Security News

Cybersecurity news aggregator

🏛️
INFO News Mbl Innlent

Frumvarp um einföldun eftirlits samþykkt

  • What: Icelandic government approves bill to simplify oversight and regulations
  • Impact: Affects administrative processes and oversight structures in Iceland
Read Full Article →

Innlent | mbl | 22.6.2026 | 13:45 Frumvarp um einföldun eftirlits samþykkt Frumvarpið er liður í stefnu ríkisstjórnarinnar um einföldun regluverks, hagræðingu og sameiningu stofnana. mbl.is/Eyþór Setja bókamerki Alþingi hefur samþykkt frumvarp Jóhanns Páls Jóhannssonar, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, um einföldun regluverks og aukna skilvirkni eftirlits með hollustuháttum og mengunarvörnum. Lögin taka gildi 1. janúar 2027. Að því er segir í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins eru heilbrigðisnefndir sveitarfélaga lagðar niður með frumvarpinu. Þá er horfið frá hefðbundinni svæðisskiptingu heilbrigðiseftirlits og framkvæmd eftirlitsins í meginatriðum færð til Umhverfis- og orkustofnunar. Frumvarpið er liður í stefnu ríkisstjórnarinnar um einföldun regluverks, hagræðingu og sameiningu stofnana og hluti af heildstæðum breytingum á eftirliti með atvinnustarfsemi sem umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra og atvinnuvegaráðherra hafa unnið að. Frétt af mbl.is Mikil andstaða í umsagnarferli Málaflokkurinn nú á einu stjórnsýslustigi Breytingarnar eru sagðar byggja á umfangsmikilli greiningar- og undirbúningsvinnu sem megi rekja tvo áratugi aftur í tímann og hafi ítrekað leitt í ljós þörf fyrir uppstokkun á fyrirkomulagi eftirlits með hollustuháttum, mengunarvörnum og matvælum. Þar hafi meðal annars verið bent á skort á samræmi í framkvæmd eftirlits, ólíka framkvæmd milli svæða og þörf á skýrum yfirstjórnar- og eftirlitsheimildum í málaflokkunum. Yfirumsjón eftirlits með hollustuháttum og mengunarvörnum hefur verið á vegum Umhverfis- og orkustofnunar en framkvæmd eftirlitsins hefur verið á hendi níu heilbrigðiseftirlitssvæða sveitarfélaga. Með lögunum færist framkvæmd eftirlitsins og útgáfa starfsleyfa til Umhverfis- og orkustofnunar. Sú grundvallarbreyting verður því á að nú er málaflokkurinn á einu stjórnsýslustigi, sem veitir aukin tækifæri til einföldunar, samræmingar og skilvirkni í framkvæmd. Markmið laganna er að skapa samræmdara og markvissara fyrirkomulag eftirlits um land allt. Samhliða breytingunum mun Umhverfis- og orkustofnun innleiða nýtt upplýsinga- og verkefnastjórnunarkerfi sem einfaldar yfirfærslu verkefna og sjálfvirknivæðir afmarkaða þætti starfsins. Samræmt form eftirlitsskýrslna, skráning frávika og samhæft ferli vegna eftirfylgni munu stuðla að bættu viðmóti og auknum skýrleika fyrir eftirlitsþega og samræmdri framkvæmd eftirlits um allt land. Með uppfærðu áhættumati vegna reglubundins eftirlits er gert ráð fyrir að eftirlitsferðum til þeirra fyrirtækja sem standa sig vel muni fækka og kostnaður minnka. Áfram byggt á þekkingu og reynslu heilbrigðiseftirlitanna Vinna við innleiðingu breytinganna stendur nú yfir og er sérstök áhersla lögð á að byggja áfram á þeirri þekkingu og reynslu sem starfsfólk heilbrigðiseftirlitanna býr yfir. Starfsfólk heilbrigðiseftirlita sem hefur sinnt eftirliti með hollustuháttum og mengunarvörnum mun njóta forgangs að þeim störfum sem verða til hjá Umhverfis- og orkustofnun vegna breytinganna. Stofnunin rekur nú þegar starfsstöðvar í Reykjavík, á Akureyri, Egilsstöðum og Selfossi. Með breytingartillögu sem samþykkt var á Alþingi var hnykkt sérstaklega á því í lagatexta að Umhverfis- og orkustofnun skuli hafa starfsfólk staðsett á höfuðborgarsvæðinu, Vesturlandi, Vestfjörðum, Norðurlandi vestra, Norðurlandi eystra, Austurlandi, Suðurlandi og Suðurnesjum. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Sektin getur hæst orðið ein milljón króna Frumvarp um einföldun eftirlits samþykkt Fólk á aldrinum 1997 - 2012 drekkur minna „Ég er 35 ára og heilsan er aðalmálið“ Þýskaland missir út lykilmann á HM Umræðan Tekist á við húsnæðismarkaðinn Vandann vantar fyrir ESB-lausnirnar Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Þetta eru bara menn sem er skítsama“ Á þjóðargrafreitur ekki hljómgrunn? Virðing gesta fyrir Þingvöllum greinileg Burnham stefnir beint í formannssætið Mest lesið Í gær Í vikunni Greiddu hundruð þúsunda í sekt fyrir aksturinn Segir „ömmuna“ ekki rata um höfin Ríkislögreglustjóri segist ekki mega tjá sig Keppa við risabú Bregðast við og bíða ekki eftir ráðherra „Þetta eru bara menn sem er skítsama“ Brot ferðamannanna alvarleg Virðing gesta fyrir Þingvöllum greinileg Reiðhjólauppboð lögreglu hefst í dag Kærður fyrir stórfellda líkamsárás „Þetta er það ljótasta sem ég hef séð“ „Við erum ekki farin að fagna sigri“ Soffía datt á andlitið: „Þetta er slysagildra“ Ánægja með Bergmál: Umferðin þyngdist um miðnætti Banaslys austan við Vík í gær „Þetta eru bara menn sem er skítsama“ Handtekin í lögregluaðgerð í Skipholti EasyJet: „Flugmaðurinn þurfti læknisaðstoð“ Víðförull svikahrappur eftirlýstur Viðskiptavinur í 40 ár: Með miða að kaupa „sígó“ Af hverju er fólk að selja miðana sína? Myndskeið: Glannalegur framúrakstur Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Andlát: Þráinn Eggertsson Aflýstu 17. júní vegna veðurs „Þetta er það ljótasta sem ég hef séð“ Fátíður en sláandi atburður „Þetta eru bara menn sem er skítsama“ Stungu af með kranabíl Svarar óánægju: „Þetta er náttúrulega ekki útilega“ Nýjast á mbl.is » Sektin getur hæst orðið ein milljón króna Frumvarp um einföldun eftirlits samþykkt Fólk á aldrinum 1997 - 2012 drekkur minna „Ég er 35 ára og heilsan er aðalmálið“ Þýskaland missir út lykilmann á HM Umræðan Tekist á við húsnæðismarkaðinn Vandann vantar fyrir ESB-lausnirnar Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Brot ferðamannanna alvarleg Þrjár alvarlegar líkamsárásir á Akureyri Sektin getur hæst orðið ein milljón króna Ríkislögreglustjóri segist ekki mega tjá sig Mest lesið Í gær Í vikunni Greiddu hundruð þúsunda í sekt fyrir aksturinn Segir „ömmuna“ ekki rata um höfin Ríkislögreglustjóri segist ekki mega tjá sig Keppa við risabú Bregðast við og bíða ekki eftir ráðherra „Þetta eru bara menn sem er skítsama“ Brot ferðamannanna alvarleg Virðing gesta fyrir Þingvöllum greinileg Reiðhjólauppboð lögreglu hefst í dag Kærður fyrir stórfellda líkamsárás „Þetta er það ljótasta sem ég hef séð“ „Við erum ekki farin að fagna sigri“ Soffía datt á andlitið: „Þetta er slysagildra“ Ánægja með Bergmál: Umferðin þyngdist um miðnætti Banaslys austan við Vík í gær „Þetta eru bara menn sem er skítsama“ Handtekin í lögregluaðgerð í Skipholti EasyJet: „Flugmaðurinn þurfti læknisaðstoð“ Víðförull svikahrappur eftirlýstur Viðskiptavinur í 40 ár: Með miða að kaupa „sígó“ Af hverju er fólk að selja miðana sína? Myndskeið: Glannalegur framúrakstur Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Andlát: Þráinn Eggertsson Aflýstu 17. júní vegna veðurs „Þetta er það ljótasta sem ég hef séð“ Fátíður en sláandi atburður „Þetta eru bara menn sem er skítsama“ Stungu af með kranabíl Svarar óánægju: „Þetta er náttúrulega ekki útilega“

Share this article