Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Ungt fólk telur sig eiga að beita kyrkingum í kynlífi

  • What: Survey reveals increased use of cyberstalking among young people
  • Impact: Concerns about normalization of harmful online behavior among youth
Read Full Article →

Ungt fólk beitir kyrkingum í kynlífi í auknum mæli vegna þess að það sér það í klámi, segir Guðný S. Bjarnadóttir, stjórnarformaður Vitundar, samtaka gegn kynbundnu ofbeldi. „Ég held að þetta sé í rauninni ekkert nýtt en þetta er eitthvað sem er orðið mun algengara en áður. Það sem við erum að sjá er að ungt fólk er mjög mikið að beita kyrkingartaki í kynlífi og það er búið að normalísera það í kynlífi í gegnum klám,“ sagði Guðný í Morgunútvarpinu á Rás 2 í morgun. Hún segir kyrkingar í kynlífi vera eitthvað sem ungt fólk telji sig eiga að gera. „Ef þú ert að neyta kláms þá er búið að normalísera þetta þar ofboðslega mikið.“ Þarf ekki meiri kraft en til að opna kókdós Samtök og stofnanir sem vinna með brotaþolum ofbeldis hafa vaxandi áhyggjur af kyrkingartökum, bæði sem hluta af öðru ofbeldi en líka í kynlífi. Valdbeiting í kynlífi, til dæmis með kyrkingum, er iðulega kynbundin, segir í tilkynningu samtakanna, þ.e. karlar eða drengir að kyrkja konur eða stúlkur. Guðný segir lítið átak geta valdið skemmdum. „Það þarf ekki sterkara handtak en eins og þú myndir beita í handabandi eða við að opna kókdós til að valda verulega miklum skaða.“ Hugmyndin um öruggar kyrkingar sé ranghugmynd. „Það er bara þannig að ef þú heftir blóðflæði til heilans þá ertu í raun og veru bara að skerða starfsemi heilans og getur drepið heilafrumur. Og það tekur bara sex til tíu sekúndur fyrir manneskju að missa meðvitund,“ segir Guðný. Ummerki um alvarlegar skemmdir á heila sjáist oft ekki fyrr en mörgum árum eftir kyrkingu. „Rannsóknir sýna það núna að konur sem eru komnar a fullorðinsaldur eru að sýna einkenni sem er erfitt að greina og þá kemur í ljós að það eru afleiðingar kyrkingartaks.“ „Með lífið í lúkunum” Samfélagsmiðlaátakið „Með lífið í lúkunum” fræðir alla aldurshópa um hættu kyrkingartaka. Í tilkynningu segir að ungt fólk á Íslandi hafi kallað eftir meiri fræðslu um kynhegðun og kynbundið ofbeldi. „Það er ótrúlega mikilvægt að við stemmum stigu við þessari klámvæðingu sem er að eiga sér stað í kynlífi. Þetta þarf ekki að vera valdatengt, það þarf ekki að sýna einhvern offors eða beita ofbeldi í kynlífi,“ segir Guðný. Stígamót, Samtök um kvennaathvarf, Bjarkarhlíð – miðstöð fyrir þolendur ofbeldis, Vitund – samtök gegn kynbundnu ofbeldi, Þróunarmiðstöð íslenskrar heilsugæslu, lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og Félag kynjafræðikennara blésu til átaksins sem hófst í gær. Í spilaranum hér að neðan má heyra Guðnýju S. Bjarnadóttur tala um kyrkingar. Kyrkingar í kynlífi orðnar algengari en áður, segir stjórnarformaður Vitundar. Ungu fólki finnist ofbeldi í kynlífi venjulegt vegna þess að það sjái það í klámi. Samfélagsmiðlaátak sem miðar að fræðslu um kyrkingar fór af stað í gær.

Share this article