Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Dyrnar opnaðar í síðasta sinn: „Allir fá eitthvað“

  • What: Kjötborg, a long-standing retail store in Iceland, has closed after 45 years of operation.
  • Impact: Local community and regular customers affected.
Read Full Article →

Innlent | mbl | 20.6.2026 | 20:42 Dyrnar opnaðar í síðasta sinn: „Allir fá eitthvað“ Viðskiptavinir Kjötborgar harma lokun búðarinnar og segja þjónustulundina sem þar sé boðið upp á ekki finnast annars staðar. mbl.is/Hákon Markús Ívar Halldórsson [email protected] Setja bókamerki Dyrnar að versluninni Kjötborg voru opnaðar í síðasta sinn í dag en 3. nóvember hefði verslunin orðið 70 ára. Kjötborg hefur verið starfrækt á Ásvallagötu 19 síðan árið 1981 en bræðurnir Kristján og Gunnar Jónassynir hafa sinnt rekstri verslunarinnar í 40 ár. Í vor ákváðu bræðurnir að loka versluninni og selja húsnæðið. Frétt af mbl.is Loka Kjötborg eftir 45 ára rekstur Gaman að sjá gamla kúnna Blaðamaður mbl.is kíkti við í Kjötborg og ræddi við Kristján en Gunnar gat því miður ekki verið á staðnum sökum veikinda. „Dagurinn byrjaði mjög vel strax í morgun þegar ég opnaði og það er búið að vera mjög mikið að gera. Mikið af eldri kúnnum hafa komið að versla, fólk sem bjó hérna fyrir 20–30 árum að koma og sjá gamla staðinn,“ segir Kristján. Hann segir að gaman sé að fá gamla viðskiptavini aftur í hverfið en suma hafi hann ekki séð í 10–20 ár. „Það eru allir að koma að kveðja okkur bræður og kaupa eitthvað. Ég er að gefa bækur, diska og fleira, við ætlum ekki að leigja geymslur undir þetta. Þannig það er betra að láta alla í hverfinu njóta þess. Allir fá eitthvað.“ Gunnar, bróðir Kristjáns, gat ekki verið viðstaddur síðasta opnunardag verslunarinnar en hann lenti nýlega á spítala. Kristján segir hann þó vera að braggast. Þrátt fyrir að versluninni hafi nú verið lokað ætla bræðurnir að halda götupartí seinna í sumar og kveðja almennilega þegar Gunnar er kominn á fætur. Kveðjuviðburðurinn verður líklegast haldinn í lok ágúst eða byrjun september þegar nær dregur því sem hefði orðið 70 ára afmæli Kjötborgar. „Við vorum með svona götupartí þegar búðin varð fimmtug. Það tókst mjög vel.“ Þá var sett upp svið og alls kyns skemmtiatriði fóru fram. Kristján segir dagskrána í ár munu vera svipaða. Kjötborgarbræðurnir Kristján og Gunnar jónassynir. mbl.is/Sigurður Bogi Margir koma og gera upp Margir viðskiptavinir Kjötborgar hafa í gegnum tíðina fengið að vera með reikninga hjá búðinni. „Töluvert hefur verið um fólk að koma og gera upp síðustu daga en eitthvað þurfum við að senda í heimabanka, í þessum nútíma,“ segir Kristján. „Svo erum við að hringja í einhverja sem eru ekki með þannig tækni.“ Kristján segir tilfinningar þeirra bræðra blendnar, þeir finni fyrir bæði sorg og gleði. „Það er náttúrulega rosalega langur tími sem maður er búinn að vera í þessu og það virðist vera að því miður séu allar svona búðir að hætta. Það er náttúrulega hærra verð hjá kaupmanninum á horninu.“ Hann bendir þó á að oft gleymi fólk að reikna út kostnaðinn við að keyra í búðina miðað við að geta labbað í hverfisbúðina. Kristjáni líst vel á fyrirhugað kaffihús sem opna á í húsnæðinu í haust. Frétt af mbl.is Nýir eigendur að húsnæði Kjötborgar Frétt af mbl.is Þekkt nöfn í eigendahópi nýs kaffihúss Kristján Jónasson segir að mikið hafi verið að gera í dag. mbl.is/Hákon Það er öllu reddað Fyrir utan Kjötborg stóðu nokkrir viðskiptavinir Kjötborgar til fleiri ára. Í samtali við blaðamann mbl.is höfðu þau ekkert nema gott að segja um fráfarandi verslunareigendurna Kristján og Gunnar. Sögðu þau lokun Kjötborgar auðvitað sorglega en þó skiljanlega. „Hlutirnir breytast og menningin með,“ sagði einn viðskiptavinur Kjötborgar. „Þeir bræðurnir hafa alltaf verið svo ótrúlegir, ef það vantaði eitthvað var manni sagt að koma daginn eftir og þá var það til. Þeir redduðu hlutunum.“ Minntist annar viðskiptavinur þess þegar þeir bræður redduðu jakkafötum fyrir íbúa á Grund. Einnig var rifjað upp að oft á tíðum hlupu þeir sjálfir með vörur til fólks í hverfinu sem ekki gat farið sjálft út í búð. „Eftir einhverja daga athuguðu þeir svo alltaf hvort að eitthvað vantaði hjá fólkinu. Það er bara öllu reddað.“ Segja þau að slíkri þjónustulund sé ábótavant í sérverslunum í dag. „Ef þú þjónar þér ekki sjálfur þá mætti segja að maður fari bara nánast tómhentur heim.“ Fastir póstar hverfa Lokun Kjötborgar markar tímamót fyrir Reykvíkinga og þá sérstaklega Vesturbæinga. Þá er það ekki til bóta að nýverið lokuðu dyr dekkjaverkstæðis N1 við Ægissíðu, sem var annað gamalgróið fyrirtæki í hverfinu. „Þetta eru fastir póstar hjá mörgum sem eru að hverfa, þetta eru í raun „félagsmiðstöðvar“ sem eru að loka.“ Frétt af mbl.is „Ég er ofboðslega sáttur við lífsferilinn“ Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Dyrnar opnaðar í síðasta sinn: „Allir fá eitthvað“ Nýtur lífsins í Belís eftir að hafa verið hætt komin Þýskaland - Fílabeinsströndin, staðan er 0:1 Saka mun þurfa að bíða lengur Hefja viðræður við Newcastle um kaup á Tonali Umræðan Opinber störf Handskrifaðir draumar Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Þrastahreiður í beinni útsendingu Einn rotaðist og annar nefbrotnaði Fann ástina á Suðurpólnum Málningin fékk ekki að þorna: Ekki málað í sumar Mest lesið Í gær Í vikunni Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Hrossadráp til rannsóknar Fráleitt að strætó verði „hjáleið“ Hvað þurfa tónleikagestir að hafa í huga? 80 manns komu að björgunaraðgerðum við Háafoss Bíll við bíl: „Það er bara gaman að þessu“ Alvarlegt umferðarslys við Vík Fann ástina á Suðurpólnum Ný lög um gildistíma ökuskírteina samþykkt Myndir: Mikil stemmning í blíðskaparveðri Andlát: Þráinn Eggertsson Af hverju er fólk að selja miðana sína? Svarar óánægju: „Þetta er náttúrulega ekki útilega“ Lést eftir umferðarslys við Reykholt Stóðu frammi fyrir einstakri áskorun Hlaupa í minningu Jóns Breka: „Var gleðigjafi allra“ Vann 27,7 milljónir: „Hélt að þetta væri eitthvað grín“ Áslaug Arna: „Enn ein staðfestingin“ Öll eggin ónýt: Gætu hafa eyðilagt lundaholur Málningin fékk ekki að þorna: Ekki málað í sumar Af hverju er fólk að selja miðana sína? Myndskeið: Glannalegur framúrakstur Matarkarfan 40% ódýrari á Íslandi Andlát: Þráinn Eggertsson Aflýstu 17. júní vegna veðurs Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Afritaði skilaboð og dreifði til starfsmanna Fátíður en sláandi atburður Stungu af með kranabíl Meirapróf til að aka strumpastrætó Nýjast á mbl.is » Dyrnar opnaðar í síðasta sinn: „Allir fá eitthvað“ Nýtur lífsins í Belís eftir að hafa verið hætt komin Þýskaland - Fílabeinsströndin, staðan er 0:1 Saka mun þurfa að bíða lengur Hefja viðræður við Newcastle um kaup á Tonali Umræðan Opinber störf Handskrifaðir draumar Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Myndir: Mikil stemmning í blíðskaparveðri Jensína Edda er Reykvíkingur ársins Hrossadráp til rannsóknar Lestarstjóri fórst og 11 slösuðust alvarlega Mest lesið Í gær Í vikunni Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Hrossadráp til rannsóknar Fráleitt að strætó verði „hjáleið“ Hvað þurfa tónleikagestir að hafa í huga? 80 manns komu að björgunaraðgerðum við Háafoss Bíll við bíl: „Það er bara gaman að þessu“ Alvarlegt umferðarslys við Vík Fann ástina á Suðurpólnum Ný lög um gildistíma ökuskírteina samþykkt Myndir: Mikil stemmning í blíðskaparveðri Andlát: Þráinn Eggertsson Af hverju er fólk að selja miðana sína? Svarar óánægju: „Þetta er náttúrulega ekki útilega“ Lést eftir umferðarslys við Reykholt Stóðu frammi fyrir einstakri áskorun Hlaupa í minningu Jóns Breka: „Var gleðigjafi allra“ Vann 27,7 milljónir: „Hélt að þetta væri eitthvað grín“ Áslaug Arna: „Enn ein staðfestingin“ Öll eggin ónýt: Gætu hafa eyðilagt lundaholur Málningin fékk ekki að þorna: Ekki málað í sumar Af hverju er fólk að selja miðana sína? Myndskeið: Glannalegur framúrakstur Matarkarfan 40% ódýrari á Íslandi Andlát: Þráinn Eggertsson Aflýstu 17. júní vegna veðurs Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Afritaði skilaboð og dreifði til starfsmanna Fátíður en sláandi atburður Stungu af með kranabíl Meirapróf til að aka strumpastrætó

Share this article