Gönguvikan „Á fætur í Fjarðabyggð“ stendur nú sem hæst. Þar er gengið á fjöll á daginn og svo slá göngugarpar upp kvöldvökum þegar degi fer að halla. Ein slík hófst á Hólmanesi á milli Reyðarfjarðar og Eskifjarðar í kvöld. Þetta er í 19. skipti sem gönguvikan fer fram. Bæði er farið í langar og stuttar gönguferðir alla daga vikunnar og endað er á kvöldvöku á hverju einasta kvöldi. Göngugarpar hafa úr fimm fjöllum að velja. Markmiðið með gönguvikunni er að fá fólk í Fjarðabyggð á fætur og þeir einstaklingar sem ganga á öll fjöllin fá verðlaun, og sömuleiðis eru verðlaun fyrir þá yngri og eldri sem fara í allar stuttu gönguferðirnar.