Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Björgunarsveitir kallaðar út að slysi við Háafoss

Read Full Article →

Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 23 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Leit og björgun Björg­un­ar­sveit­ir kall­að­ar út að slysi við Háa­foss Iðunn Andrésdóttir Björgunarsveitir í Árnessýslu brugðust við útkalli við Háafoss í Þjórsárdal í dag. Þetta staðfestir Jón Þór Víglundsson upplýsingafulltrúi Landsbjargar. Þar hafði einstaklingur slasast í bröttu og erfiðu landslagi og reyndi því talsvert á björgunarsveitarfólk að koma viðkomandi undir hendur sjúkraflutningafólks. Jón Þór segir manneskjuna líklega fótbrotna og komna í sjúkrabíl, en að öðru leyti sé honum ekki kunnugt um ástand viðkomandi. Háifoss í Þjórsárdal. RÚV / Víðir Hólm Ólafsson Fyrir 4 mínútumÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 HM-vaktin: Heldur banda­ríska par­tý­ið áfram? Bandaríkin mæta Ástralíu í fyrsta leik dagsins á HM. Hann hefst klukkan 19:00 á RÚV. Stofan hitar upp frá klukkan 18:30. Bæði lið unnu fyrsta leik sinn en Bandaríkjamenn hófu mótið af miklum krafti með 4-1 sigri á Paragvæ. Þrír aðrir leikir eru á dagskrá. Hér fylgjumst við með leik Bandaríkjanna í lifandi fréttavakt. Við birtum helstu atvik. FRÉTTAVAKT Fyrir 11 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Alþingi Þing­fund­ir sam­tals 844 klukku­stund­ir í vetur Lengsta umræða síðasta þingvetrar var um þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald viðræðna um aðild Íslands að ESB. Samtals stóðu þingfundir yfir í 844 klukkustundir. Fyrir 36 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Atvinnulíf Nova Klúbb­ur­inn eign­ast Ofar Nova Klúbburinn gekk í dag frá kaupum á Ofar fyrir tæpa 4,4 milljarða íslenskra króna. Salan átti sér nokkurra mánaða aðdraganda. Fyrir 41 mínútuINNLENDAR FRÉTTIR Samfélagsmiðlar Fjall­kon­an notuð í aug­lýs­inga­skyni Elín Hall kemur fram í hlutverki fjallkonunnar í myndskeiði á Instagram-reikningi Blue lagoon Skin Science sem hefur nú verið fjarlægt. Hún auglýsti vörur Bláa lónsins í öðru myndskeiði á TikTok þar sem hún sýnir frá degi sínum sem fjallkonan. Fyrir 49 mínútumÍÞRÓTTIR Handbolti 70 ár frá fyrsta kvenna­lands­leikn­um Í dag eru liðin akkúrat 70 ár frá því íslenskt kvennalandslið lék fyrsta landsleikinn. Þá spilaði kvennalandslið Íslands í handbolta við Noreg á Norðurlandamótinu í Finnlandi, á sjálfan Kvenréttindadaginn árið 1956. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Alþingi Þing­störf­um lokið Þingfundi var slitið á fimmta tímanum og þingvetrinum er lokið. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Reykjavíkurborg „Viljum leggja okkur öll fram við að bæta úr því sem þegar er orðið“ Reykjavíkurborg hyggst ræða við eigendur og leigutaka Græna gímaldsins svokallaða um að draga úr neikvæðum áhrifum hússins á nærumhverfið. Fulltrúi borgarráðs segir mikilvægt að íbúar skynji að borgin vilji bæta úr því sem þegar er orðið. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Gæslu­varð­hald fram­lengt yfir fimm í tengsl­um við fíkni­efna­smygl með Nor­rænu Fimm karlmenn voru úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald í tengslum við fíkniefnasmygl með Norrænu. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sjónvarp Laufey tók lagið með Hómer Simp­son Laufey birtist í nýjasta þætti Simpsons-fjölskyldunnar sem er áfangi sem fáir Íslendingar geta státað sig af. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Reykjavíkurborg Minnt­ust Brí­et­ar á kven­rétt­inda­dag­inn Bríetar Bjarnhéðinsdóttur, baráttukonu og fyrrverandi borgarfulltrúa, var minnst í athöfn í Hólavallakirkjugarði í dag. Framkvæmdastýra Kvenréttindafélags Íslands segir kvenréttindadaginn enn hafa mikið vægi. Fyrir 3 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Mannlíf „Dóttir mín er sönnun þess að það er hægt að lifa alls konar af“ „Þau segja mér að hún gæti verið að deyja á næstu klukkutímum,“ segir Harpa Björk Hilmarsdóttir. Glódís dóttir hennar fékk sjaldgæft og illvígt krabbamein skömmu eftir að Harpa missti móður sína og faðir hennar fékk krabbamein. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Suðurland Um 100 lög­reglu­menn skunda á Þing­völl Um eitt hundrað lögreglumenn verða við störf á Þingvöllum á morgun þegar stór tónlistarhátíð fer þar fram. Lögreglustjórinn á Suðurlandi treystir og trúir því að hátíðin muni fara vel fram. Fyrir 4 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Tónlist Fimm góðir gestir á föstu­degi Það er heimilislegt í Fimmunni þennan föstudag. Þar er boðið upp á ný lög frá Death Cab For Cutie, Jack White, Getdown Services, Interpol og Cigarettes after Sex. Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Miðausturlönd Sam­þykkja vopna­hlé í Líban­on Ísraelsk stjórnvöld og forysta Hezbollah hafa samþykkt vopnahlé í stríði þeirra í Líbanon. Fulltrúar Bandaríkjanna og Katars höfðu milligöngu um vopnahléið. Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Evrópusambandið Tekist á um tal­sam­band við Pútín á leið­toga­fundi ESB Leiðtogar Evrópusambandsríkjanna eru ekki á eitt sáttir um mögulegar viðræður við Vladimir Pútín Rússlandsforseta um frið í Úkraínu - og hver ætti þá að vera í forsvari. Deilt hefur verið um þetta á leiðtogafundi ESB sem nú stendur yfir í Brussel. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Dýravelferð Segir eitt lög­brot ekki rétt­læta annað Lögfræðingur manns sem kom sér fyrir á hvalveiðiskipinu Hval 9 í mótmælaskyni efast um að það standist lög að skrá hann sem farþega svo hægt væri að sigla. Eitt lögbrot réttlæti ekki annað. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Vesturland Lést eftir um­ferð­ar­slys á Hálsa­sveit­ar­vegi Ökumaður annars bílsins sem lenti í umferðarslysi á Hálsasveitarvegi á þriðjudag er látinn. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Kjaramál Meiri­hluti flug­virkja Ic­elandair hlynnt­ur verk­falls­að­gerð­um Malín Marta Eyfjörð Ægisdóttir 70 prósent flugvirkja Icelandair eru hlynnt verkfallsaðgerðum. Þetta kemur fram í könnun sem var gerð 15. til 17. júní á lokuðu svæði í appi sem einungis flugvirkjar komast inn á. Tæplega 75 prósent svöruðu. Óskar Einarsson, formaður Flugvirkjafélags Íslands, segir að ekki liggi fyrir áætlun um aðgerðir. Flugvirkjar hafa verið samningslausir í sjö mánuði. RÚV / Ragnar Visage Fyrir 5 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bretland Hver er Andy Burn­ham? Borgarstjóri Manchester, Andy Burnham, vann stórsigur í aukakosningunum í gær. Hann er talinn sá líklegasti til að verða arftaki forsætisráðherrans Keir Starmer. En hver er maðurinn? Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sjávarútvegur Strand­veiði­kvót­inn aukinn um 2.700 tonn Brynjólfur Þór Guðmundsson Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra undirritaði í gær reglugerð sem eykur strandveiðikvótann úr 10.650 tonnum í 13.350 tonn. Strandveiðimenn mega því veiða 2.700 tonnum meira en áður hafði verið ákveðið. Strandveiðar hófust í byrjun maí, þóttu almennt fara vel af stað og veiddist meira í byrjun en á sama tíma í fyrra. Formaður Landssambands smábátaeigenda lýsti þá áhyggjum af að ekki yrði hægt að veiða í 48 daga ef ekki kæmi til lagabreyting. RUV / Víðir Hólm Ólafsson Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Stjórnmál Inga ræddi við full­trúa TikTok um ald­urs­mörk fyrir not­end­ur Aldurstakmark fyrir notendur samfélagsmiðla var rætt á fundi mennta- og barnamálaráðherra með fulltrúum samfélagsmiðlarisans TikTok. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Dómstólar Ógnaði dóttur sam­býl­is­manns síns með pizzu­skera Brynjólfur Þór Guðmundsson Kona á sextugsaldri var í gær sakfelld fyrir líkamsárás og brot í nánu sambandi. Hún skapaði ógnarástand á heimili sínu síðasta sumar með því að beita dóttur sambýlismanns síns og vinkonu hennar andlegu og líkamlegu ofbeldi. Konan kastaði meðal annars síma og pizzukassa í dóttur sambýlismannsins, tók hana hálstaki og hrinti henni, ýtti eða sló til vinkonu stúlkunnar og elti þær þegar þær flýðu út. Hún mun hafa brotið rúðu í forstofuhurð og kastað stórum pizzuskera í átt að stúlkunum sem höfðu flúið út á bílaplan. Dómari við Héraðsdóm Norðurlands vestra dæmdi konuna til tveggja mánaða skilorðsbundinnar fangelsisvistar. Héraðsdómur Norðurlands vestra. RÚV / Aðsent Fyrir 7 tímumÍÞRÓTTIR Golf Það reynd­ist pabb­an­um erfitt þegar bolt­inn týnd­ist Gunnlaugur Árni Sveinsson skráir sig á spjöld sögunnar um þessar mundir með þátttöku sinni á Opna bandaríska meistaramótinu í golfi. Sveinn Kristinn Ögmundsson, pabbi Gunnlaugs, ræddi fyrstu fjórtán holurnar. Fyrir 7 tímumÍÞRÓTTIR Golf Golf­vakt­in: Gunn­laug­ur á +21 þegar það eru tvær holur eftir Gunnlaugur Árni Sveinsson er að klára sinn annan hring. Hann er á 21 höggi yfir pari eins og er. Hann kláraði fyrsta hringinn á +14. Gunnlaugur er aðeins annar íslenski karlinn til að keppa á risamóti í golfi og fyrsti til að keppa á Opna bandaríska. Haraldur Franklín Magnús keppti á Opna breska árið 2018. Hér fylgjumst við með gangi mála í lifandi fréttavakt. FRÉTTAVAKT Fyrir 8 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Mannlíf „Ég á mér draum um að skemmta í öllum bæjum á Ís­landi“ Jakob Birgisson grínisti er á leið í ferðalag um landið. Hann kemur við á hinum ýmsu stöðum þar sem hann treður upp og grínast með allt milli himins og jarðar, meðal annars skilnaði. Fyrir 8 tímumÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 Í dag: Banda­rík­in og Ástr­al­ía berj­ast um topp­sæt­ið Það er að sjálfsögðu þétt dagskrá á HM karla í fótbolta í dag. Önnur umferð riðlakeppninnar er hafin og heimamenn í Bandaríkjunum berjast við Ástrala toppsætið í D-riðli. Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Efnahagsmál 15% meiri neysla og 28 pró­sent meiri lands­fram­leiðsla Brynjólfur Þór Guðmundsson Verðbólga var 4,8 prósent á Íslandi síðustu tólf mánuði samkvæmt samræmdri vísitölu neysluverðs. Verðbólga á Evrópska efnahagssvæðinu var 3,3 prósent á sama tíma. Þetta kemur fram í tölum Hagstofunnar. Hún birti í dag samanburð á neyslu, landsframleiðslu og verðlagi í Evrópu. Þar kemur fram að landsframleiðsla á mann var 28% meiri á Íslandi en í Evrópusambandinu á síðasta ári. Einstaklingsbundin neysla var 15% meiri á Íslandi en í Evrópusambandinu að teknu tilliti til þess hversu mikið fæst fyrir sömu upphæð í ólíkum löndum. Matur og drykkur var að jafnaði 56% dýrari á Íslandi en í Evrópusambandinu. Matur og drykkur var 56 prósent dýrari á Íslandi en í ESB í fyrra. RÚV / Ragnar Visage Fyrir 9 tímumERLENDAR FRÉTTIR Kólumbía Rann­saka tengsl fyrr­ver­andi for­seta við vopn­aða hópa Brynjólfur Þór Guðmundsson Saksóknaraembætti í Kólumbíu greindi

Share this article