- What: Landspítalinn acquired a new surgical robot called DaVinci XI
- Impact: The robot will be used for various surgeries at the hospital
Innlent | Morgunblaðið | 21.6.2026 | 12:20 DaVinci XI heldur fólki í toppstandi Hér má sjá mynd af aðgerðaþjarkanum, en tækið heitir DaVinci XI og er notað við ýmsar aðgerðir. Brynhildur Glúmsdóttir [email protected] Setja bókamerki Landspítalinn festi kaup á nýjum aðgerðaþjarka í vor sem mun breyta miklu fyrir lækna spítalans. Verður hann nýttur til fjölbreyttra aðgerða á sjúkrahúsinu, en Fastus heilsa sá um innflutning á tækinu. Rafn Hilmarsson, yfirlæknir þvagfæraskurðlækninga á Landspítalanum, segir það hafa verið tímabært að fá nýjan þjarka, en fyrsti aðgerðaþjarkinn var tekinn í notkun árið 2015 og var hann notaður á þvagfæraskurðdeildinni og svo á kvennadeildinni. Frétt af mbl.is Mun fleiri aðgerðir með nýjum aðgerðaþjarka „Síðan hafa fleiri sérgreinar bæst við með tímanum. Í dag eru þvagfæraskurðlæknar, kvensjúkdómalæknar, kviðarholsskurðlæknar, hjartaskurðlæknar, lungnaskurðlæknar og barnaskurðlæknar að gera aðgerðir,“ segir Rafn við Morgunblaðið og bætir við að fyrir þremur árum hafi nýrri þjarki verið tekinn í notkun í stað þess eldri. Róbert Lee Tómasson, Eiríkur Jónsson, Gunnlaugur Sævar Gunnlaugsson, Benedikt Gíslason, Páll Möller og Guðrún Gunnarsdóttir. Ljósmynd/Þorkell Þorkelsson „Þá þegar var nokkuð ljóst að starfsemin með þessar þjarkaaðgerðir var orðin það mikil að það var þörf á ekki bara einum heldur tveimur þannig að núna í vor var vígður nýr þjarki hérna á spítalanum. Þegar við endurnýjuðum þjarkann árið 2023 var notkunin á honum komin í raun og veru að þolmörkum. Við könnuðum það meira að segja og það kom í ljós að þjarkinn hér á Landspítalanum var líklegast sá þjarki í Evrópu sem var mest notaður.“ Eru nú tveir þjarkar í notkun alla daga og hefur aðgerðum stöðugt fjölgað síðan að sögn Rafns. „Íslendingum fjölgar, eldra fólki fjölgar, hraustu eldra fólki fjölgar og fólk vill halda áfram að vera hraust þó að það eldist og vill geta haldið áfram að fara til útlanda og spila golf. Þá þurfum við að vera með nýjustu tæki og tól til þess að geta haldið fólki í toppstandi.“ Rafn Hilmarsson. Hann segir að í grunninn séu þetta svokallaðar kviðsjáraðgerðir, það er að segja aðgerðir sem eru gerðar á sjúklingum í gegnum lítil göt og er aðgerðaþjarkinn notaður til þess að fjarlægja líffæri eða lækna sjúkdóma sem hrjá sjúklingana og segir hann þetta hafa verið gríðarlega byltingu og framför við meðferð sjúklinga á spítalanum. Hafa nú tæplega þrjú þúsund sjúklingar farið í skurðaðgerð með þjarkatækni á Landspítalanum frá 2015. „Þetta er mikil breyting á allri starfsemi. Þetta eru náttúrulega hátækniskurðaðgerðir og eykur nákvæmni og gæði aðgerðarinnar þannig að skurðlæknarnir hafa betri aðstöðu til að gera nákvæmari aðgerðir á sínum sjúklingum.“ Einnig sé þetta til mikilla bóta fyrir sjúklingana sjálfa. „Þetta eru aðgerðir í gegnum lítil göt þannig að aðgerðirnar eru einfaldari fyrir sjúklingana sjálfa. Þetta eru oft og tíðum styttri aðgerðir, miklu minni skurðsár og því fylgja miklu minni verkir. Miklu minni blæðingar, færri fylgikvillar og sjúklingarnir liggja styttra inni á spítalanum, komast fyrr heim til sín og komast fyrr til vinnu. Þannig að þetta er mikil breyting til hins betra fyrir sjúklinga og hefur reynst mjög vel.“ Aðspurður segir hann tæki sem þetta kosta á milli þrjú hundruð og fjögur hundruð milljónir króna. „Þó að kostnaðurinn við tækið sé mikill þá kemur á móti talsverður sparnaður fyrir heilbrigðiskerfið og sjúklingana sem felst í færri fylgikvillum og styttri spítalalegu og fólk er komið fyrr aftur út í samfélagið að vinna. Við höfum skoðað það í ákveðnum aðgerðaflokkum og reiknað út að það er raunverulegur sparnaður við það að gera hlutina með þessum hætti þó að tækin og tólin sem við notum kosti peninga.“ Rafn segir það í stöðugri þróun í hvers konar aðgerðir aðgerðaþjarkinn sé notaður. Í upphafi hafi í raun aðeins þvagfæraskurðlæknar sem gerðu aðgerðir vegna blöðruhálskirtilskrabbameins og nýrnakrabbameins notað tækið. „Svo fóru kvensjúkdómalæknar að gera aðgerðir á legi og eggjastokkum hjá konum og svo hafa kviðarholsskurðlæknar komið mjög öflugir inn síðustu árin og verið að gera aðgerðir vegna ristil- og endaþarmskrabbameins.“ Að endingu segir hann marga skurðlækna spítalans sem framkvæma þessar aðgerðir hafa lært á þessa tækni í sérnámi sínu erlendis. Aðrir hafi lært að gera aðgerðirnar á spítalanum og mikil bylting hafi orðið þar á. „Þegar við erum nú með tvo þjarka þá höfum við enn betri möguleika á að þjálfa upp starfsfólk og skurðlækna í að gera aðgerðir hér og það tæki sem við fengum núna er meðal annars útbúið með þeim hætti að það er með svona kennslustjórnstöð. Þetta er ekkert ósvipað og flughermir þegar flugmenn eru að læra á þotur.“ Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » DaVinci XI heldur fólki í toppstandi Liverpool undirbýr nýtt tilboð Vantaði viðburði í bænum á sumrin „Ekki góðar fréttir af kríunni“ Halda tónlistarhátíð þrátt fyrir rauða viðvörun Umræðan Opinber störf Handskrifaðir draumar Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Alvarleg líkamsárás til rannsóknar á Akureyri Um 20 þúsund á Þingvöllum: Heimferð gæti orðið þung Fann ástina á Suðurpólnum Mest lesið Í gær Í vikunni „Við erum ekki farin að fagna sigri“ Ánægja með Bergmál: Umferðin þyngdist um miðnætti Viðskiptavinur í 40 ár: Með miða að kaupa „sígó“ EasyJet: „Aðstoðarflugmaðurinn þurfti læknisaðstoð“ Dyrnar opnaðar í síðasta sinn: „Allir fá eitthvað“ „Blíðskapurinn er bæði á himnum og á jörðu“ Allt að 17 stiga hiti á Suðausturlandi Soffía datt á andlitið: „Þetta er slysagildra“ Alvarleg líkamsárás til rannsóknar á Akureyri Myndir: Mikil stemmning í blíðskaparveðri Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Hrossadráp til rannsóknar Fráleitt að strætó verði „hjáleið“ Hvað þurfa tónleikagestir að hafa í huga? 80 manns komu að björgunaraðgerðum við Háafoss Bíll við bíl: „Það er bara gaman að þessu“ Alvarlegt umferðarslys við Vík Fann ástina á Suðurpólnum Myndir: Mikil stemmning í blíðskaparveðri Þyrlan kölluð út vegna slyssins við Vík Af hverju er fólk að selja miðana sína? Myndskeið: Glannalegur framúrakstur Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Andlát: Þráinn Eggertsson Aflýstu 17. júní vegna veðurs Afritaði skilaboð og dreifði til starfsmanna Fátíður en sláandi atburður Stungu af með kranabíl Svarar óánægju: „Þetta er náttúrulega ekki útilega“ Slagsmál brutust út á milli ökumanna Nýjast á mbl.is » DaVinci XI heldur fólki í toppstandi Liverpool undirbýr nýtt tilboð Vantaði viðburði í bænum á sumrin „Ekki góðar fréttir af kríunni“ Halda tónlistarhátíð þrátt fyrir rauða viðvörun Umræðan Opinber störf Handskrifaðir draumar Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Alvarleg líkamsárás til rannsóknar á Akureyri Þrastahreiður í beinni útsendingu Segir Íslendinga misskilja ástandið á Kúbu Ánægja með Bergmál: Umferðin þyngdist um miðnætti Mest lesið Í gær Í vikunni „Við erum ekki farin að fagna sigri“ Ánægja með Bergmál: Umferðin þyngdist um miðnætti Viðskiptavinur í 40 ár: Með miða að kaupa „sígó“ EasyJet: „Aðstoðarflugmaðurinn þurfti læknisaðstoð“ Dyrnar opnaðar í síðasta sinn: „Allir fá eitthvað“ „Blíðskapurinn er bæði á himnum og á jörðu“ Allt að 17 stiga hiti á Suðausturlandi Soffía datt á andlitið: „Þetta er slysagildra“ Alvarleg líkamsárás til rannsóknar á Akureyri Myndir: Mikil stemmning í blíðskaparveðri Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Hrossadráp til rannsóknar Fráleitt að strætó verði „hjáleið“ Hvað þurfa tónleikagestir að hafa í huga? 80 manns komu að björgunaraðgerðum við Háafoss Bíll við bíl: „Það er bara gaman að þessu“ Alvarlegt umferðarslys við Vík Fann ástina á Suðurpólnum Myndir: Mikil stemmning í blíðskaparveðri Þyrlan kölluð út vegna slyssins við Vík Af hverju er fólk að selja miðana sína? Myndskeið: Glannalegur framúrakstur Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Andlát: Þráinn Eggertsson Aflýstu 17. júní vegna veðurs Afritaði skilaboð og dreifði til starfsmanna Fátíður en sláandi atburður Stungu af með kranabíl Svarar óánægju: „Þetta er náttúrulega ekki útilega“ Slagsmál brutust út á milli ökumanna