Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Starmer segir af sér

Read Full Article →

Keir Starmer tilkynnti í morgun um að hann ætli að segja af sér sem forsætisráðherra Bretlands. Í ávarpi við Downingstræti 10 sagði hann að nýr leiðtogi Verkamannaflokksins verði tekinn við fyrir september næstkomandi. „Spurningin sem flokkur minn stendur frammi fyrir er hvort ég sé best til þess fallinn að leiða okkur inn í næstu þingkosningar,“ sagði hann. „Ég hef heyrt afstöðu þingflokks míns við þeirri spurningu og tek því svari af góðum hug.“ Keir sagði að hann myndi áfram vera í Downingstræti 10 þar til leiðtogakjörinu lyki. „Sérhver ákvörðun sem ég hef tekið hefur snúist um að setja landið sem ég elska í fyrsta sæti. Þess vegna mun ég segja af mér sem leiðtogi Verkamannaflokksins.“ Andy Burnham, sem talinn er líklegastur til að taka við af honum, mun bráðlega hefja störf sem þingmaður eftir afgerandi sigur sinn í aukakosningunum í Makerfield. Starmer með eiginkonu sinni Victoriu Starmer fyrir utan Downingstræti 10 í morgun. © EPA (EPA)

Share this article