- What: Iran agrees to allow IAEA inspectors to monitor its nuclear program
- Impact: International nuclear monitoring and diplomacy
Stjórnvöld í Íran hafa samþykkt að bjóða eftirlitsmönnum frá Alþjóðakjarnorkumálastofnuninni til landsins, samkvæmt JD Vance varaforseta Bandaríkjanna. Varaforsetinn sagði á blaðamannafundi í Bürgenstock í Sviss í gær að þetta væri mikilvægt fyrsta skref í að binda enda á kjarnorkuáætlun Írana. Hann sagði jafnframt að góður grunnur hefði verið lagður að árangursríku samkomulagi við Íran. Stjórnvöld í Íran hafa samþykkt að þynna út birgðir sínar af auðguðu úrani, hugsanlega undir eftirliti. Alþjóðakjarnorkumálastofnunin áætlar að Íranar eigi 440 kíló af úrani sem er auðgað að 60%, sem er nálægt því sem þarf til að geta búið til kjarnorkusprengju. Íranar slitu samstarfi við stofnunina í júní á síðasta ári þegar Ísraelar og Bandaríkjamenn gerðu árásir á Íran. Eftirlitsmenn hafa ekki séð birgðirnar síðan.