Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Hringvegurinn lokaður frá Vík að Klaustri og tvísýnt víðar

Read Full Article →

Höfuðborgin var auð af snjó þegar fólk vaknaði í morgun og verður það eitthvað áfram, þó gæti komið minniháttar fjúk þegar líður á morguninn, segir Óli Þór Árnason, veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands. Gular viðvaranir voru gefnar út á Suðurlandi og Suðausturlandi vegna hríðarveður. Þessir landshlutar hafa fengið ágætis snjókomu, segir Óli Þór. Samkvæmt upplýsingum á vef Vegagerðarinnar rétt fyrir sjö er hringvegurinn á óvissustigi frá Steinum og austur að Jökulsárlóni fram að hádegi og gæti lokast með stuttum fyrirvara. Ófært er frá Vík að Kirkjubæjarklaustri og þungfært á hringveginum um síðu. Þó að snjórinn hafi ekki losað fólk við svifrykið sem hefur verið síðustu daga gæti það hafa blásið á brott því strekkingsvindur hefur verið á höfuðborgarsvæðinu. Veðurhorfur á landinu til miðnættis annað kvöld: Hægt minnkandi austan og norðaustanátt í dag og dregur smám saman úr ofankomu, átta til fimmtán seinnnipartinn. Norðlæg átt, þrír til tíu metrar á sekúndu og smáél við norðurströndina, en norðan átta til þrettán og snjókoma fyrir norðan í kvöld. Frost að tíu stigum en sums staðar frostlaust allra syðst. Norðlæg átt fimm til þrettán á morgun. Él á Norður- og Austurlandi, en bjartviðri sunnan- og vestantil. Minnkandi frost og líklega sums staðar frostlaust við ströndina

Share this article