Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Virðing gesta fyrir Þingvöllum greinileg

Read Full Article →

Innlent | mbl | 22.6.2026 | 12:20 Virðing gesta fyrir Þingvöllum greinileg „Ég vil þakka öllum tónleikagestum fyrir góða umgengni almennt,“ segir Einar. mbl.is/Hákon Magnea Marín Halldórsdóttir [email protected] Setja bókamerki Þjóðgarðsvörður Þingvalla segir gesti tónlistarhátíðarinnar Bergmáls hafa borið mikla virðingu fyrir hinu sögulega svæði. Einar Sæmundsen, þjóðgarðsvörður og framkvæmdastjóri Þingvallanefndar, stóð uppi í Almannagjá þegar fólk var farið að streyma frá tónleikunum á laugardagskvöldið og segir varla hafa verið rusl að sjá, þrátt fyrir að þar hafi streymt fram hjá þúsundir gesta. „Ég vil þakka öllum tónleikagestum fyrir góða umgengni almennt, þó að inni á hátíðarsvæðinu hafi verið svolítið fjörugt en það var vitað og búið að gera ráð fyrir að það yrði ryksugað upp um leið og allir væru farnir, fyrir utan að það voru hópar allan daginn að störfum að tína rusl,“ segir Einar við mbl.is. „Þetta var eitt af skilyrðunum hjá okkur“ Verðmætustu svæði Þingvalla eru Lögberg, Almannagjá og vellirnir þar sem þingið fór fram. Hátíðin var haldin á röskuðu svæði rétt norðan við þessi svæði. Raunar voru flatirnar sem hátíðin fór fram á útbúnar sem samkomuhátíðarsvæði árið 1930. Einar segir það sjást á loftmyndum á vegum Þingvalla, sem hafi fengið leyfi fyrir drónaflugi, hve vel viðburðahaldarar og gestir virtu mörk hátíðarsvæðisins. Engar mannaferðir hafi verið á óröskuðu landi. Þar að auki hafi lögregludrónar fylgst með mannaferðum utan við svæðið. „Þetta var eitt af skilyrðunum hjá okkur. Við vildum að þessi viðburður færi fram á röskuðu landi eða landi með yfirborði; malbiki, hellum, malarstígum eða slíku. Það var algjört skilyrði og það gekk hundrað prósent upp,“ segir Einar. Einar segir það sjást á loftmyndum á vegum Þingvalla hve vel viðburðahaldarar og gestir virtu mörk hátíðarsvæðisins. Engar mannaferðir hafi verið á óröskuðu landi. Ljósmynd/Aðsend Tiltekt gæti staðið til miðnættis Sjálfur er Einar nýmættur aftur á Þingvelli, þar sem verið er að pilla í burtu ruslatunnur og annað eftirstandandi. Hann gerir ráð fyrir að tiltektin standi alveg fram á miðnætti í kvöld. „Ég leit hratt yfir grasið áðan þegar ég fór fram hjá og ég er nú að fara að fylgjast með í dag. Það eru engar skemmdir sjáanlegar svona við fyrstu sýn og flötin kemur alveg græn undan.“ Sviðin og allur búnaður voru tekin niður strax um kvöldið og tiltekt á hátíðarsvæðinu hófst um leið og síðustu tónleikagestir höfðu yfirgefið svæðið. „Það var, eins og gefur að skilja, töluvert mikið rusl þar. En þarna var vaskur flokkur af fólki sem tíndi allt upp,“ segir Einar. Það sama hafi átt við svæðin þar sem fólk beið í röðum eftir rútunum sem skutluðu gestum heim. „Það eru engar alvarlegar skemmdir komnar í ljós en það er með fyrirvara sagt, við eigum eftir að taka út svæðið.“ mbl.is/Hákon Frétt af mbl.is „Ekki upplifað aðra eins stemmingu“ Viðbúið að umferð yrði hæg Mikil umræða skapaðist í síðustu viku um viðburðinn og ákvarðanatökur honum tengdum. Gestir höfðu áhyggjur af aðgengi og aðstæðum á hátíðarsvæðinu. Einar segir skipulagið hafa tekist vonum framar. Uppsetning hafi verið á áætlun vikuna fyrir viðburðinn og því hafi verið auðvelt að keyra allt í gang á laugardaginn. „Það sem skipti mestu máli var að veðurguðirnir voru alveg sammála öllu sem fór fram á jörðinni og sýndu allt sitt besta,“ segir hann. „Hátíðin tókst í einu orði sagt vel. Það komu þarna einhverjir tímar yfir daginn þar sem menn töldu að það væri að verða eitthvert umferðaröngþveiti en það varð nú ekki. Það var hæg umferð eins og gefur að skilja, sem var alveg viðbúið að yrði.“ Það sama hafi átt við um brottflutning fólks í lok kvöldsins og stór hluti komist til síns heima á eðlilegum tíma miðað við aðstæður, en viðbúið hafi verið að fólk færi ekki til og frá Þingvöllum þennan dag á sama hraða og venjulega. Aðalmálið hafi verið að fyrirbyggja miklar og viðvarandi stíflur, sem hann segir hafa tekist. Einar segir aðalmálið hafa verið að fyrirbyggja miklar og viðvarandi umferðarstíflur, sem hann segir hafa tekist. mbl.is/Hákon Frétt af mbl.is Ánægja með Bergmál: Umferðin þyngdist um miðnætti Mynda sér stefnu varðandi viðburðarhald Heldurðu að menn séu komnir á bragðið með viðburðarhald á Þingvöllum, fyrst þetta gekk svona vel? „Ég er alveg sannfærður um að það muni verða umræða um það og það er Þingvallanefndar og okkar að svona marka þá stefnu í því. Maður heyrir bara á umræðunni á samfélagsmiðlum að fólk var yfir sig hrifið. En það gætu verið alls konar samkomur, þetta var mjög stór viðburður. Þetta voru ekki bara einir tónleikar með Kaleo, þetta var dagskrá í 12 tíma á tveimur sviðum, það er mjög stór viðburður. Við munum nota þessa reynslu til að meta hvort við viljum gera þetta aftur en þetta var alltaf hugsað sem einskiptisviðburður og það er kannski það eina, ef menn ætluðu að fara út í svona viðburð þá var þessi svo einstakur í umgjörð og stemningu, með þetta ótrúlega veður, að það er nú alveg spurning hvort maður vilji nokkuð endurtaka þetta og eiga bara þennan viðburð í minningunni frekar.“ Þá ítrekar Einar að Þingvallanefnd hafi um þetta að segja og muni mynda sér stefnu varðandi viðburðarhald í sumar eða í haust. „Ég er alls ekkert á móti vel skipulögðum viðburðum hérna á Þingvöllum. Þarna urðu Þingvellir að samkomustað Íslendinga. Maður var bara hálfmeyr yfir því að sjá halarófuna af Íslendingum sem voru að koma til þess að gleðjast á Þingvöllum bara upp og niður Almannagjá, ég hef aldrei séð annað eins. Það var eiginlega alveg lyginni líkast,“ segir hann að lokum. Frétt af mbl.is Lögregla undirbúin: „Allir í góðu skapi hérna“ mbl.is/Hákon mbl.is/Hákon mbl.is/Hákon mbl.is/Hákon mbl.is/Hákon mbl.is/Hákon mbl.is/Hákon mbl.is/Hákon mbl.is/Hákon Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Spáir þingkosningum að vetri eftir krýningu Burnhams Virðing gesta fyrir Þingvöllum greinileg Hitabylgjan í Frakklandi heldur áfram: 43 stiga hiti í dag Útlendingar fá sjúkratryggingar fyrr en áður Myndskeið: Spánverjar í stuði Umræðan Tekist á við húsnæðismarkaðinn Vandann vantar fyrir ESB-lausnirnar Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Þetta er það ljótasta sem ég hef séð“ Ríkislögreglustjóri segist ekki mega tjá sig Engar upplýsingar um útgjöld til varnarmála Þrjár alvarlegar líkamsárásir á Akureyri Mest lesið Í gær Í vikunni Greiddu hundruð þúsunda í sekt fyrir aksturinn Segir „ömmuna“ ekki rata um höfin Keppa við risabú Bregðast við og bíða ekki eftir ráðherra Ríkislögreglustjóri segist ekki mega tjá sig „Þetta eru bara menn sem er skítsama“ Kærður fyrir stórfellda líkamsárás Skjálfti 3,1 að stærð Munu birta athugun á næstunni Stemningin var ólýsanleg „Þetta er það ljótasta sem ég hef séð“ „Við erum ekki farin að fagna sigri“ Soffía datt á andlitið: „Þetta er slysagildra“ Ánægja með Bergmál: Umferðin þyngdist um miðnætti Banaslys austan við Vík í gær „Þetta eru bara menn sem er skítsama“ Handtekin í lögregluaðgerð í Skipholti EasyJet: „Flugmaðurinn þurfti læknisaðstoð“ Víðförull svikahrappur eftirlýstur Viðskiptavinur í 40 ár: Með miða að kaupa „sígó“ Af hverju er fólk að selja miðana sína? Myndskeið: Glannalegur framúrakstur Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Andlát: Þráinn Eggertsson Aflýstu 17. júní vegna veðurs „Þetta er það ljótasta sem ég hef séð“ Fátíður en sláandi atburður Stungu af með kranabíl „Þetta eru bara menn sem er skítsama“ Svarar óánægju: „Þetta er náttúrulega ekki útilega“ Nýjast á mbl.is » Spáir þingkosningum að vetri eftir krýningu Burnhams Virðing gesta fyrir Þingvöllum greinileg Hitabylgjan í Frakklandi heldur áfram: 43 stiga hiti í dag Útlendingar fá sjúkratryggingar fyrr en áður Myndskeið: Spánverjar í stuði Umræðan Tekist á við húsnæðismarkaðinn Vandann vantar fyrir ESB-lausnirnar Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Víðförull svikahrappur eftirlýstur Virðing gesta fyrir Þingvöllum greinileg Spáir þingkosningum að vetri eftir krýningu Burnhams Bregðast við og bíða ekki eftir ráðherra Mest lesið Í gær Í vikunni Greiddu hundruð þúsunda í sekt fyrir aksturinn Segir „ömmuna“ ekki rata um höfin Keppa við risabú Bregðast við og bíða ekki eftir ráðherra Ríkislögreglustjóri segist ekki mega tjá sig „Þetta eru bara menn sem er skítsama“ Kærður fyrir stórfellda líkamsárás Skjálfti 3,1 að stærð Munu birta athugun á næstunni Stemningin var ólýsanleg „Þetta er það ljótasta sem ég hef séð“ „Við erum ekki farin að fagna sigri“ Soffía datt á andlitið: „Þetta er slysagildra“ Ánægja með Bergmál: Umferðin þyngdist um miðnætti Banaslys austan við Vík í gær „Þetta eru bara menn sem er skítsama“ Handtekin í lögregluaðgerð í Skipholti EasyJet: „Flugmaðurinn þurfti læknisaðstoð“ Víðförull svikahrappur eftirlýstur Viðskiptavinur í 40 ár: Með miða að kaupa „sígó“ Af hverju er fólk að selja miðana sína? Myndskeið: Glannalegur framúrakstur Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Andlát: Þráinn Eggertsson Aflýstu 17. júní vegna veðurs „Þetta er það ljótasta sem ég hef séð“ Fátíður en sláandi atburður Stungu af með kranabíl „Þetta eru bara menn sem er skítsama“ Svarar óánægju: „Þetta er náttúrulega ekki útilega“

Share this article