- What: China imposes export restrictions on rare earth minerals
- Impact: Affects U.S. companies and industries reliant on rare earth materials
Kínversk stjórnvöld hafa hert útflutningstakmarkanir á sjaldgæfum jarðmálmum og beint þeim að bandarískum fyrirtækjum sem gegna lykilhlutverki í áætlunum stjórnvalda vestanhafs um aukið sjálfstæði frá kínversku aðfangakeðjunni. Frá þessu greinir New York Times . Umrædd fyrirtæki eru MP Materials og USA Rare Earth, sem hafa notið stuðnings yfirvalda í Washington við uppbyggingu innlendrar framleiðsla á sjaldgæfum jarðmálmum og seglum. Bandarísk stjórnvöld hafa horft til þess að endurreisa iðnað sem fluttist að mestu úr landi fyrir áratugum, og minnka þar með áhrif Kína á aðfangakeðjur sem skipti lykilmáli fyrir bæði atvinnulíf og þjóðaröryggi. Nýjar takmarkanir ná til málma sem eru meðal annars notaðir í rafbíla, dróna, hergögn, gervigreindarflögur og önnur efni notuð í hátækniiðnað. Í umfjölluninni segir að aðgerðirnar endurspegli yfirburðastöðu Kína á markaði með jarðmálma. Landið framleiðir eða vinnur meirihluta sjaldgæfra jarðmálma á heimsvísu, og sér nær alfarið um hreinsun svokallaða þungra jarðmálma. Bandarísk stjórnvöld hafa á undanförnum árum varið hundruð milljóna dala í að byggja upp innlenda aðfangakeðju fyrir ýmis hráefni. Nýjustu aðgerðir yfirvalda í Peking benda hins vegar til þess að vegferð Bandaríkjamanna að sjálfstæði frá kínverskum jarðmálmum, verði bæði lengri og flóknari en á horfðist. Málið gæti jafnframt aukið spennu í viðskiptasambandi ríkjanna á ný, en sjaldgæfir jarðmálmar hafa í auknum mæli orðið hluti af tæknilegri og efnahagslegri samkeppni Kína og Bandaríkjanna.