Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Samfélagsmiðill fyrir vinnustaðinn

Read Full Article →

Fyrir nokkrum vikum fór í loftið nýr íslenskur samfélagsmiðill undir heitinu Poppið. Um er að ræða miðil sem er sérstaklega hannaður fyrir íslenska vinnustaði og stofnanir og leggur einnig áherslu á heilsu og vellíðan starfsfólks. Stofnendur Poppsins eru Trausti Þór Karlsson, Breki Barkarson og Bergur Hallgrímsson en þeir eru allir gamlir vinnufélagar. Breki og Bergur eru forritarar úr upplýsingatækniheiminum en Trausti Þór sérhæfði sig í markaðsmálum. Þeir byrjuðu að hanna og forrita samfélagsmiðilinn fyrir rúmlega tveimur árum síðan en á þeim tíma voru þeir að innleiða svipuð kerfi fyrir fjölda vinnustaða. „Við töldum að það væri þörf á markaðnum fyrir svona lausn og svo kom tilkynningin frá Meta um að samfélagsmiðillinn Workplace væri að hætta. Þá skoðuðum við hvaða aðrar lausnir væru í boði og spurðum svo hvort við gætum ekki hannað eitthvað skemmtilegt.“ Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaði vikunnar . Áskrifendur geta nálgast umfjöllunina í heild sinni hér .

Share this article