og samkeppnishæfni á alþjóðamarkaði, að því er kemur fram í frétt Financial Times . Þá sagði hann jafnframt á að minni flugfélög innan Evrópu þurfi að „tilheyra stærri keðju“ til þess eins að komast af. IAG hafði áður fallið frá kaupum á eftirstandandi 80% hlut í spænska flugfélaginu Air Europa, eftir að framkvæmdastjórn ESB stöðvaði viðskiptin og lagði fram kröfur um mótvægisaðgerðir. Fallið var frá kaupunum sökum óhagræðis fyrir samningsaðila, en forstjóri IAG benti á að kaupin hefðu bæði haft jákvæð áhrif í för með sér fyrir neytendur, og styrkt stöðu Madríd sem tengileiðar í alþjóðlegu flugi. Fyrr í mánuðinum var tilkynnt um mögulegt yfirtökutilboð Castlelake á lággjaldaflugfélaginu EasyJet. Félagið hefur frest fram til 26. Júní til að leggja fram formlegt boð. Ætti til þess að koma, þyrfti Castlelake ef til vill á evrópskum samstarfsaðila að halda til að geta gengið frá kaupunum í samræmi við evrópskt regluverk. Að svo stöddu hefur ekkert verið formlega tilkynnt í þeim efnum, en ljóst þykir að núgildandi regluverk ESB geri það að verkum að yfirtökuviðræður verði „mjög erfiðar“.