Jórdanar leiddu leikinn framan af. Nizar Alrashdan skoraði fyrsta mark leiksins fyrir Jórdana á 36. mínútu. Nadhir Benbouali skoraði svo fyrsta mark Alsír á 69. mínútu og Amine Gouiri bætti um betur með seinna marki liðsins á 82. mínútu. Ibrahim Maza var valinn maður leiksins en hann spilar með landsliði Alsírs. Jórdanía er fallin úr leik á HM í fótbolta með ekkert stig. Alsír og Austurríki eru jöfn með þrjú stig. Argentína er því sigurvegari J-riðils með 6 stig og örugg áfram í 32 liða úrslit. Jórdanía mætir Argentínu á sunnudag og Alsír mætir Austurríki sömuleiðis á sunnudag.