Kristín Þórhallsdóttir náði bronsi á heimsmeistaramótinu í klassískum kraftlyftingum í Litáen. Hún sló tvö heimsmet í aldursflokknum 40-49 ára og auk þess tók hún brons í hnébeygju. Sjö íslenskir keppendur voru skráðir til leiks og slógu þeir fjögur Íslandsmet. Hér má sjá frétt og myndskeið af mótinu. Kristín Þórhallsdóttir setti heimsmet í sínum aldursflokki á heimsmeistaramóti í kraftlyftingum. Hún tók brons. Auk þess slógu sjö íslenskir keppendur fjögur Íslandsmet. Kristrún I. Sveinsdóttir keppti í -52 kg flokki og sló Íslandsmet í bekkpressu með 85 kg. Alexander Örn Kárason sem keppir í -105 kg flokki sló tvö Íslandsmet. Annars vegar í hnébeygju með 315 kg og í samanlögðu með 822,5 kg. Helgi Jón Sigurðsson keppir í -120 kg flokki og sló Íslandsmet í samanlögðu með 815 kg. Kristín Þórhallsdóttir var með 230 kg í síðustu réttstöðulyftunni og í samanlögðu alls 575 kg. Bæði eru heimsmet. Einnig kepptu Friðbjörn Bragi Hlynsson í 83 kg flokki og Hanna Jóna Sigurjónsdóttir og Þorbjörg Matthíasdóttir í plús 84 kg flokki.