Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

„Að prjónaskapur gæti framkallað þessi viðbrögð, mér datt það ekki í hug“

Read Full Article →

Axlaskjól, eða skykkja, í íslensku fánalitunum sem Jökull í Kaleo klæddist á stórtónleikum á Þingvöllum á laugardagskvöld hefur vakið mikla athygli. Jökull gaf frú Höllu Tómasdóttur, forseta Íslands, skykkjuna eftir tónleikana en eftir stendur gríðarleg umræða á samfélagsmiðlum og helst inni í Facebook-hópnum handóðir prjónarar. Prjónakonan Guðrún Jónína Magnúsdóttir á heiðurinn á skykkjunni. Hún kom í prjónaspjall við Atla Fannars Bjarkasonar og Urðar Örlygsdóttur í Morgunútvarpinu á Rás 2. „Svona gerast hlutirnir á Íslandi“ Guðrún Jónína hefur áður prjónað fyrir Jökul í Kaleo. „Í fyrra prjónaði ég fimm peysur fyrir hann og hann er alltaf með sérkröfur. Það átti til dæmis vera leður á ermum á einni, ég græjaði það.,“ segir Guðrún, eða Ninna eins og hún er kölluð. Það má segja að hún hafi verið óopinber prjónari Kaleo fram að þessu, en nú vita allir hver stendur á bak við prjónaskapinn. Jökull komst í kynni við hana í gegnum foreldra sína, en Jenný systir Ninnu og hennar maður eru kunningjar þeirra. Jenný systir hennar var fyrst beðin um að prjóna fyrir hann en hafði ekki tíma. Þá benti hún á Ninnu. „Systir mín prjónar líka, mamma hans bað hana að gera hneppta peysu en einhverra hluta vegna hafði hún ekki tök á þessu svo hún benti á mig. Svona gerast hlutirnir á Íslandi,“ segir Ninna glettin. „Hana vantar tvær peysur og slá, eða ponsjó“ Móður Jökuls, Þórlaugu Sveinsdóttur, hitti hún fyrir tilviljun í fyrsta skipti þegar hún var stödd í Hertex-verslun á Íslandi. Þá höfðu þær aðeins átt í samskiptum í netheimum. Þórlaug kannast við Ninnu og heilsar, enda átti hún við hana erindi. „Við höfðum ekki hist áður, bara talað saman í gegnum netið, en hún segir: er þetta ekki Ninna?“ Einmitt í því spjalli kom fram að Jökli vantaði tvær peysur og skykkju fyrir tónleikana á Þingvöllum. Hann vantar tvær peysur og kannski slá eða ponsjó. Já, segi ég, við skulum skoða það. Önnur peysan sem Ninna prjónaði og Jökull klæddist á tónleikunum var gerð eftir peysu sem Þórlaug móðir hans á, sem vinkona hennar hafði prjónað á hana. En Ninna þurfti að aðlaga uppskriftina að vaxtarlagi Jökuls sem hún er farin að þekkja vel. Ég breytti litunum og græjaði í hans stærð sem ég er farin að þekkja mjög vel. Hann er svo grannur en svo herðabreiður að maður þarf að auka út fyrir bringuna. Það er engin uppskrift, maður bara prjónar á fólk. „Þetta skilja prjónakonur“ Þórlaug sendi Ninnu svo mynd af mexíkóskri skykkju, eða ponsjói, sem var í dröppuðum ljósum litum. En Ninna fór allt aðra leið með skykkjuna sem hún prjónaði. „Hann vildi fánalitina svo ég teiknaði upp prótótýpu og litaði. Ég var með blátt í aðallitum en hann segir strax: nei of blátt. Ég var honum eiginlega sammála. Það er mjög fallegur litur í íslenska fánanum en hann er aðeins of skærblár í flíkur finnst mér, sem aðallitur.“ Í samráði við Jökul og móður hans aðlagaði Ninna peysuna að óskum drengsins. „Ég fékk að vita hvað hann vildi og ég prjónaði bút af öllum röndunum sem eru í þessu. Þetta er prjónað á hringprjón, ég þurfti að gera ermaprjón því ég þurfti að ná röndunum langsum. Svo er þetta klippt upp að neðan og þar heklaði ég og setti kögrið á“ Mynstrið ákvað hún að hafa í stíl við staðsetningu tónleikanna. „Þetta er á þingvöllum og hann er okkur heilagur staður. Þar þinguðu fyrstu íbúar landsins,“ segir Ninna. Í bláu röndunum er atgeir og axir, sem var uppskrift í blaði sem heitir lopalist. Ég þurfti að snúa þessum mynstrum, atgeirinn er beinn en öxin kemur á ská. Ég var með fjóra að framan og fjóra að aftan. Svo þurfti ég að venda því þannig að það sneri hvort frá öðru. Þetta skilja prjónakonur. Tók sér frí frá vinnu sem rithöfundur til að prjóna fyrir Jökul Verkið, það er að segja bæði prjónið og hönnunin, hófst jöfnum höndum í kringum fjórða júní og var auðvitað allt tilbúið fyrir tónleikana. Til að geta sinnt prjónaskapnum af slíkri elju tók Ninna frí frá vinnu sinni sem rithöfundur, en hún er að skrifa fimm bóka ritröð fyrir Storytel. Ég er búin að skila handriti að fyrstu af fimm, byrjuð á númer tvö svo ég tók mér hálfsmánaða frí til að gera þetta og er búin að vera á fullu frá morgni til kvölds að prjóna. Varð meyr þegar hún sá hvað skykkjan kom vel út Ninna var stödd í útskriftarveislu dóttur sinnar á laugardag og vissi í raun ekki hvernig fatnaðurinn kom út fyrr en hún sá þetta sjálf á skjánum um kvöldið þegar hún stillti inn á tónleikana. „Þá er ég bara vá hvað þetta er flott. Ég hafði ekkert gert mér grein fyrir því hvað flíkin var falleg á sviðinu. Þetta var einstök upplifun,“ segir Ninna. Ég var svolítið meyr yfir þessu, mér finnst þetta æðislegt. Halla Tómasdóttir glæsileg í henni líka Hún segir að flíkin klæði Jökul afar vel en að Halla Tómasdóttir sé glæsileg í henni líka. „Það var mikill heiður að hún skyldi fá hana. Það hefði líka verið flott ef Jökull hefði bara haft hana en ég sé hann ekki fyrir mér í þessu í þessum heitu löndum,“ segir Ninna og hlær. „Hvar næ ég í þá?“ Skilboðin hafa hrúgast yfir Ninnu sem hefur varla tíma til að svara. En skilaboðin eru flest á sömu leið, fólk vill fá uppskrift eða hreinlega að Ninna prjóni keimlíka skykkju fyrir sig. Ninna er hins vegar í öðru starfi sem rithöfundur og hyggst ekki starfa sem prjónakona. Auk þess er engin uppskrift til nema í höfði hennar enda var skykkjan hönnuð jafnóðum, á meðan Ninna prjónaði. „Þýsk kona þrasaði við mig. Þegar ég sagði bara að Kaleo ætti þessa hönnun svaraði hún: Hvar næ ég í þá? Eins og ég væri bara með beinan aðgang,“ segir Ninna og hlær. Er hvorki að selja peysur né uppskriftir Fólk hefur líka verið að biðja um uppskrift fyrir peysurnar tvær sem hún gerði og Jökull klæddist á sviðinu. Hún bjóst við einhverjum fyrirspurnum en alls ekki neinu í líkingu við það sem varð. „Að prjónaskapur gæti framkallað þessi viðbrögð, mér datt það alls ekki í hug.“ Ég hef ekki sagt frá því áður að ég sé að prjóna fyrir þá. Kannski hef ég átt von á viðbrögðum en ekki svona. Þegar hún er spurð hvort það komi til greina að hún leggi prjóna- eða uppskriftaframleiðslu fyrir sig segir hún hlæjandi að það sé af og frá. „Nei, nei. Ég hef nóg annað að gera, ég sagði frá því á Facebook að ég sé ekki að selja, ekki uppskriftir því þær eru ekki til, ekki peysur eða ponsjó.“ Rithöfundurinn Guðrún Jónína Magnúsdóttir er konan á bak við skykkjuna sem Jökull Júlíusson klæddist á Þingvöllum um helgina. Beiðnum um peysur, ponsjó og uppskriftir hefur rignt yfir Guðrúnu en hún hefur ekkert slíkt á sínum snærum.

Share this article