Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Bregðast við og bíða ekki eftir ráðherra

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 22.6.2026 | 6:00 Bregðast við og bíða ekki eftir ráðherra „Þetta hefur haft mikil og jákvæð áhrif á skólabraginn, og við erum eiginlega agndofa yfir því hvað þetta hefur gengið vel,“ sögðu kennarar á Akureyri árið 2024.​ Nú hefur nýr meirihluti í borgarstjórn einnig tekið af skarið. mbl.is/Eyþór Skúli Halldórsson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Skólakerfið í vanda Dæmið gengur ekki upp Fékk þau svör að þetta væri ekki löglegt Enn einn plásturinn á „opið blæðandi sár“ Hefur áhyggjur af börnunum á næsta prófi Varhugaverð innleiðing í skólunum » Fleiri tengdar fréttir Nýr meirihluti í borgarstjórn Reykjavíkur hefur ákveðið að leggja bann við því að börn noti farsíma eða sambærileg snjalltæki á skólatíma, þar með talið í frímínútum og hádegishléum. Innleiða á bannið í skólum borgarinnar í haust. Langt er síðan foreldrar í borginni tóku að kalla eftir slíku samræmdu banni. Frétt af mbl.is Böndin berast að snjallsímum grunnskólabarna Frétt af mbl.is Foreldrar kalla eftir símafríi í skólum borgarinnar „Myndi kannski ekki breyta miklu“ Ríflega 50% grunnskóla á landinu höfðu enda þegar síðasta haust gripið til banns af þessu tagi. Til að mynda tók Akureyrarbær af skarið haustið 2024, með banni sem kennarar segja hafa gengið ótrúlega vel. Ári síðar sagðist þáverandi borgarstjóri vilja frekar bíða eftir því að ráðherra málaflokksins gripi til aðgerða. „Einhver ákvörðun núna hjá okkur myndi kannski ekki breyta miklu, sérstaklega ef ráðherra er að fara að setja einhver lög eða viðmið um þetta yfir landið,“ sagði Heiða Björg Hilmisdóttir í september síðastliðnum, þá spurð af hverju meirihluti borgarstjórnar hefði hafnað tillögu sjálfstæðismanna um símabann í grunnskólum. Frétt af mbl.is Ekki ástæða til að breyta og bregðast við Frétt af mbl.is Símabannið haft mikil áhrif á skólastarfið Reglugerðina vantar enn Skemmst er frá því að segja að frumvarp ráðherrans, þar sem alls 20 orðum var bætt við gildandi lög um grunnskóla, var ekki samþykkt á Alþingi fyrr en í mars á þessu ári. Og þar sem breytingin veitir ráðherra aðeins heimild til að kveða á um notkun síma og snjalltækja í reglugerð, þarf nú reglugerð til að þær breytingar verði sem borgarstjórinn kvaðst vænta í fyrra. Drög að þeirri reglugerð voru birt í samráðsgátt stjórnvalda 10. júní, rúmum þremur mánuðum eftir að frumvarpið var samþykkt og níu mánuðum eftir að ráðherra boðaði frumvarpið. Enn er óvíst hvenær reglugerðin mun taka gildi en hún hefur þegar mætt nokkurri gagnrýni kennara, einkum fyrir það að ráðherra þykir ganga harðar fram en grunnskólar hafi gert hingað til. Frétt af mbl.is Starfsfólk vill að foreldrar setji skýrari reglur Umfangið kom á óvart Fjallað var um það í Morgunblaðinu í október 2024 hvernig áhugi íslenskra barna á lestri hefur hrunið frá aldamótum. Árið 2000 hefðu 33% nemenda í 10. bekk sagst aðeins lesa þegar þau þyrftu þess, en nú væri hlutfallið 60% og jafnvel meira. Greint var um leið frá niðurstöðum rannsóknar Kristjáns Ketils Stefánssonar, lektors í kennslufræði á menntavísindasviði Háskóla Íslands, sem byggð var á gögnum frá ríflega fimmtán þúsund nemendum í 6. til 10. bekk í 120 grunnskólum víðs vegar um landið. Sýndu þær að nemendur sem eyða meiri tíma í snjallsímum á skólatíma hafa minni áhuga á lestri en þeir sem nota snjallsíma lítið eða ekkert. Lestraráhuginn fari sífellt hraðar dvínandi eftir því sem nemendur eyða meiri tíma í tækjunum. Kristján Ketill vakti sérstaklega athygli á að um 44% barna í 10. bekk segðust nota síma í eina og hálfa klukkustund eða meira á skólatíma. „Ég átti ekki von á því að símanotkunin væri svona umfangsmikil,“ sagði Kristján. „Erlendar rannsóknir hafa bent á að samhliða stóraukinni snjallsímanotkun ungmenna hefur líðan versnað og áhugi á lestri minnkað. Þetta eru ferlar sem eru að gerast samhliða.“ Frétt af mbl.is Áhuginn hrynur: Gjörbreytt umhverfi barna Agndofa á Akureyri Tveir kennarar í grunnskólum Akureyrar ræddu við mbl.is í desember 2024, eftir að reynsla hafði fengist af símabanni þar í heila önn. Sögðu þeir að sameiginlegt átak allra grunnskóla á Akureyri hefði verið mikilvægur þáttur í velgengni verkefnisins. „Það var oft mikill ófriður vegna símanotkunar í tímum, en núna eru reglurnar einfaldlega svona og nemendur virðast lítið spá í það. Þetta hefur haft mikil og jákvæð áhrif á skólabraginn, og við erum eiginlega agndofa yfir því hvað þetta hefur gengið vel.“​ Bannið var sagt hafa breytt skólastarfinu til hins betra. „Það finna allir fyrir þessari þörf, þetta hefur verið að trufla þau í skólanum. Við áttum okkur á því að þessi tæki hafa áhrif og við erum að skapa þeim betra næði til að læra og sinna félagslegum samskiptum í skólanum.“ Frétt af mbl.is Aðeins 11% til í símafrí sem gengið hefur vel Frétt af mbl.is Varhugaverð innleiðing í skólunum Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Tengdar fréttir Skólakerfið í vanda Dæmið gengur ekki upp Fékk þau svör að þetta væri ekki löglegt Enn einn plásturinn á „opið blæðandi sár“ Hefur áhyggjur af börnunum á næsta prófi Varhugaverð innleiðing í skólunum » Fleiri tengdar fréttir Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Tugir slasaðir og 18 saknað eftir sprengingu í verksmiðju Kærður fyrir stórfellda líkamsárás Keppa við risabú Víða má búast við skúrum í hægum vindi Stefnir hraðbyri að Downing-stræti 10 Umræðan Tekist á við húsnæðismarkaðinn Vandann vantar fyrir ESB-lausnirnar Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Þetta er það ljótasta sem ég hef séð“ Soffía datt á andlitið: „Þetta er slysagildra“ Alvarleg líkamsárás til rannsóknar á Akureyri „Blíðskapurinn er bæði á himnum og á jörðu“ Mest lesið Í gær Í vikunni Greiddu hundruð þúsunda í sekt fyrir aksturinn „Þetta eru bara menn sem er skítsama“ Vill láta afla mun ítarlegri tölfræði Ökumennirnir kallaðir til yfirheyrslu Banaslys austan við Vík í gær „Þetta er það ljótasta sem ég hef séð“ Víðförull svikahrappur eftirlýstur Ekki einsdæmi: „Auðvitað getur svona alltaf gerst“ Bragi Þór ráðinn sveitarstjóri Ætlaði sér aldrei að fara út í þetta „Þetta er það ljótasta sem ég hef séð“ „Við erum ekki farin að fagna sigri“ Soffía datt á andlitið: „Þetta er slysagildra“ Ánægja með Bergmál: Umferðin þyngdist um miðnætti Banaslys austan við Vík í gær „Þetta eru bara menn sem er skítsama“ Handtekin í lögregluaðgerð í Skipholti EasyJet: „Flugmaðurinn þurfti læknisaðstoð“ Víðförull svikahrappur eftirlýstur Viðskiptavinur í 40 ár: Með miða að kaupa „sígó“ Af hverju er fólk að selja miðana sína? Myndskeið: Glannalegur framúrakstur Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Andlát: Þráinn Eggertsson Aflýstu 17. júní vegna veðurs „Þetta er það ljótasta sem ég hef séð“ Fátíður en sláandi atburður Stungu af með kranabíl Svarar óánægju: „Þetta er náttúrulega ekki útilega“ Slagsmál brutust út á milli ökumanna Nýjast á mbl.is » Tugir slasaðir og 18 saknað eftir sprengingu í verksmiðju Kærður fyrir stórfellda líkamsárás Keppa við risabú Víða má búast við skúrum í hægum vindi Stefnir hraðbyri að Downing-stræti 10 Umræðan Tekist á við húsnæðismarkaðinn Vandann vantar fyrir ESB-lausnirnar Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Engar upplýsingar um útgjöld til varnarmála EasyJet: „Flugmaðurinn þurfti læknisaðstoð“ Greiddu hundruð þúsunda í sekt fyrir aksturinn „Ekki upplifað aðra eins stemmingu“ Mest lesið Í gær Í vikunni Greiddu hundruð þúsunda í sekt fyrir aksturinn „Þetta eru bara menn sem er skítsama“ Vill láta afla mun ítarlegri tölfræði Ökumennirnir kallaðir til yfirheyrslu Banaslys austan við Vík í gær „Þetta er það ljótasta sem ég hef séð“ Víðförull svikahrappur eftirlýstur Ekki einsdæmi: „Auðvitað getur svona alltaf gerst“ Bragi Þór ráðinn sveitarstjóri Ætlaði sér aldrei að fara út í þetta „Þetta er það ljótasta sem ég hef séð“ „Við erum ekki farin að fagna sigri“ Soffía datt á andlitið: „Þetta er slysagildra“ Ánægja með Bergmál: Umferðin þyngdist um miðnætti Banaslys austan við Vík í gær „Þetta eru bara menn sem er skítsama“ Handtekin í lögregluaðgerð í Skipholti EasyJet: „Flugmaðurinn þurfti læknisaðstoð“ Víðförull svikahrappur eftirlýstur Viðskiptavinur í 40 ár: Með miða að kaupa „sígó“ Af hverju er fólk að selja miðana sína? Myndskeið: Glannalegur framúrakstur Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Andlát: Þráinn Eggertsson Aflýstu 17. júní vegna veðurs „Þetta er það ljótasta sem ég hef séð“ Fátíður en sláandi atburður Stungu af með kranabíl Svarar óánægju: „Þetta er náttúrulega ekki útilega“ Slagsmál brutust út á milli ökumanna

Share this article