Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Öll eggin ónýt: Gætu hafa eyðilagt lundaholur

Read Full Article →

Innlent | mbl | 19.6.2026 | 18:30 Öll eggin ónýt: Gætu hafa eyðilagt lundaholur Eggin sem fundust í fórum ferðamannanna voru meðal annars rjúpnaegg, heiðlóu- og spóaegg, æðar- og lómsegg, hrossagauks-, ritu- og andaregg. mbl.is/Eggert Jóhannesson Björn Diljan Hálfdanarson [email protected] Setja bókamerki Öll þau hundrað egg sem fundust í farangri evrópsks pars um borð í Norrænu fyrr í vikunni eru ónýt að sögn Hálfdáns Helga Helgasonar, fuglavistfræðings hjá Náttúrustofu Austurlands og Náttúrufræðistofnun. „Þau eru bara orðin köld, það er ekkert hægt að halda lífi í svona,“ segir Hálfdán í samtali við mbl.is. „Það er hellings vinna og með tegundir eins og mófuglana, langvíurnar, lundana og rjúpurnar þá er það bara vonlaust.“ Frétt af mbl.is Reyndu að smygla um 100 eggjum villtra fugla Aðstoðaði lögreglu við greiningu Hálfdán Helgi aðstoðaði lögregluna á Austurlandi við rannsókn málsins. „Þau höfðu samband við mig og óskuðu eftir að fá greiningu á eggjunum. Það sem menn hafa áhyggjur af, sérstaklega þegar það koma svona mál upp, er að það séu egg sjaldgæfra tegunda í svona sendingum. Þá er sérstaklega verið að horfa eftir fálka,“ segir hann. Eggin sem fundust í fórum ferðamannanna voru meðal annars rjúpnaegg, heiðlóu- og spóaegg, æðar- og lómsegg, hrossagauks-, ritu- og andaregg. Þá voru fimm lifandi hrossagauksungar í fórum þeirra. „Það var reynt að taka hrossagauksungana sem voru þá þegar klaktir og koma þeim undir hrossagaukspör á Seyðisfirði, en annars er þetta töluvert flókið mál að halda lífi í svona ungum,“ segir Hálfdán. Parið var gripið um borð í Norrænu. mbl.is/Sigurður Bogi Málið á sér fordæmi Hann segir parið líklega hafa verið fuglasafnara. Svipuð mál hafi áður komið upp hér á landi. „Það eru svona fuglasafnarar sem við vitum af sem eru að halda alls konar tegundir og við vitum það að síðustu ár hefur lundi verið mjög vinsæll í svoleiðis hópum.“ Á síðasta ári voru þrír Þjóðverjar gripnir á Schiphol-flugvelli í Hollandi með 51 lundaegg frá Íslandi. Frétt af mbl.is Gómaðir með stolin íslensk lundaegg Lundaholum spillt til frambúðar „Maður klórar sér dálítið í hausnum yfir því hvernig þetta fólk hefur náð þarna rúmlega 50 lundaeggjum,“ segir hann. „Lundar verpa náttúrulega neðanjarðar í holum sem geta verið ansi djúpar þannig að mann grunar auðvitað að þarna hafi verið grafnar upp holur og þá er búið að spilla hreiðrinu til frambúðar.“ Að lokum hvetur hann fólk til að tilkynna það sem fyrst til lögreglu eða Náttúrufræðistofnunar taki það eftir ummerkjum um að lundaholur hafi verið grafnar upp. Frétt af mbl.is Erlendir eggjaþjófar koma til landsins árlega Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Kennslustundin snerist upp í bardaga Báðir markaskorararnir settir á bekkinn Öll eggin ónýt: Gætu hafa eyðilagt lundaholur Ræddu ESB í hartnær 60 klukkustundir Nova gengur frá kaupum á Ofar Umræðan Svona styrkjum við Ísland Raunávöxtun og raunskattlagning Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Tveir fluttir á slysadeild eftir eld í Breiðholti „Stórt verkefni að snúa við svona olíuskipi“ Breytt stöðumat Málningin fékk ekki að þorna: Ekki málað í sumar Mest lesið Í gær Í vikunni Andlát: Þráinn Eggertsson Af hverju er fólk að selja miðana sína? Stóðu frammi fyrir einstakri áskorun Svarar óánægju: „Þetta er náttúrulega ekki útilega“ Lést eftir umferðarslys við Reykholt Hlaupa í minningu Jóns Breka: „Var gleðigjafi allra“ Vann 27,7 milljónir: „Hélt að þetta væri eitthvað grín“ Áslaug Arna: „Enn ein staðfestingin“ Málningin fékk ekki að þorna: Ekki málað í sumar Flugvirkjar gefa grænt ljós á verkfallsaðgerðir Af hverju er fólk að selja miðana sína? Lögreglan um framúraksturinn: „Hvorki staður né stund“ Margrét Helga Jóhannsdóttir látin Myndskeið: Glannalegur framúrakstur Hundraða þúsunda kostnaður á íbúa Dóttirin reyndi sennilega að losa sig Búinn að koma sér fyrir í hvalveiðiskipi 25 vildu verða sveitarstjóri Segir nær uppselt: Þingmenn taka lagið Hættir sem aðstoðarmaður Ölmu Af hverju er fólk að selja miðana sína? Myndskeið: Glannalegur framúrakstur Matarkarfan 40% ódýrari á Íslandi Aflýstu 17. júní vegna veðurs Afritaði skilaboð og dreifði til starfsmanna Andlát: Þráinn Eggertsson Fátíður en sláandi atburður Stungu af með kranabíl Meirapróf til að aka strumpastrætó „Ef ég fer til Úkraínu kem ég ekki til baka“ Nýjast á mbl.is » Kennslustundin snerist upp í bardaga Báðir markaskorararnir settir á bekkinn Öll eggin ónýt: Gætu hafa eyðilagt lundaholur Ræddu ESB í hartnær 60 klukkustundir Nova gengur frá kaupum á Ofar Umræðan Svona styrkjum við Ísland Raunávöxtun og raunskattlagning Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Stórt verkefni að snúa við svona olíuskipi“ Viðræðum Írans og Bandaríkjanna í Sviss frestað Vonast til að búið verði í Grindavík Tveir fluttir á slysadeild eftir eld í Breiðholti Mest lesið Í gær Í vikunni Andlát: Þráinn Eggertsson Af hverju er fólk að selja miðana sína? Stóðu frammi fyrir einstakri áskorun Svarar óánægju: „Þetta er náttúrulega ekki útilega“ Lést eftir umferðarslys við Reykholt Hlaupa í minningu Jóns Breka: „Var gleðigjafi allra“ Vann 27,7 milljónir: „Hélt að þetta væri eitthvað grín“ Áslaug Arna: „Enn ein staðfestingin“ Málningin fékk ekki að þorna: Ekki málað í sumar Flugvirkjar gefa grænt ljós á verkfallsaðgerðir Af hverju er fólk að selja miðana sína? Lögreglan um framúraksturinn: „Hvorki staður né stund“ Margrét Helga Jóhannsdóttir látin Myndskeið: Glannalegur framúrakstur Hundraða þúsunda kostnaður á íbúa Dóttirin reyndi sennilega að losa sig Búinn að koma sér fyrir í hvalveiðiskipi 25 vildu verða sveitarstjóri Segir nær uppselt: Þingmenn taka lagið Hættir sem aðstoðarmaður Ölmu Af hverju er fólk að selja miðana sína? Myndskeið: Glannalegur framúrakstur Matarkarfan 40% ódýrari á Íslandi Aflýstu 17. júní vegna veðurs Afritaði skilaboð og dreifði til starfsmanna Andlát: Þráinn Eggertsson Fátíður en sláandi atburður Stungu af með kranabíl Meirapróf til að aka strumpastrætó „Ef ég fer til Úkraínu kem ég ekki til baka“

Share this article